25.04.1925
Neðri deild: 64. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1866 í B-deild Alþingistíðinda. (1016)
27. mál, Ræktunarsjóður Íslands
Sveinn Ólafsson:
Það var rjettilega tekið fram af hv. frsm. landbn. (ÁJ), að frv. þetta hefði vakið almenna eftirtekt, og kemur það best í ljós af því, að fjöldi tillagna liggur fyrir, og án þess að jeg vilji leggja nokkurn dóm á hverja einstaka tillögu, benda þær yfirleitt í þá átt, að mönnum sje mjög ant um frv.
Meðal þessara mörgu tillagna á jeg tvær á þskj. 375. Á þær mintist hv. þm. Str. (TrÞ) lítillega, og virtist mjer hann heldur leggja á móti þeim og telja þær athugaverðar. Jeg legg til, að 28. og 29. gr. frv. falli niður, en í stað þeirra komi ein grein. í 28. gr. frv. er sagt fyrir um. hvernig skipa skuli stjórn þessa fyrirtækis, og er gert ráð fyrir einum aðalforstjóra og tveimur meðstjórnendum. Einnig er þar ákveðið um launakjör. Í 29. gr. er gert ráð fyrir því, að til bráðabirgða verði stjórn þessa sjóðs falin stjórn Landsbankans. Nú legg jeg til, að í stað þessa komi ný grein þess efnis, að rekstur ræktunarsjóðs verði lagður undir stjórn Landsbankans þangað til öðruvísi verður ákveðið eða ræktunarsjóðurinn sameinast ríkisveðbankanum fyrirhugaða. Jeg lít svo á, að búið sje að lögfesta þessi embætti, með lögum um ríkisveðbanka frá 1921, og að hjer sje ríkisveðbankinn að vissu leyti kominn, þótt verkefni ræktunarsjóðs sjeu ekki eins víðtæk og upphaflega var til ætlast um veðbankann.
Þess vegna virðist mjer rjett að lögfesta ekki fleiri embætti en þar er gert, enda virðist það og vaka fyrir flestum, að ríkisveðbankinn taki hið bráðasta til starfa eða að ræktunarsjóður færi svo út kvíarnar, að hann fullnægi í þessu efni bæði þörf sveita og annara.
Fyrir mjer er þetta því praktiskt atriði, sem kemur til greina á meðan ekki er frekar að gert, og einkum þó vegna þess, að ekki eru miklar líkur til, að ræktunarsjóðurinn leggi stórar fjárhæðir til útlána meðan vextir eru eins háir og nú og sala vaxtabrjefanna gengur álíka illa og reynslan hefir sýnt undanfarið um sölu veðdeildarbrjefanna.
Mjer virðist því, að hjer verði um lítið starf að ræða, er stjórn ræktunarsjóðsins hefir með höndum 1. og 2. árið, og síst meira en t. d. starf Landsbankastjóranna vegna veðdeildarinnar, á meðan ekki horfir betur um sölu vaxtabrjefanna en nú gerir.
Nú hefir sú breyting orðið á, vegna samninga við Landsbankann, að sala vaxtabrjefanna takmarkast og dreifist á lengri tíma en áður var ætlað. Til þessa hefir verið á því bygt, að bankinn keypti mikið af brjefunum á næstu 2 árum, og fengist þannig reiðufje til útlána þegar, en þegar brjefasölunni er frestað og dreift á mörg ár, þá verður bersýnilega minna um lán fyrst í stað. Þar að auki flytur frv. þetta svo stórfeldar nýjungar um ræktunarlán, að gera má ráð fyrir, að almenningur þurfi alllangan tíma til þess að átta sig á því, hvort og hvernig nota eigi þessi jarðræktarlán.
Það er líka mjög eftirtektarvert í þessu sambandi, sem hv. þm. Str. (TrÞ) benti á, að ef gengi íslensku krónunnar hjeldi áfram að hækka næsta ár, þá þyrfti varla að gera ráð fyrir, að sjóðurinn veitti miklar fjárhæðir til jarðabótaframkvæmda í svip, enda ekki æskilegt. Alt bendir því í sömu átt, að óþarft muni vera að gera ráð fyrir víðtækri starfsemi sjóðsins fyrstu árin, eða að þörf sje á kostnaðarsamri stjórn við hann fyrst um sinn. Mundi því nægja, eins og brtt. mín fer fram á, að fela Landsbankanum alla starfrækslu ræktunarsjóðs, þar til öðruvísi verður með lögum skipað fyrir eða veðbankinn tekur að fullu til starfa.
Síðari brtt. mín á þskj. 375 er bein afleiðing af hinni, sem á undan stendur, og þarf jeg því ekki að fjölyrða um hana. Og um aðrar brtt. ætla jeg ekki að ræða, eða tefja umr. lengur, enda læt jeg mjer nægja, að atkv. skeri þar úr.