25.04.1925
Neðri deild: 64. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1888 í B-deild Alþingistíðinda. (1023)

27. mál, Ræktunarsjóður Íslands

Tryggvi Þórhallsson:

Mjer fer eins og fleirum, að mjer þykir það óviðfeldið að ávarpa háttvirta stóla. Annars er það af sjerstöku tilefni, sem jeg tek til máls nú; en áður en jeg kem að því. ætla jeg að víkja örfáum orðum að því, sem sagt hefir verið í minn garð og um þær till., sem jeg ber fram. Bæði hæstv. atvrh. (MG) og hv. frsm. (ÁJ) hafa vikið að tillögu minni um skattfrelsi brjefanna. Um það þarf jeg ekki að fjölyrða, en benda aðeins á, að það er dálítið einkennilegt, hvaða niðurstöðu þeir komast að Hæstv. ráðherra komst að þeirri niðurstöðu, að afleiðingin af skattfrelsi 1. flokks brjefanna yrði, að það kæmi niður á síðari flokkunum, yrði gert á kostnað þeirra. Hv. frsm. komst að þeirri niðurstöðu aftur á móti, að skattfrelsi 1. flokks hlyti að leiða til þess, að allir hinir flokkarnir yrðu að vera skattfrjálsir líka. Þetta samrýmist ekki vel; að minsta kosti er ekki hægt að nota þetta hvorttveggja á móti þessari till. Jeg verð að segja, að jeg virði miklu frekar rök hæstv. ráðherra. því samkv. þeim hefir þetta miklu alvarlegri afleiðingar fyrir sjóðinn. Jeg er ekki á skoðun hæstv. ráðherra að því leyti, að einna hægast verði að selja brjefin nú vegna vaxtanna. Vitaskuld verður það, ef vextirnir verða ákveðnir háir. En jeg álít það aðalatriði til að tryggja bændum æskileg lánskjör í framtíðinni, að byrja á að hafa sem lægsta vexti; þess vegna vil jeg gera mönnum lánin sem aðgengilegust og ná hinsvegar hinu markinu, að hafa ekki háa vexti. Út frá þessu geri jeg ráð fyrir, að það verði frekar erfitt að selja fyrsta flokkinn, og einmitt þess vegna vil jeg hlynna að honum sem best, Það verður auðvitað ekki losnað við hann í einum hvelli; það getur tekið 35 ár. (Atvrh. MG: Ekki salan). Nei; en menn geta búið að honum svo lengi.

Háttv. 2. þm. Reykv. (JBald) mælti ýmislegt í minn garð og Búnaðarfjelagsins út af þeim orðum, sem jeg vjek að till. hans. Mjer dettur ekki í hug að fara langt út í það, enda mælti hann yfirleitt hlýlega í garð landbúnaðarins og Búnaðarfjelagsins, þó það slægi út í fyrir honum innan um. Jeg efa ekki, að hv. þm. gengur gott til um þetta. Síðar í ræðu hans kom það fram, að hann gerir ekki ráð fyrir, að þessi heimild verði notuð fyr en einhverntíma og einhverntíma. Jeg endurtek það, sem jeg sagði áður, að til þess að stofna til svona stórra fyrirtækja álít jeg, að eigi í hvert skifti að koma sjerstök heimild frá þinginu. Jeg kann illa við, að einstakar stofnanir hafi slíka heimild og eigi aðgang að hundruðum þúsunda króna án náins eftirlits þingsins. Jeg álít það löggjafarvaldsins að fjalla um það. En mjer þykir hinsvegar ákaflega gott að eiga von á, ef til þess kæmi, að Búnaðarfjelagið óskaði eftir þessu, að háttv. 2. þm. Reykv. (JBald) styddi slíka rökstudda málaleitun.

Jeg er eiginlega ekki í raun og veru að leggjast á móti þessari till.; en jeg álít, að hún sje ekki forsvaranlega undirbúin, og rjettara, að slíkar till. beri öðruvísi að.

Hv. þm. kom inn á það að kasta peningum í fleiri fúafen, og fanst mjer hann hálfpartinn gera ráð fyrir, að þeir peningar, sem bændur fengju úr þessari lánsstofnun, og yfirleitt það, sem varið er til framkvæmda í landbúnaði á þessu landi, færi alt í fúafen, ef þessi tilraunabú væru ekki stofnuð til að kenna fáráðlingunum. Jeg er ekki svona svartsýnn, enda trúi jeg tæplega, að hv. þm. líti sjálfur þannig á málið sem hann lætur í veðri vaka. En svo jeg slái dálítið út í spaug í þessu sambandi, þá þætti mjer fróðlegt að heyra um þessa sögulegu uppgötvun háttv. þm. Sjálfsagt hefir hann fundið handrit af Egilssögu, þar sem hann gat staðhæft, að Egill hefði falið peningana í fúafeni einmitt uppi í Mosfellssveit. Er ekki ólíklegt, að hv. þm. geti haft einhver ráð með að nálgast þá. Egilssögu hefi jeg lesið, en hún segir ekki frá með neinni vissu um þetta atriði. (PO: Það mætti svo vel stofna tilraunabú með peningunum). Já, jeg heyri, að hún er strax farin að vekja athygli hjá hv. þdm. þessi sögulega uppgötvun hv. 2. þm. Reykv. (JBald).

