07.05.1925
Efri deild: 70. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1918 í B-deild Alþingistíðinda. (1040)

27. mál, Ræktunarsjóður Íslands

Fjármálaráðherra (JÞ):

Hv. 1. landsk. (SE) hafði ýmislegt út á þetta frv. að setja. Fyrst og fremst kom hann með þessa alkunnu mótbáru út af veðdeildartilhöguninni, um verðfall á brjefunum og ljeleg vaxtakjör. En í frv. eru einmitt ákvæði, sem ekki standa í lögunum um veðdeild Landsbankans, og er þeim ætlað að fyrirbyggja, eftir því sem unt er, að slík óþægindi geti átt sjer stað. í veðdeildinni eru nefnilega vextirnir fastir fyrir hvern flokk brjefanna og vaxtakjörin geta tekið þeim breytingum, að hlutfallið milli almennra vaxta og vaxta af brjefunum verði ekki rjett. En eftir þessu frv. má breyta til og loka hverjum flokki og byrja nýjan með nýjum vaxtakjörum hvenær sem er. Þetta er stórt atriði.

Þá hefir hv. nefnd lagt mikla áherslu á það, að brjefin seljist sem næst nafnverði. í stjórnarfrv. var stungið upp á, að vextir brjefanna í 1. flokki væru ákveðnir 6%, en þótt það hafi verið felt úr frv., vegna þess að almenn vaxtalækkun sje hugsanleg, þá mun samt ráð fyrir því gert, að vextirnir verði þetta háir, ef aðstaða breytist ekki, til þess að brjefin seljist sem næst nafnverði. Auk þessa er svo ákveðið, að ef ekki þykir hentugt eða ráðlegt að stöðva einhvern flokk brjefanna, vegna almennrar vaxtabreytingar, þá þurfa afföllin ekki að ganga út yfir lántakanda, því það er heimilt að taka tillit til affallanna við ákvörðun lánsupphæðarinnar. Held jeg, að með þessu móti sje eins fyrirbygt og hægt er, að þeim, sem lán taka úr þessum sjóði, verði afföllin til tjóns.

Þá hefir sami háttv. þm. (SE) komið með þá mótbáru, að sala vaxtabrjefanna sje á engan hátt trygð, og fjárútvegunin til sjóðsins sje þess vegna óleyst mál. En svo er það auðvitað með hverja veðlánastofnun áður en hún byrjar. En á hinn bóginn er í frv. gert það, sem unt er, til að brjefin verði sem útgengilegust, og meira en rjett væri að gera um tilsvarandi vaxtabrjef almennra veðlánastofnana. Stjórnin leit svo á, að hjer væri um það að ræða að fullnægja sjerstakri þörf, sem væri ríkari en alment gerist um slíkar stofnanir, og því væri í alla staði forsvaranlegt, að ríkið legði meira fram af sinni hálfu en rjett væri annars. Hafa og báðar deildir þingsins fallist á þennan skilning. Þess vegna er til þess ætlast, að ríkið leggi stofnuninni til allmikið sjálfseignarfje, sem veðdeild Landsbankans hefir starfað án. Sjálfum Landsbankanum hafa með lögum aðeins verið lagðar 2 milj. kr., en þessi stofnun byrjar með 2400000 kr. sjálfseignarfje, fyrir utan andvirði óseldra þjóðjarða. Ennfremur er tekin full ríkissjóðsábyrgð á brjefunum, til að gera þau seljanlegri. Þetta taldi hv. 1. landsk. (SE) vera ógætilega fjármálapólitík, og skal jeg játa, að það var fyrst eftir langa og nákvæma yfirvegun, að stjórnin tók það ákvæði upp í frumvarp sitt. Var það mest gert eftir bendingu þess útlenda manns, sem verið hefir ráðunautur stjórnarinnar í bankamálunum um langt skeið. Jeg hafði gert ráð fyrir, og búnaðarfjelagsnefndin tekið upp í frv. sitt, að ríkissjóður ábyrgðist 25% af verði brjefanna. En þá var stjórninni rjettilega bent á, að eins gott væri að stíga skrefið fult, því erfitt væri að setja takmörk fyrir því, hvenær ætti að hætta að greiða, ef ábyrgðin hljóðar upp á og auk þessa er stofnunin ríkiseign. Því var þessi ákvörðun tekin eftir nákvæma yfirvegun, og má nú segja, að þessi brjef sjeu eins boðleg ytra eins og frekast má verða, því þau eru eins vel trygð og á verður kosið. Hinsvegar álít jeg, að ekki beri að sækjast eftir því, að þau seljist mikið til útlanda fyrst um sinn, þar sem ætla má, að nægilegt fje sje fyrir hendi innanlands.

