04.04.1925
Neðri deild: 51. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1810 í B-deild Alþingistíðinda. (1000)

27. mál, Ræktunarsjóður Íslands

Tryggvi Þórhallsson:

Jeg ætla, að nál. hv. landbn. um frv. þetta væri útbýtt sama dag og 2. umr. fjárlagafrv. stóð yfir hjer í deildinni. En frá þeim tíma og alt fram til þessa hefir fjvn. haft mikið að sýsla, og þeir, sem í henni eru, átt mikið annríki. Starfi okkar fjvn.manna lauk ekki fyr en seint í gærkvöldi, og hafði nefndin þá þann dag haft þrjá fundi.

Jeg verð að segja það, að mjer er annara um þetta mál en flest önnur þingmál, en jeg er ekki viðbúinn nú að öllu leyti að taka afstöðu til þess, vegna þess að bæði er jeg illa fyrirkallaður, og hefi auk þess haft svo lítinn tíma vegna annanna í fjárveitinganefnd. Þess vegna hefi jeg alls ekki getað gefið mjer nægan tíma til þess að athuga starf hv. nefndar eins og skyldi, en jeg vona, að þótt þessari umr. verði lokið í dag, þá verði tími til þess að gera athugasemdir við 3. umr. málsins. Jeg á þó ekki hjer við almennar athugasemdir, því mjer gafst tækifæri til þess að bera þær fram við 1. umr., bæði um brtt. nefndarinnar og einnig um frv. mitt, og svo gafst mjer einnig tækifæri til þess að minnast á þetta mál á eldhúsdeginum. Hjer er um það að ræða, hvort stofnun þessi, er frv. gerir ráð fyrir, muni geta orðið jafnfullkomin eins og þörf landbúnaðarins heimtar, og þá dylst mjer ekki, að till. háttv. nefndar eru stórt spor í áttina til þess, að því markmiði sje náð. En hinu held jeg fram, að tillögur mínar sjeu enn stærra spor í þá áttina. Hjer er um þrjú stig að ræða: 1. frv. stjórnarinnar, sem er verst, 2. tillögur nefndarinnar, sem eru betri, og 3. tillögur mínar í fullu samræmi við tillögur Búnaðarfjelagsnefndarnnar, sem eru bestar og líklegastar til þess að gera stofnunina þannig, að hún verði landbúnaðinum til styrktar bæði í nútíð og framtíð.

Þegar nú á þessu þingi á að leggja grundvöllinn fyrir þessa stofnun, þá vil jeg alvarlega minna hv. þdm. á eitt atriði. Jeg hygg, að það sje vafalaust, að aðstaðan fyrir þá, er vilja hlynna að landbúnaðinum, sje betri nú en nokkru sinni áður, vegna þeirra tíðinda, sem gerst hafa undanfarið um málið. Það eru fleiri aðiljar nú á þessu þingi heldur en búast má við, að nokkru sinni verði hjer, er vilja, að stofnun þessi komist á sem lánsstofnun fyrir landbúnaðinn. Því er aðstaðan best nú til þess að geta gert stofnunina fullkomna. Jeg skora því á hv. þm. að standa fast saman um þetta mál og gera stofnunina svo úr garði, að hún geti orðið landbúnaðinum til farsældar bæði í nútíð og framtíð. Mun það sannast, að mest verður undir því komið, hvernig gengið er frá stofnuninni þegar í upphafi.

Þá skal jeg fara nokkrum orðum um frv. hæstv. stjórnar og mitt frv. Jeg skal þegar taka það fram, að það er reiðilaust af mjer, þótt nefndin hafi tekið það ráð að leggja frv. stjórnarinnar til grundvallar fyrir till. sínum. Fyrir mjer er það aðalatriði málsins, að málið nái fram að ganga á sem farsælustum grundvelli. Og jeg uni vel við þann dóm hv. frsm. (ÁJ), að að formi til hafi stjfrv. verið betra, en að efni til hafi mitt verið betra. Mjer hefir aldrei gengið annað til en að fá grundvöll málsins sem tryggastan og samkomulagið sem best um stofnunina.

