25.04.1925
Neðri deild: 64. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1873 í B-deild Alþingistíðinda. (1019)

27. mál, Ræktunarsjóður Íslands

Jón Baldvinsson:

Jeg hygg, að enginn ágreiningur sje um það, að efla beri landbúnaðinn, svo að sem flestir geti haft uppeldi sitt af honum. En þó efast jeg um, að öðrum sje það meira áhugamál en einmitt verkamönnum og sjómönnum, sem vitanlega er það ærið áhyggjuefni, að fólk streymir úr sveitunum til að keppa við þá um handtökin í kaupstöðunum.

En þótt þeir vilji stuðla að framförum landbúnaðarins, vilja þeir þó ekki gera annað en það, sem þeir eru vissir um, að komi að fullum notum. Þeir vilja hafa tryggingu fyrir árangri af stórum fjárveitingum, en ekkert fálm út í loftið.

Nú hefir verið svo ákveðið í frumvarpi þessu, að lán skuli einnig veitt til húsabygginga í sveitum. Er þá mikils um vert, að bygt verði með tilliti til þess, að fleira fólk búi í sveitunum hjer eftir en hingað til. Fyrir 1900 voru nægileg húsakynni til fyrir fólk, er þá var í sveitunum Þeir, sem síðan hafa bygt, hafa flestir látið sjer nægja að sníða bygginguna eftir þörfum fjölskyldu sinnar einnar, vegna fólksfæðar upp á síðkastið. Því þurfa þær byggingar að verða stærri, sem nú verða reistar, einmitt með það fyrir augum, að fólki fjölgi í sveitum. Jeg á hjer ekki við kaupafólk, sem víðast hvar er hægt að hola niður um hásumarið, heldur fólk, sem hefir varanlega bólfestu í sveitunum árið í kring.

Jeg minnist þess, að á uppvaxtarárum mínum voru víða til híbýli í sveitum fyrir 1–2 fjölskyldur, þar sem nú er þröngt um eina, hvað þá þann tíma, sem kaupafólk dvelur eða gesti ber að garði.

Þetta hefir ekki komið fram hjer undir umræðunum, og vildi jeg því ekki láta hjá líða að minnast þessa mikilvæga atriðis hjer.

Jeg sagði hjer áður, að enginn ágreiningur myndi vera um það, að styrkja bæri landbúnaðinn. Því kynlegra þótti mjer að heyra anda kalt til kaupstaðanna í till. og ummælum háttv. frsm. (ÁJ).

Hinsvegar hefi jeg engan heyrt hjer víkja neinu slíku að landbúnaðinum, en úr tveim hornum þingsins hefir kent kulda til kaupstaðanna undir þessum umræðum. Jeg mun þó ekki víkja nánar að þessu, því að vonandi á þetta sjer ekki svo djúpar rætur, að mark sje á takandi.

Hv. frsm. (ÁJ) gat þess við 2. umr., 118 að hann vildi þegar taka fram, að ætlast væri til, að starfsemi sjóðsins næði eingöngu til sveita, en ekki til lögsagnarumdæma kaupstaðanna, svo að það þyrfti ekki að valda óánægju seinna. Þetta hefir nú nokkuð verið lagfært, en þó ekki nóg. Jeg er því fylgjandi till. hv. þm. Str. (TrÞ) um lán til nýbýlastofnunar í kaupstöðum. Jeg veit, að hún myndi koma að góðu gagni, án þess þó að draga frá sveitunum.

Í fjárlögunum eins og þau voru afgreidd frá Nd. voru veittar 200 þús. kr. til Búnaðarfjelags Íslands, og sýnir það best, hve mikið kapp er lagt á að efla landbúnaðinn. Miklu af fje þessu er varið til að kosta ráðunauta og sjerfræðinga í ýmsum greinum til leiðbeiningar bændum og búaliði. Þetta er gott og blessað, en enda þótt munnlegar og skriflegar leiðbeiningar geti verið góðar, þá munu hinar verklegu ekki síður nauðsynlegar.

Jeg get þessa í sambandi við till. mína um fyrirmyndarbú. Að vísu er það einnig hlutverk búnaðarskólanna að efla búnað með verklegum leiðbeiningum, en jeg hygg þó, að slíkum búum væri alls ekki ofaukið. Að vísu er til fjöldi bænda, sem kunna að búa fyrir sjálfa sig, en geta ekki gert öðrum grein fyrir, í hverju búskaparaðferð þeirra sje fólgin. En ef tilraunabú vœru rekin á vísindalegan hátt, œttu þau að geta komið að almennum notum.

Þessari tillögu hefir verið mótmœlt með því, að hún vœri illa undirbúin. Hjelt hv. frsm. (ÁJ) þessu einkum fram. Jeg veit ekki betur en öll starfsemi Búnaðarfjelagsins sje einmitt undirbúningur undir verklega starfsemi.