Hvað sölu brjefanna snertir að öðru leyti, þá hefir hún talsvert verið undirbúin. Það hefir verið samið við stjórn Landsbankans um, að bankinn keypti að minsta kosti fyrir 100000 kr. á ári í 14 ár, og þar fram yfir eftir því sem ástæður bankans leyfa, og stuðli að öðru leyti að sölu brjefanna; sömuleiðis að hann kaupi veðbrjefin með nafnverði, ef vextir þeirra eru 1% yfir sparisjóðsvexti. En fari þau eitthvað niður fyrir nafnverð, þá mega þau samt ekki seljast lægra verði en ráðherra samþykkir. Þá má ennfremur nefna ákvæðin í 15. gr. frv., sem heimila sparisjóðnum greiðan aðgang að þessum brjefum, þar sem ætlast er til, að þau verði jafnan fyrirliggjandi. Enn mætti nefna nokkur atriði þessu viðvíkjandi í frv., sem jeg fer ekki frekar inn á. Verð jeg aðeins að lýsa yfir því áliti mínu, að flest sje gert, sem hægt var að gera, til tryggingar því, að sjóðurinn hafi nægilegt fjármagn þegar í byrjun.

Hv. frsm. (JJós) hefir svarað að fullu athugasemdum hv. 1. landsk. (SE) viðvíkjandi heimildinni til sameignar sjóðsins við ríkisveðbankann væntanlega. En út af því, sem hv. 1. landsk. (SE) og hv. þm. A.-Húnv. (GÓ) sögðu um skipun gæslustjóra sjóðsins, þá skal jeg láta mjer nægja að svara því einu, að það fer ekki vel á því, að við svona stofnun, þar sem 3 menn eru í stjórn, sjeu báðir gæslustjórarnir útnefndir af samkundu, sem er skipuð fulltrúum annars aðiljans einungis, nefnilega lántakenda. Brjefakaupendur, eða hinir raunverulegu lánveitendur, hafa vissulega líka sanngirniskröfu til þess, að einnig sje tekið tillit til hagsmuna þeirra. Hinsvegar myndi jeg ekki hafa á móti því, þó hjer yrði farið eftir sömu reglu sem við kosningu gæslustjóra Landsbankans, að Alþingi veldi þá báða. Þó segir það sig sjálft, að um skipun gæslustjóranna myndi jafnan verða leitað álits Búnaðarfjelags Íslands, ef stjórnin ætti að velja þá, og er hjer því síst að ræða um nokkurt vantraust til búnaðarþingsins frá minni hálfu. Mjer þykir aðeins rjett að benda á, að hjer eigi fleiri en lántakendur hagsmuna að gæta, og er ekki rjett, að þeir hagsmunir sjeu settir til hliðar í lögunum sjálfum.

Þá vildi jeg ennfremur segja, að hv. frsm. (EP) ljet ofmælt um eitt atriði, og á jeg við það, er hann sagði, að brjefin væru einskisvirði, ef ábyrgð ríkisins væri ekki að baki þeim. Jeg hefi meira traust á brjefunum sjálfum en þetta og álít svo mikla tryggingu vera fólgna í veðunum og sjálfseign sjóðsins, að ekki þurfi að óttast, að ríkið bíði tjón af ábyrgðinni.

Út af orðum hv. þm. A.-Húnv. (GÓ) vil jeg að lokum taka það fram, að ekki má gera ráð fyrir, að tiltækilegt þyki að breyta lögum þessum á næsta þingi. Lög um stofnanir sem þessar eru sjerstaks eðlis, og þegar búið er að gefa út vaxtabrjefin, þá má í engu rýra tryggingu þeirra með breyttri löggjöf, fyrri en þau brjef eru öll leyst inn.