Skal jeg svo ekki fjölyrða meira um þetta, en minnast á breytingartillögurnar. Sumar brtt. mínar eru bornar fram að tilhlutun þess hluta Búnaðarfjelagsnefndarinnar, sem hjer er í bænum.

Bæði nefndin og jeg höfum komið með brtt. við 1. gr. Það er að vísu smáatriði, hvort af þessu þrennu verður valið, en jeg mun hallast frekar að till. nefndarinnar heldur en orðalagi greinarinnar í stjfrv. Jeg tók upp í brtt. mínar greinina orðrjetta eins og Búnaðarfjelagsnefndin hafði orðað hana. Er hún þar styttri og lagbetri, en þó legg jeg ekki mikla áherslu á það að fá hana samþykta.

Það, sem okkur landbn. aðallega skilur á um 2. gr. frv., er, að jeg vil, að það komi skýrt fram, hverjir vextir eigi að vera — og tel jeg sanngjarnt að þeir sjeu 4% — og eins að greiðslu sje lokið fyrir ákveðinn tíma á því fje, sem ríkissjóður á að endurgreiða ræktunarsjóði. Jeg skal nefna eitt dæmi því til sönnunar, að þetta er ekki þýðingarlaust atriði, að ákveða eitthvert tímatakmark. Það vita allir, að þegar lauk stríðinu milli Dana og Þjóðverja 1864, var svo ákveðið í friðarsamningunum, að atkvæðagreiðsla skyldi fara fram um það í Norður-Sljesvík, hvort íbúarnir vildu heldur vera danskir eða þýskir. Þetta sýndist nóg trygging, en vegna þess að ekkert tímatakmark var sett um það, hvenær þessi atkvæðagreiðsla skyldi fara fram, drógu Þjóðverjar hana altaf á langinn, og hefðu dregið endalaust, ef heimsstyrjöldin hefði ekki bundið enda á málið.

Af því að aðstaðan er best nú um að tryggja framtíð sjóðsins, vil jeg hafa þetta tímatakmark, og mjer heyrðist á hv. frsm. landbn. (ÁJ), að hann hefði ekkert við þetta að athuga.

Um varasjóð veðdeildar er jeg hv. landbn. sammála, en brtt. mín á þskj. 275, 3. liður, og brtt. á þskj. 291 eru háðar því, að brtt. nefndarinnar nái ekki fram að ganga. Vil jeg biðja hæstv. forseta að bera fyr upp þessar brtt. mínar en brtt. nefndarinnar 2, 3. Mun jeg t. d. greiða brtt. nefndarinnar atkvæði, ef mín fellur. Annars kem jeg að efni þessara brtt. síðar, um leið og jeg vík sjerstaklega að mínum tillögum.

Í sambandi við 3. brtt. nefndarinnar vjek hæstv. fjrh. (JÞ) að atriði, sem jeg get ekki látið ómótmælt. Hann kom þar með þá skoðun um Landsbankann og afstöðu hans til landsins, sem jeg hlýt að vera honum ósammála um. Hæstv. fjrh. vildi líta svo á, að Landsbankinn væri svo sjálfstæð stofnun, að það mætti lítt eða ekki við honum hagga af Alþingi. Fyrir því áleit hann farið fram yfir það, sem er leyfilegt, ef gerð væru slík ákvæði sem þar eru, að Landsbankinn eigi að leggja ræktunarsjóði ókeypis húsnæði. Það hefir líka komið fram í skrifum, að við hæstv. fjrh. erum um þetta mjög ósammála. í frv. stjórnarinnar held jeg jafnvel, að komi fram önnur skoðun, sem orð hæstv. fjrh. samrýmast ekki vel við. Hjer í deildinni liggur fyrir frv. frá hæstv. stjórn um að senda fiskifulltrúa til Spánar, og í því frv. er Landsbankinn skyldaður til að borga fiskifulltrúanum að nokkru leyti. Jeg hefi spurt það, en jeg þori ekki að fullyrða, að Landsbankanum sje ekki ljúft að gera þetta. En hvað sem því líður, þá ætlast hæstv. stjórn til þess, að Landsbankinn sje skyldaður til að inna þessa kvöð af hendi. Þá má geta þess, að í samráði við hæstv. atvrh. (MG) og í samræmi við orð, sem hann ljet falla hjer við 2. umr. fjárlaganna, ber fjvn. fram brtt. við 3. umr., sem fer í þá átt, að ríkisstjórnin eigi að sjá um, að Landsbankinn gefi eftir vexti og afborganir af ákveðnu láni. Þetta finst mjer alt stefna í öfuga átt við það, sem hæstv. fjrh. heldur fram. En það er í samræmi við mína skoðun í þessu efni. Þetta er innskot hjá mjer, sem kemur máli þessu aðeins við í sambandi við þessa tillögu.

