04.04.1925
Neðri deild: 51. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1832 í B-deild Alþingistíðinda. (1003)
27. mál, Ræktunarsjóður Íslands
Tryggvi Þórhallsson:
Jeg skal ekki lengja umr. mikið. Jeg vil, að þessum umræðum sje lokið í dag, til þess að trygð sje skjót afgreiðsla málsins.
Jeg skal þá fyrst lítillega víkja að orðum hv. frsm. (AJ) og hæstv. fjrh. (JÞ) og minnast síðan á till. annara háttv. þm. í röð.
Hv. frsm. sagði, að hjer væri um tvo aðilja að ræða, er jeg lagði áherslu á að gera ræktunarsjóð nú þegar sem sjálfstæðastan og óháðastan. Annarsvegar væri stjórn hans, hinsvegar landsstjórnin, en sá þriðji væri Alþingi, og mætti skjóta til úrskurðar þess, ef á milli bæri. En jeg vil benda á, að þar eigast tveir ólíkir við, því að ef sú landsstjórn, sem situr við meiri hluta þings, er annarsvegar, þá stendur hún betur að vígi á Alþingi. Ef við erum sammála um, að hægt sje að tryggja sjóðinn betur með því, þá á að setja lög um það nú þegar, hvenær og hvernig stjórn sjóðsins geti heimtað fjárframlög til hans úr ríkissjóði.
Þá kem jeg að útflutningsgjaldinu, sem á að leggja ræktunarsjóðnum til, svo að unt sje að stofna hann. Aðalhugsun mín er þessi: Við megum ekki misnota þá hönd, sem nú er fram boðin. En ef þessu er breytt í stöðugan skatt, þá er það misnotkun. Þess vegna get jeg ekki gengið inn á að láta stofnun ræktunarsjóðsins verða til aukinna álaga á sjávarútveginn fram yfir það, sem fram er boðið af hans hálfu og sem mjer þykir vel boðið.
Jeg felst á orð hæstv. fjrh., að þetta eigi fremur heima í skattafrv. Þetta er komið fram eftir ósk búnaðarfjelagsnefndarinnar, og mætti vel fresta til 3. umr.
Um 4. brtt. er ekki mikill ágreiningur milli mín og hæstv. fjrh. Mjer fanst hann ekki vera á móti því, að það væri á valdi stjórnar sjóðsins, hve háir vextir væru. Það, sem fyrir mjer vakti, var að stofna ekki til útgáfu vaxtabrjefa með alt of háum vöxtum — og sem leiða af sjer alt of háa útlánsvexti fyrir landbúnaðinn. Nú eru vaxtabrjefavextir 7–8% í reyndinni. Það var alt of hátt. Allir vona, að eftir stuttan tíma þurfi vaxtabrjefavextir ekki að vera svo háir. Og jeg vil ekki byrja útgáfu brjefa á þessum óhagstæða tíma. Það mundi verða hlekkur um fót sjóðsins, og það hlekkur, sem lengi yrði að vaxa, því að það er ekki fljótgert að kalla brjefin inn.
Sú af mínum brtt., sem hæstv. fjrh. var mest á móti, var sú, að vaxtabrjef ræktunarsjóðsins væru skattfrjáls. Hann leit svo á, sem það væri hættulegt fordæmi. En ef um fyrirtæki eins og hjer er að ræða, þá er hættan næsta lítil, en ýmislegt, sem mikið mælir með því. Það mun verða örðugast um sölu brjefanna í fyrstu, og því vil jeg með þessu hjálpa til að komast yfir byrjunarerfiðleikana.
Það er þá fyrst, að þessi hætta nær ekki til þess, sem selt er í útlöndum. Í öðru lagi nær hættan ekki til þess, sem opinberir sjóðir og stofnanir kaupa, því þeir eru skattfrjálsir hvort sem er. Hættan er þá aðeins sú, að einstaklingar eignist mikið og losni við skatt. En sú hætta er heldur ekki mikil, því stjórn sjóðsins getur á hvaða tíma sem er heft útgáfu hvers flokks brjefa, og er jeg fús til að athuga til 3. umr., hvort þessi sjerrjettindi ættu ekki að einskorðast við fyrsta flokk brjefa.
Hæstv. fjrh. fer of langt, þegar hann heldur, að öll önnur verðbrjef komi á eftir. Jeg vil treysta því, að Alþingi verði þar á verði. En jeg vil hlynna að sölunni í byrjun, af því að hún verður erfiðust.
Hæstv. fjrh. leit svo á í sambandi við 5. brtt., að ef nýjar jarðabætur yrðu teknar á skýrslur búnaðarfjelaganna, þá þyrfti að breyta reglugerð ræktunarsjóðsins samkvæmt því. En ef búnaðarfjelögin ákveða að bæta einhverju í skýrslur sínar, þá er það af því, að um góðar og þarfar framkvæmdir er að ræða, sem rjett er að styrkja.
6. brtt. var hæstv. fjrh. (JÞ) samþykkur. Almenn vegalagning kemur þar auðvitað ekki til mála.
Þá kem jeg að 7. brtt., um Landsbankatillagið. Aðalatriðið er fyrir mjer, að það sje á valdi stjórnar sjóðsins, hvort hún lætur fyrir vaxtabrjef eða ekki. Ef hún vill afhenda vaxtabrjef, þá getur hún það eftir sem áður. En það, sem fyrir mjer vakir, er að forða sjóðnum frá því að gefa út vaxtabrjef með ókjörum Jeg vil, að ekki þurfi að gefa út brjef með 6% vöxtum, sem með afföllum og öðrum kostnaði verða í reyndinni yfir 7%, ef lægra er framundan.
Viðvíkjandi 8. brtt., að gæslustjórar verði skipaðir að tilhlutun búnaðarþingsins, þá kvað hæstv. fjrh. það ekki framkvæmanlegt. En það er einmitt vel framkvæmanlegt, og búnaðarþingið er þegar fyrirfram búið að gera ráðstafanir til þess, að menn verði útnefndir af þess hálfu.
Hæstv. fjrh. sagði lítið um ríkisveðbankann. Hann kvaðst hafa þann metnað fyrir ræktunarsjóðsins hönd, að hann vildi ekki sameina hann annari stofnun. Hið praktiska er aðalatriðið í þessu máli, og hæstv. fjrh. ætti að láta sjer jafnant um hvorttveggja. Jeg bar þetta fram af því jeg áleit rjett, að óbundið væri og opin leiðin, að í framtíðinni ætti lánsstofnunin að geta verið ein fyrir bæi og sveitir.