Að tillagan taki ekki nógu greinilega fram um alt, sem bú þessi varðar, má vel vera, en slíkt er í raun og veru ekki hægt. Fyrirkomulag búanna hlýtur að vera framkvæmdaratriði að meira eða minna leyti. Hæstv. atvrh. (MG) andmælti till. af því, að með henni væri farið út fyrir hið tilætlaða starfsvið sjóðsins og háttv. þm. Str. (TrÞ) af því, að hún væri óformleg. Jeg vil mótmæla þessu hvorutveggja. Af því að hjer er um undantekningarstarfsemi að ræða, þarf ekki að fylgja sömu reglu og annarsstaðar um lánveitingar úr sjóðnum, en það þarf fyrir það ekkert að koma í bága við aðra starfsemi hans.

Þá spurði hv. þm. Str. (TrÞ), hví jeg hefði ekki leitað álits Búnaðarfjelagsins um tillögu mína. Sannleikurinn er sá, að jeg hefi að vísu ekki snúið mjer þangað skriflega, en hinsvegar hefi jeg talað við búnaðannálastjóra, og taldi hann æskilegt, að tillaga mín kæmist í framkvæmd. Annars er tillagan fyrir svo löngu komin fram, að Búnaðarfjelagsstjórnin hefði átt að geta látið uppi álit sitt , um hana.

Hjer er ennfremur aðeins um heimild að ræða. Liggur það í hlutarins eðli, að ekki verða öll búin sett upp á sama tíma, heldur gætu liðið 10–15 ár uns þau væru öll reist. Mætti byrja með einu og þreifa sig svo áfram. En þótt þetta sje aðeins heimild, sem nota má, ef þurfa þykir, þá er nauðsynlegt að hafa hana í lögunum, því ekki er víst, að betra verði að koma henni að síðar. Það hefir verið haft á móti þessu, að ekki væri rjett að leggja svo þunga kvöð á sjóðinn eða lána svo mikið af stofnfje hans, en þess ber að gæta, að það má eins lána þessa upphæð af vaxtafje sjóðsins. Hv. frsm. landbn. (ÁJ) sagði, að eftir 10 ár væri stofnfje sjóðsins orðið 10 milj. kr. og veltufje hans 18 milj. kr., svo jeg verð að segja, að ekki myndi muna miklu um það, þó þá væri búið að lána ca. 200 þús. kr. til tilraunabúa. Væri ekki sjáandi eftir því. Jeg er sammála hv. þm. Str. (TrÞ) í því, að jeg hygg, að Búnaðarfjelagi Íslands væri mjög vel trúandi til að fara vel og viturlega með þetta, og þá efast jeg heldur ekki um, að mikið gagn mætti af þessu hljótast fyrir landbúnað Íslands, engu síður en aðrar þjóðir hafa haft gagn af samskonar tilraunum hjá sjer. Og þeir, sem trúa Búnaðarfjelaginu til þess að fara með þetta mál, ættu að geta samþykt tillögu mína. Það er augljóst, að þetta hefir mikinn byrjunarkostnað í för með sjer, og eins má vel vera, að tap verði á rekstrinum fyrst í stað, því margskonar tilraunir þarf að gera, sem hljóta að kosta allmikið fje. En þegar fram í sækti, ætti gagnið að geta orðið mikið, bæði beint og óbeint. Jeg tel því sjálfsagt, að þessi tillaga verði samþykt. Er og engin hætta á, að heimildin verði notuð, nema menn sannfærist um, að gagn megi af slíku leiða. Jeg er meira að segja alls ekki viss um, að það fje, sem lánað verður til ræktunar, komi að jafnmiklu gagni, nema eitthvað slíkt verði gert, sem tillaga mín fer fram á, því enn mun skorta fastan grundvöll eða „plan“ í þessum málum, og kunnáttu manna í þessum efnum er yfirleitt mjög ábótavant. Mun því ekki óþarft, þótt eitthvað sje gert til að afla innlendrar reynslu, því satt að segja hefir búnaði vorum farið sorglega lítið fram allar þær aldir, sem liðnar eru síðan landið bygðist, og þeim fækkar stöðugt, sem hafa lífsuppeldi sitt af landbúnaði.

Hv. frsm. landbn. (ÁJ) sagði á dögunum, að það væri gott að hafa „lagið, þó það væri gamalt“. Má vera, að svo sje stundum, en ekki altaf. Stundum held jeg, að „nýja lagið“ sje betra en það gamla, og betur að bændur landsins tækju það upp. Jeg vil láta afla innlendrar reynslu í því, hvað best eigi við, þegar rækta á landið. Verði það ekki gert, mætti svo fara, að litlu meiri ávexti sæi af þessu fje, sem rœktunarsjóðnum er ætlað að lána til ræktunar landsins, en silfri Egils Skallagrímssonar, sem sagt er, að hann hafi fleygt í fúafen í Mosfellssveitinni. En þessar nauðsynlegu tilraunir ætti, eins og jeg vjek að áðan, sú stofnun að hafa með höndum, sem mesta sjerþekkingu og besta starfskrafta hefir til þessa, nefnilega Búnaðarfjelag Íslands.