Þá er aðeins eftir eitt atriði, sem verulegu máli skiftir í brtt. landbn. Það er síðasta, 6. till. Hún er um það að skylda Landsbankann til þess að kaupa vaxtabrjef ræktunarsjóðs. Um þessa till. þarf jeg ekki annað að segja en það, að jeg á líka brtt. við þessa sömu gr.; er það 7. brtt. mín, sem jeg vonast til, að hæstv. forseti beri upp á undan 6. brtt. landbn., þar sem mín fer lengra. Því jeg greiði hiklaust atkv. brtt. nefndarinnar, ef mín till. nær ekki fram að ganga. Jeg mun víkja síðar að því, sem okkur nefndinni ber þarna á milli.

Um 2 fyrstu brtt. mínar þarf jeg ekki að fjölyrða frekar en jeg hefi þegar gert.

3. brtt. er eitt stærsta atriðið í þessu sambandi, og kemur líka inn í frv. það, sem er næst á dagskrá, um breyting á lögum um útflutningsgjald; tel jeg víst, að jeg megi, eins og hv. frsm. (ÁJ), fara ofurlítið inn á atriði, sem snerta það frv. Vil jeg taka það fram strax viðvíkjandi 3. lið í brtt. mínum, að jeg held alls ekki fast við þetta form, að þessi ákvæði orðrjett og engin Önnur eigi að koma inn í lögin um ræktunarsjóðinn; og get jeg reyndar fallist á það, sem hæstv. fjrh. sagði um það efni, að slík ákvæði sem þessi eigi að vera í sjerstökum tolllögum. En það er annað, sem liggur til grundvallar fyrir þessari brtt. minni og jeg vildi láta koma fram þegar, og því bar jeg þessa brtt. fram. Og þá verð jeg að víkja örfáum orðum að þeirri nefnd, sem Búnaðarfjelag Íslands skipaði, og þá sjerstaklega að þeim manni, sem ber að skoða sem fulltrúa sjávarútvegsins í nefndinni. Jeg held, að jeg megi segja það opinberlega, að þessi till., að leggja sjerstakan toll á til þess að auka tekjur þessa sjóðs, sje komin einmitt frá þessum manni. Og það ber að líta á þetta sem útrjetta hönd frá sjávarútveginum, að einmitt þessi stærsti útgerðarmaður á landinu skyldi stinga upp á þessu til þess að styrkja landbúnaðinn. En jeg vil benda á, að það, sem var aðalatriði í tillögum Búnaðarfjelagsnefndarinnar, það var það, að þessi tollur yrði ekki stöðugt áframhaldandi tollur á útfluttar landbúnaðarafurðir og sjávarafurðir, heldur væri það tollur, sem aðeins stæði meðan verið væri að afla þessa fjár til ræktunarsjóðsins. Og það er þetta atriði, sem jeg vil sjerstaklega láta koma fram við þessar umræður, að jeg vil halda þeirri hugsun, sem vakti fyrir nefndinni, sem Búnaðarfjelagið skipaði, að þessi tollur, sem nú á að leggja á, verði ekki stöðugur tollur, heldur aðeins tollur, sem stendur á meðan verið er að afla þessa fjár. Jeg vil halda þessu atriði stranglega fram, því að jeg vil með engu móti landbúnaðarins vegna misnota þá útrjettu hönd af sjávarútvegarins hálfu í þessu efni. En að öðru leyti er jeg fús til samvinnu, hvernig þessu verði skipað. Jeg má geta þess, að það er í samráði við þá nefndarmenn úr Búnaðarfjelagsnefndinni, sem staddir eru í bænum, að jeg flyt þessa brtt.

