12.02.1925
Neðri deild: 5. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1942 í B-deild Alþingistíðinda. (1061)

20. mál, verðtollur

Fjármálaráðherra (JÞ):

Jeg hefi í raun og veru litlu að svara hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ). Hann hefir lýst yfir því, að hann vilji, að frv. verði athugað í nefnd og vill jafnvel fallast á, að verðtollinum verði haldið í gildi áfram að nokkru leyti, eða a. m. k. hefir hann fallist á, að lögunum verði breytt, án þess að skerða við þá breytingu tekjur ríkissjóðs.

Hv. þm. (ÁÁ) hjelt því fram, að verðtollurinn hefði ekki verið settur á í þeim tilgangi að greiða með honum lausaskuldir ríkissjóðs, heldur eingöngu til þess að jafna tekjuhalla fjárlaganna. Jeg vil þó vona, að ekki sje meining hv. þm. að liggja stjórninni á hálsi fyrir það, að tekist hefir, með aðstoð verðtollsins, að greiða 600–700 þúsundir af lausaskuldunum á liðna árinu. Annars get jeg ekki kannast við, að ástandið sje mjög breytt frá því á síðasta þingi, þó að lausaskuldirnar hafi minkað úr 4% milj. niður í rúmar 4 milj. kr. Við verðum að horfast í augu við þann sannleika, að þessar 4 miljónir verður að greiða með einhverju móti. Og meðal þessara lausaskulda er a. m. k. ein, sem kjósendur hv. þm. (ÁÁ), Vestur-Ísfirðingar, munu hafa fulla einurð á að krefja endurgoldna, sem sje lánið úr landhelgissjóði, sem nemur um 840 þús. kr. Þá skuld verður að endurgreiða alla, og það helst mjög bráðlega. Og svona má lengur telja. Menn verða ennfremur að gera sjer það ljóst, að þessar skuldir verða ekki greiddar nema með tvennu móti. Annaðhvort verður að afla ríkissjóði tekna í því skyni, eða þá að taka ný lán. Jeg hefi áður lýst skoðun minni á því, hvora leiðina jeg vil kjósa. Nei, ástandið er harla lítið breytt meðan við höfum þessar 4 miljónir hangandi yfir höfðum okkar. Tekjuafgangurinn árið sem leið hefir fengist með því að pína niður, svo sem frekast hefir unt verið, öll útgjöld ríkissjóðs; aðallega á þann hátt að skera niður með harðri hendi allar verklegar framkvæmdir. En því una menn ekki til lengdar. Ef útgjöld ríkissjóðs verða í næstu fjárlögum færð í svipað horf og þau voru árið 1923, þá má hann ekki missa eyri af verðtollinum, jafnvel þó að ekkert verði hugsað til afborgana af lausaskuldunum.

Jeg hygg, að jeg fari rjett með það, að sú var hugsun fjhn. þessarar hv. deildar, þegar hún bar fram verðtollsfrv. í fyrra, að það gæfi ríkissjóði tekjuauka, sem samsvaraði þeirri upphæð, sem þá var fyrirsjáanlegt, að gjöld ársins 1923 færu fram úr tekjum sama árs.

Spurningin, sem nú liggur fyrir, er sú, hvort enn eigi að fresta öllum verklegum framkvæmdum, eða taka lán til greiðslu lausaskuldanna. En hvorug leiðin leyfir, að tekjur ríkissjóðs verði rýrðar nokkurn skapaðan hlut.

Hv. þm. (ÁÁ) talaði um það, að tekjur ríkissjóðs ykjust og hægt yrði að afgreiða tekjuhallalaus fjárlög, ef frv. um breytingar á tekjuskattslögunum, sem nú liggur fyrir þinginu, nái ekki fram að ganga, því að þá megi skattleggja gróða síðasta árs óskertan. Jeg veit varla, hvað háttv. þm. meinar með þessari röksemd. Skattur sá, sem lagður verður á árið 1926, fer vitanlega eftir tekjum þessa árs, sem nú er nýbyrjað og enginn veit, hvað geymir í skauti sínu. Væri því óforsvaranlegt að hækka áætlunina um tekjuskatt árið 1926, þó að hann kunni að verða talsvert hærri á þessu ári en gert er ráð fyrir í núgildandi fjárlögum.

Þá vildi háttv. þm. (ÁÁ) leysa alþýðu manna að sem mestu undan þessum þungbæra skatti, verðtollinum. Jeg þori nú að fullyrða, að fyrir alla alþýðu þessa lands er verðtollurinn tiltölulega ljettbær skattur í hlutfalli við tekjuauka þann, sem ríkissjóður nýtur vegna tollsins. Því sannarlega kemur hann ekki mjög þungt niður á öllum almenningi, heldur einkum þeim, sem leyfa sjer að eyða fje sínu til þess að kaupa fyrir það miður nauðsynlegan varning. Þó er ekki hægt að neita því, að verðtollur hvílir nú á aragrúa nauðsynja, en það eru einkum vörur, sem hver einstaklingur notar tiltölulega mjög lítið, miðað við allar lífsnauðsynjar manna.

Þó að okkur hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ) beri ýmislegt á milli, þá get jeg þó í aðalatriðunum tekið afstöðu hans sem samningsgrundvöll um þessi efni, og vil jeg treysta því, að hv. nefnd, sem fær frv. til meðferðar, sýni rjettan skilning í því efni, að ástæður ríkissjóðs leyfa engan veginn, að tekjur hans minki frá því sem nú er.