12.02.1925
Neðri deild: 5. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1944 í B-deild Alþingistíðinda. (1062)
20. mál, verðtollur
Ásgeir Ásgeirsson:
Það fer fjarri því, að jeg hafi álasað hæstv. stjórn fyrir að 11/2 milj. kr. tekjuafgangur hafi orðið á síðasta ári. Það, sem jeg vildi segja í sambandi við frv. þetta, er einkum það, að tekjuafganga framtíðarinnar á ekki að taka með verðtolli af nauðsynjavörum, slíkum sem nú á sjer stað. Og jeg veit, að flestum er það ljóst, að tekjuafgangs má afla með öðru móti. Nú eru breyttir tímar og tekjulindir teknar að streyma, sem voru uppþornaðar, þegar verðtollslögin voru sett.
Því til sönnunar, að ekki hafi sú verið meiningin, þegar verðtollurinn var settur, að láta hann ganga til greiðslu lausaskulda ríkissjóðs, heldur einungis til þess að jafna með honum tekjuhalla fjárlaganna, vil jeg, með leyfi hæstv. forseta, lesa nokkur orð, sem hæstv. atvrh. (MG) let falla hjer í fyrra, þegar rætt var um verðtollsfrv.:
„Jeg tel, að ekki megi ganga lengra en svo (í innflutningshöftunum), að það sje trygt, að reikningur landsins fyrir árið 1924 sje tekjuhallalaus.“
Er með þessum orðum átt við, að undanþágur beri að veita svo ríflega, að verðtollur af undanþegnum vörum hrökkvi til að jafna tekjuhallann.
Jeg gæti bent á ýms ummæli önnur, sem sýna ljóslega, að tilgangurinn með verðtollinum var sá einn, að ekki yrði halli á landsreikningnum árið 1924. Og þeim grundvelli vil jeg gjarnan halda framvegis.
Hæstv. fjrh. (JÞ) mintist á landhelgissjóðinn í þessu sambandi og kvað þurfa að endurgreiða hann. Það er alveg rjett. En jeg er þess fullviss, að það er fæstra hugur, að hann verði endurgreiddur með verðtolli af nauðsynjavöru. Og það er einungis slíkur tollur, sem jeg hefi á móti. Annars var sá ráðherra, sem greip til landhelgissjóðsins, áfeldur fyrir að hafa ekki heldur tekið lán en að láta sjóðinn verða að eyðslufje, og hefir þó sennilega aldrei verið örðugra um lántökur en einmitt þá. Sýnist mjer það ráð vænlegra að láta ríkissjóð endurgreiða landhelgissjóðinn hið allra bráðasta, heldur en að hafa hann stöðugt að hnútukasti í pólitískum tilgangi. Hafði jeg jafnvel hugsað mjer að bera á þessu þingi fram þáltill. um, að sjóðurinn verði endurgreiddur þegar á þessu ári, á þann hátt, er stjórnin teldi heppilegastan. En jeg get látið mjer nægja að skora á hæstv. stjórn að verða við þessum óskum mínum og alls þorra landsmanna nú á þessu ári, jafnvel þó að kosti lántöku. Lögunum um landhelgissjóðinn er ekki fyllilega framfylgt fyr en sjóðurinn er endurgreiddur.
Jeg hefi aldrei haldið því fram, að tekjuskattur árið 1926 yrði hærri vegna stórgróða útgerðarinnar á síðastl. ári. Jeg átti aðeins við það, að tekjuskattur hlyti að fara nokkuð langt fram úr áætlun á yfirstandandi ári, og gæti því komið til uppbótar á þessu ári fyrir verðtoll af nauðsynjavörum, sem jeg vil afnema nú þegar.
Jeg benti áðan á nýjan skatt, sem vega mundi talsvert upp á móti tekjuauka þeim, sem ríkissjóður hefir af verðtolli þessum í þá 3 mánuði, sem framlenging verðtollslaganna nemur samkv. þessu frv. Á jeg þar við frv. hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) á síðasta þingi, um að heimila áfengisverslun ríkisins að leggja mun meira á áfengi en nú er gert. Og býst jeg varla við, að nein veruleg vandræði verði að benda á enn nýjar leiðir til að afla ríkissjóði tekna í stað hins afarrangláta verðtolls á nauðsynjum almennings.