4. brtt. mín er við 3. gr., að orðin „vextir af vaxtabrjefum 1. flokks skulu vera 6%“ falli burt. Þessi brtt., ásamt 7. brtt. minni, sem fer í þá átt, að Landsbankinn leggi fram fje í reiðum peningum, en ekki með því að kaupa vaxtabrjef, stafa frá sömu hugsun; þeirri hugsun, að jeg teldi landbúnaðinum hagkvæmast, að svo gæti orðið, að ræktunarsjóður þyrfti ekki að byrja á verðbrjefaútgáfu meðan svo óhagstæðir tímar eru til þess sem nú eru. Því afleiðingin af því, að hann byrjaði nú, yrði sú, að vaxtakjörin yrðu alt of óhagstæð fyrir landbúnaðinn., Með öðrum orðum, það, sem jeg vil að náist, er það, að stjórn sjóðsins hafi það fullkomlega í hendi sinni, hvort hún vill byrja vaxtabrjefaútgáfuna strax eða ekki. Þess vegna vil jeg láta það vera óbundið, hvort vextir af verðbrjefum 1. flokks þurfi að vera svo háir, sem til tekið er í frv. Ef ríkisstjórnin skipar forstöðumann sjóðsins, en hinir skipaðir að tilhlutun fulltrúa landbúnaðarins, þá má ganga út frá, að þeir menn verði valdir, sem hægt er að treysta til að ákveða ekki neina vitleysu um vextina.

Næst er b.-liður 4. brtt. minnar, um það, að vaxtabrjef ræktunarsjóðs skuli vera skattfrjáls. Þetta atriði hefir hæstv. stjórn felt niður úr sínu frv., en Búnaðarfjelagsnefndin tók það í sitt frv. Um þetta atriði þarf ekki að fjölyrða. Allir skilja, hvað liggur á bak við. Enginn vafi er á, að ef vaxtabrjefin nytu þessara hlunninda, verður það mjög til þess að gera þau betur seljanleg, og afleiðingin verður lægri vextir fyrir bændur. Bæði í Sviss og Þýskalandi mun þetta tíðkast, Böðvar Bjarkan getur um slíkar undanþágur í skýrslunni, sem hann sendi Alþingi eftir utanför sína til þess að kynna sjer bankamál, í sambandi við undirbúning ríkisveðbankans. Búnaðarfjelagsnefndin hefir því ekki gripið þetta ákvæði úr lausu lofti.

Jeg er viss um, að það stafar engin hætta af þessum hlunnindum sjóðsins, því það eru ekki braskarar, sem leggja í vana sinn að kaupa slík verðbrjef, heldur. eru það mestmegnis sparendur, sem ætla sjer að lifa af vöxtunum af þessum brjefum síðar meir og tryggja sig þannig í ellinni.

5. till. er borin fram samkvæmt bendingu frá Búnaðarfjelaginu, og það hygg jeg alveg sjálfsagða breytingu. Í stjfrv. er þetta orðað svo, að til jarðræktar teljast þær jarðabætur, sem greinir í II. kafla jarðræktarlaganna frá 20. júní 1923. En í 13. gr. er svo talað um það, sem lána eigi fje til, og sá galli er þar á, að ýmislegt fleira er þar talið en það, sem heyrir undir II. kafla jarðræktarlaganna. Þar er ekki talið annað, en í stjórnarfrv. eru auk þess taldar girðingar og veitugarðar. í skýrslum búnaðarfjelaga er alt þetta tekið með, svo brtt. mín miðar til þess að samræma 8. og 13. gr. í stjórnarfrv. sjálfu. Til þess að samræma þær fullkomlega er 6. brtt. mín, að á eftir „til girðinga“ í b.-lið komi: vega. Jeg efast ekki um, að menn viti og viðurkenni, að t. d. engjavegir sjeu ákaflega nauðsynlegar umbætur. En vitanlega er hjer ekki átt við almenna vegalagningu.

