07.05.1925
Efri deild: 70. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1917 í B-deild Alþingistíðinda. (1039)
27. mál, Ræktunarsjóður Íslands
Guðmundur Ólafsson:
Það eru nokkuð skiftar skoðanir um það hjá hv. þm., hvað mikið sje í það varið, að frv. þetta verði að lögum. Jeg geri mjer vonir um, að talsverð bót sje að því, að það fái að ganga fram, jafnvel þó eitthvað smávegis megi að því finna. Er það gagnstætt því, sem hv. 1. landsk. þm. (SE) heldur fram, þegar hann vill láta frv. bíða vegna þess að væntanleg bankamálanefnd geti komið að notum við athugun málsins. En þó slík nefnd væri máske fær um að koma með einhverjar brtt., sem til bóta væru fyrir frv., þá veit maður samt ekkert, hvað mikið væri mist, þó hún fengi ekki málið til meðferðar, því oft hefir það reynst úrgangssamt, sem komið hefir frá milliþinganefndum, engu síður en hjá þingnefndum. Mín skoðun er nú sú, að þetta frumvarp sje hið besta, sem fyrir þessu þingi hefir legið, og jeg tel illa farið, ef þingið bæri ekki gæfu til að leiða það til lykta. Hv. frsm. landbn. (EP) og hv. 1. landsk. (SE) bar mikið á milli hvað þetta snertir. En mjer finst líka, að háttv. landbn. sje ekki fast í hendi að fá frv. þetta samþykt, úr því hún kemur með svona brtt. Þær eru flestar smávægilegar, en geta hinsvegar tafið fyrir málinu.
1. brtt. hv. nefndar slær fastri krónuupphæð, og fæ jeg ekki sjeð, að það skifti miklu máli. 2. brtt. er ef til vill fremur til bóta. Eru þar vextirnir fastar ákveðnir. En hvað 3. brtt. viðvíkur, þá er jeg satt að segja á móti hv. nefnd. Jeg skil ekki, að það sje illa til fundið, að gæslustjórar sjóðsins sjeu skipaðir samkv. till. búnaðarþings. Þar eru hvort sem er þeir menn samankomnir, sem ekki síst ættu að bera skyn á, hvað sjóðnum er fyrir bestu, og því ekki treystandi síður en þingi og stjórn til að sýna hyggindi í vali sínu. Þá vill hv. nefnd fella burt 34. gr. frv., sem heimilar að sameina ræktunarsjóðinn væntanlegum ríkisveðbanka. Jeg held, að þar sem það er svo lítið fje, sem ríkisveðbankinn byrjar með, ef hann verður stofnaður, þá gerist ekki nauðsynlegt að hafa tvær bankastjórnir fyrir þessum tveim stofnunum. (SJ: Sjóðurinn á að vera sjálfstæð stofnun). Það verður sjóðurinn eftir sem áður. Háttv. frsm. (EP) sagði raunar, að ef þetta þætti betra, þá mætti setja ákvæði inn í ríkisveðbankalögin um, að þessi stofnun hyrfi undir stjórn hans. En hvað er það betra? í öðru lagi held jeg, að við þörfum ekki að setja það fyrir okkur, þó einhverju þyrfti að breyta í þessum lögum á næsta þingi. Og jeg get ekki skilið, hvers vegna fylgismenn þessa frv. óska, að það fari aftur til hv. Nd., ef þeim er umhugað um, að það gangi fram. Það er ekki svo margt, og síst svo gott, sem eftir þetta þing liggur, að jeg get vel unnað því, að þetta ágæta mál komist fram.