07.04.1924
Neðri deild: 44. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1630 í B-deild Alþingistíðinda. (994)
101. mál, sýsluvegasjóðir
Ingólfur Bjarnason:
Háttv. 1. þm. Árn. (MT) mintist á, að það væri varla þess vert að gera sjer þetta umstang, sem brtt. okkar gerir ráð fyrir, um fundarhöldin samkvæmt 53. gr. sveitarstjórnarlaganna. En við flm. litum svo á, að þarna þyrfti ekki annars með en að setja inn auglýsingu um þetta á fundarboðið til hreppaskila, og verður þá umstangið alls ekki neitt. (MT: Já, ef það þá gleymist ekki að boða þetta). Jeg geri því ráð fyrir, að þetta verði ekki sjerlega örðugt í framkvæmdinni, og eru því þessar mótbárur hv. þm. einskis verðar.
Jeg skildi ekki almennilega, við hvað hv. 1. þm. Árn. átti, er hann talaði um, að þessi innheimtuaðferð, þ. e. að sýslumenn heimtu inn sýsluvegagjaldið, væri brot á almennum innheimtureglum. Þetta hygg jeg, að verði að teljast mjög vafasamur skilningur, hafi jeg tekið rjett eftir þessu. Og þá eru lögin frá síðasta þingi um þetta efni líka brot á þessari reglu, því brtt. okkar breytir engu í þessu atriði. Breytingin er aðeins sú, að gjaldið skuli því aðeins innheimt af sveitarstjórnum, að það sje lagt á með útsvörunum; ella sje innheimtunni ekki breytt frá því, sem lögin ákveða nú.