Í sambandi við niðurlagsorð 5. brtt. minnar vil jeg geta þess, að hv. frsm. (ÁJ) lýsti því yfir, að hann væri sjerstaklega mótfallinn því, að lánin mættu líka vera til húsagerðar á býlum bænda og landnema. Hv. frsm. álítur, að þarna sje verið að draga part af fjármagni sjóðsins til landnema í kauptúnum. Fyrst og fremst er það að athuga við þessi ummæli, að landnemar eru ekki eingöngu í kauptúnum, heldur líka til sveita. (ÁJ: Hv. þm. hefir misskilið mig). En það er ekki að óathuguðu máli, að þessi till. er komin frá mjer; því eins og jeg geri harðari kröfur um, að sjóðurinn fái sem mest fje til starfa og lánskjörin geti orðið sem best, eins vil jeg einnig hafa starfssvið sjóðsins rýmra. Jeg hefi fullkomna velþóknun á því, að menn í kauptúnum geti fengið lán til þess að rækta túnbletti. Jeg vil rjetta kauptúnunum hönd líka og hjálpa þeim til að rækta landið. Það má hver leggja það þannig út, ef hann vill, að jeg hirði ekki um að halda á rjetti bænda. En þessir menn í kaupstöðunum eru líka bændur. Og ræktun landsins er ekki síður nauðsynleg — og ef til vill ennþá nauðsynlegri — kringum kaupstaðina.

Þá kem jeg að 7. brtt. minni, sem víkur að Landsbankanum. Jeg lýsti því áðan, að jeg vil ekki fastbinda, að vextir 1. flokks sjeu 6%. Það, sem fyrir mjer vakir, er það, að stjórn sjóðsins hafi frjálsar hendur að ákveða, hvað vextirnir skuli vera háir og um sölu vaxtabrjefanna. Þess vegna vil jeg ekki, að framlag Landsbankans sje bundið við það að kaupa vaxtabrjef. Jeg vil í þessu efni ekki slaka neitt til við Landsbankann frá þeim kröfum, sem síðasta Alþingi gerði til hans með lögunum um stofnun búnaðarlánadeildar. Till. mín er í þá átt, að Landsbankinn eigi að leggja fram sömu peninga til þessa sjóðs, sem lögin um búnaðarlánadeildina ákveða honum að leggja fram. Fáist menn ekki til að ganga inn á þetta, mun jeg hiklaust greiða atkvæði till. nefndarinnar. Tilgangurinn er sá, að þetta, sem ætlað var til búnaðarlánadeildarinnar, leggist nú fram sem „permanent“ lán og vöxtunum sje eins háttað og þar, að þeir megi aldrei vera hærri en 1% yfir sparisjóðsvöxtum. En tilgangurinn með þessari till. er vitanlega sá, að stuðla að því, að útlánsvextir ræktunarsjóðs geti orðið sem lægstir.

8. till. mín er í beinu sambandi við till. búnaðarþingsins um skipun í stjórn sjóðsins. Till. Búnaðarfjelagsnefndarinnar gekk í þá átt, að búnaðarþingið ætti að hafa fullkomin ráð yfir skipun allra mannanna í stjórn sjóðsins. En jeg vil gera það til samkomulags, að ríkisstjórnin skipi einn, aðalforstjórann, enda varð þetta að samkomulagi á fundi, sem ráðherrar voru á í búnaðarþinginu. En hinu vil jeg halda fast fram, að tvo eigi að skipa samkvæmt tillögum búnaðarþings. Þykist jeg mega treysta því, eftir umr. þar og samkomulagi, að hæstv. fjrh. (JÞ) muni ekki hafa neitt við þá till. að athuga.

9. till. mín, og sú síðasta, er í samræmi við þau orð, sem fjellu frá mjer við 1. umr. þessa máls, um það, að halda því sama skipulagi, sem lög um búnaðarlánadeildina gerðu ráð fyrir. Eins og jeg ætlaðist til, að hún sameinaðist á sínum tíma ríkisveðbankanum, eins legg jeg til, að svo megi verða um þennan sjóð á sínum tíma.

Jeg ætla ekki að fjölyrða meira að þessu sinni. Get endað með því, sem jeg byrjaði á, að vegna minna ákaflega miklu anna undanfarna daga hefi jeg ekki getað búið mig undir þennan dag; fyrir þessa orsök, mikla vinnu og vökunætur, er jeg líka of þreyttur til þess að tala hjer nú; en vona, að hvernig sem málinu verður ráðið til lykta nú, þá gefist mjer tækifæri til þess að bera fram till. við 3. umræðu málsins.