28.04.1925
Efri deild: 62. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1903 í B-deild Alþingistíðinda. (1031)
27. mál, Ræktunarsjóður Íslands
Fjármálaráðherra (JÞ):
Frv. þetta, sem var lagt fyrir hv. Nd., hefir nú gengið í gegnum þá deild með ekki mjög miklum breytingum. Það gæti að vísu verið ástæða til þess að fara nokkrum orðum um slíkt mál sem þetta frá almennri hlið nú við 1. umr. En sökum þess, hve áliðið er, hliðra jeg mjer hjá því. En hvað snertir einstök atriði, þá tel jeg rjettara, að umr. um þau bíði eftir því, að þau verði athuguð í nefnd. Þetta frv. var í Nd. sett í landbúnaðarnefnd, og leyfi jeg mjer að leggja það til, að svo verði einnig gert hjer.