12.02.1925
Neðri deild: 5. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1936 í B-deild Alþingistíðinda. (1059)
20. mál, verðtollur
Fjármálaráðherra (JÞ):
Eins og greint er frá í aths. við þetta frv., er farið fram á framlenging laganna um bráðabirgðaverðtoll á nokkrum vörutegundum um þrjá mánuði, til þess að þau geti komið til athugunar á næsta þingi, án þess að þau falli úr gildi meðan á endurskoðun þeirra stendur. Það þarf ekki að rökstyðja það frekar, að það mega engin tolllög falla úr gildi um stutta stund; þau verða því að falla úr gildi fyrir fult og alt, ef ekki á að framlengja þau. Jeg vona, að háttv. deild hafi sannfærst um það af fjárlagafrv. fyrir árið 1926, af yfirliti því, sem jeg gaf yfir hag ríkissjóðs 1924, og annari greinargerð, að ríkissjóður má alls ekki missa af þessum tekjuauka í lok þessa árs, ef greiða skal lausaskuldir ríkisins á fáum árum. Tekjurnar mega á engan hátt skerðast fyr en skuldirnar eru greiddar að fullu.
Annars vil jeg nota tækifærið til þess að minnast nánar á þessi lög og framkvæmdir þeirra. Það er sannfæring mín, að sú upphæð, sem tollurinn gaf ríkissjóði, hefði ekki náðst inn á annan hátt, sem minna tilfinnanlegur var fyrir þjóðina í heild eða einstaklinga. Það má öllum vera ljóst, að það er ekki unt á ná inn 800–900 þús. kr. á % árs án þess, að það verði þó alltilfinnanlegur byrðarauki gjaldendum. Þetta var hægasta aðferðin, en auk þess hafa hagfeldar kringumstæður stuðlað að því, að verðtollurinn hefir ekki orðið eins þungbær og hann hefði mátt verða. Íslenska krónan hefir nú hækkað svo í gengi, að lækkunin á gengismuninum vegur nú nokkurn veginn á móti verðtollinum. Nú þurfa menn ekki að gefa fleiri ísl. krónur fyrir vöru að viðbættum verðtolli en varan kostaði án verðtolls fyrir árs. Jeg hefi orð eins stórkaupmanns fyrir því, að þessi verðtollur sje ekki svo ákaflega þungbær, þar eð gengishækkun ísl. krónunnar næstum jafnist á við tollinn.
Þá er atriði, sem jeg veit, að hefir valdið óánægju, — að verðtollurinn er lagður á vörur, sem í sjálfu sjer er miður sanngjarnt, að tollaðar sjeu, og hefir sú óánægja því við nokkur rök að styðjast. Jeg hefi orðið þess var, að stjórninni er legið á hálsi fyrir að veita ekki undanþágur fyrir vörur, sem sjáanlegt var, að ósanngjarnt var að menn greiddu toll af. En í lögunum er engin heimild til þess að veita undanþágur, nema á efnivörum til innlends iðnaðar. Jeg tók því þegar í byrjun þá stefnu að láta lögin vera lög og veita alls engar undanþágur aðrar en þær, sem lögin beinlínis heimila. Þegar farið er að veita undanþágur frá lögum, sem engin heimild er fyrir, er komið út á hála braut, sem engri stjórn er hent að hætta sjer út á. Jeg hefi því látið lögin standa og engar undanþágur veitt aðrar en þær, sem lögin sjálf heimila. Skal jeg nú skýra frá, hvernig jeg hefi framkvæmt þær: Þegar hin tilbúna vara, flutt inn frá útlöndum. er verðtolluð, hefi jeg yfirleitt ekki veitt innlendum iðnaðarfyrirtækjum undanþágu frá verðtolli á efnum til þeirrar vöru, enda eru aðalefnin venjulega tollfrjáls, svo sem trjáviður í trjesmíðavörur. Jeg sá þá ekki ástæðu til að veita undanþágur fyrir ýms aukaefni, er þarf til smíðanna, þar eð jeg áleit lögin sjálf fela í sjer næga vernd fyrir þennan iðnað. Aftur á móti taldi jeg mjer skylt, þegar tilbúna varan fjell ekki undir verðtollslögin, að veita innlendum iðnaði ívilnanir í undanþágum frá tolli á þeim efnivörum, sem hann þarfnaðist, og eigi síst er löggjafarvaldið hefir sýnt, að það vill hlynna að iðnaðargrein þeirri, er um ræðir.
Það má ávalt telja upp einstakar vörutegundir, sem ósanngjarnt sje að verðtolla; en það eru til margar tegundir af nauðsynjavörum, sem í rauninni eru lítið notaðar af hverjum einstaklingi, svo að tollurinn nemur ekki hárri upphæð og dreifist á marga, svo engum verður mjög tilfinnanlegt. Í einu tilfelli er verðtollurinn mjög tilfinnanlegur og er þar þörf umbóta á þessari löggjöf. Verðtollurinn á vjelum og tækjum til stofnsetningar og stækkunar iðnaðarfyrirtækja hefir fælt menn frá að ráðast í ný fyrirtæki, sem vjela þarf við, eða stækka og auka þau, sem fyrir voru. Jeg hefi heldur ekki sjeð mjer fært að veita undanþágur í þessum efnum, þar eð lögin heimila það alls ekki, en greiðslufrest á tolli hefi jeg veitt í þrem sjerstökum tilfellum, þar til Alþingi ynnist tími til að fjalla um þetta mál.
Að öðru leyti er jeg fús til að veita hverjum háttv. þm. sem vill upplýsingar um þá stuttu reynslu, sem þessi lög hafa þegar fengið, og einnig er jeg fús til samninga um breytingar á verðtollinum, án þess þó að rýrðar verði tekjur ríkissjóðs fyrir þá sök.