Það, sem einkum kom mjer til að standa upp, voru ummæli hv. frsm. (AJ) út af tveim till, sem hafa komið fram um stjórn sjóðsins, till. hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ), þar sem hann vill í bili fela yfirstjórn Landsþankans það starf og út af brtt, sem jeg hefi flutt um, að gæslustjórar sjóðsins væru skipaðir samkv. till. búnaðar þings. Hv. frsm. henti á lofti þau innmæli mín, er jeg lýsti yfir ánægju minni yfir því, að það hefir orðið gott samkomulag milli Landsbankastjórnarinnar og landbn. um framlag til sjóðsins. Hann dró þar af þá ályktun, að jeg hlyti að vera á móti að fela bankastjórninni yfirstjórn sjóðsins. Jeg get nú alls ekki skilið, hvaða samband er þar á milli. En það var frá öðru sjónarmiði, sem mjer fanst það gott, að það skyldi fást samkomulag milli Landsbankans og landbn. um þetta mál. Því þótt jeg sje ekki sammála stjórn Landsbankans út af afskiftum hennar af búnaðarlánadeildinni, þá er mjer svo ant um ræktunarsjóðinn, og mjer er líka svo ant um Landsbankann, að jeg vil ekki, að neitt ósamkomulag verði þeirra aðilja í milli.

Í sambandi við þetta og eftir að hafa heyrt ræðu hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) vil jeg víkja dálítið frekar að stjórn ræktunarsjóðsins. Í fyrsta lagi vil jeg minna hv. frsm. á það, að í því frv. sem jeg hefi borið fram, og í því frv. sem nefndin, sem skipuð var af Búnaðarfjelaginu, bar fram, þá var það tilætlunin, að bankastjórnin hefði þetta sem aukastarf. Það var litið svo á, að til þess að íþyngja ekki sjóðnum, þá ætti hann ekki að þurfa að launa til fulls yfirstjórn. Svo var það ennfremur ákveðin till. frá þeirri nefnd og öllu búnaðarþinginu, að fulltrúar bændanna mættu eiga tillögurjett um alla stjórn sjóðsins.

Þegar hæstv. stjórn hafði borið þetta frv. fram, vildi búnaðarþingið hliðra svo til, að landsstjórnin skipaði forstjóra sjóðsins, en aftur á móti halda fast við það ákvæði, að gæslustjórarnir skyldu skipaðir samkv. till. búnaðarþingsins.

Þar sem hæstv. stjórn hefir nú lagst svo fast á móti þessari einróma ósk búnaðarþingsins, þá vekur það tortrygni hjá mjer og hlýtur að hafa áhrif á atkv. mitt um, hvernig stjórn sjóðsins skuli skipað fyrst um sinn.

Enginn, sem átti sæti á síðasta búnaðarþingi, gat skilið orð þeirra hæstv. ráðherra, sem þar komu, á annan veg en þann, að samkomulagi væri náð um það, að búnaðarþingið fjelli frá kröfunni um, að öll stjórn sjóðsins skyldi skipuð samkv. till. þess, en í þess stað skyldi farið eftir till. þingsins um skipun gæslustjóranna. (Atvrh. MG: Já; búnaðarþingið á að hafa tillögurjett). í lögum þýðir það yfirleitt, að farið skuli eftir tillögunum, en þær ekki lagðar á hilluna hvenær sem hæstv. stjórn býður svo við að horfa.

Við hæstv. atvrh. (MG) vorum báðir staddir á búnaðarþinginu og jeg lagði þennan skilning í ummæli þau, sem þar fjellu, og mjer er kunnugt um, að sami var skilningur annara fulltrúa á þinginu. Mjer dettur reyndar ekki í hug að segja, að hæstv. atvrh. fari með ósatt mál, þó að hann mótmæli nú þessum skilningi, en þetta hefir þá farið einhvernveginn á milli mála hjá honum. En andstaða hæstv. stjórnar gegn skilningi búnaðarþingsins vekur tortrygni hjá mjer og hvetur mig til að greiða þeirri till. atkv., sem kveður svo á, að forstaða sjóðsins skuli fengin Landsbankastjórninni til að byrja með.

Ennfremur er annað atriði, sem hefir dálítil áhrif á mig í þessu efni.

Það er hugsun margra, að væntanlegur fasteignaveðbanki, sem ræktunarsjóðurinn verði aðalliðurinn í, verði með tímanum ein virðulegasta stofnun í landinu; honum verði m. a. fenginn seðlaútgáfurjetturinn í hendur. Þessi hugsun hefir verið látin uppi af eftirlitsmanni banka og sparisjóða hjer í hv. deild, og í hv. Ed. hafa tveir hv. þm. látið í ljós sömu skoðun, og er annar þeirra fyrverandi en hinn núverandi bankastjóri. Má því ætla, að þessi till. sje ekki alveg út í bláinn, þó að jeg vilji að svo stöddu engan dóm á leggja.

En eigi þetta svo að verða, þá hvetur það mig til að ljá því ekki fylgi, að nú þegar verði skipuð dýr stjórn við ræktunarsjóðinn, ef hugsanlegt er, að hann skuli sameinaður fasteigna- og seðlabanka síðar meir.

Þess vegna vil jeg vara hv. frsm. (ÁJ) við því að draga þá ályktun af orðum mínum, sem hann hefir gert.

Við 2. umr. hefði jeg verið á móti þessari till. hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ), ef hún hefði þá legið fyrir. En samkomulagið við stjórn Landsbankans, og þó einkum hinn þungi andróður hæstv. stjórnar og háttv. frsm. gegn því, að fulltrúar bænda skuli hafa skilyrðislaus áhrif á skipun stjórnar sjóðsins, hefir þau áhrif á mig, að jeg mun geta sætt mig við, að stjórn Landsbankans sje falin forstaða ræktunarsjóðsins í bili.