28.04.1925
Neðri deild: 66. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1953 í B-deild Alþingistíðinda. (1070)
20. mál, verðtollur
Jakob Möller:
Eins og hv. þdm. sjá, hefi jeg borið fram nokkrar brtt. við frv. þetta, en aðaltill. mín er þess efnis, að færa þennan almenna verðtoll úr 20% niður í 15%. Mjer skildist hv. frsm. (MJ) telja þetta miklu gagngerðari breyting en hv. meiri hl. fer fram á. En í raun og veru eru breytingar meiri hl. miklu gagngerðari en mínar. Með breytingum meiri hlutans er komið inn á nýja leið. Upphaflega var til tolls þessa stofnað sem neyðarúrræðis, til þess að ná tekjum í ríkissjóð til bráðabirgða, og því af ásettu ráði reynt að hafa fyrirkomulagið sem einfaldast. Þess vegna var ekki heldur borið við að skifta vörunum í tollflokka. En af breytingartill. hv. meiri hl. er helst svo að sjá, sem tolli þessum sje ætlað að vera til frambúðar. En það er þýðingarlaust að vera að deila um þetta. Það, sem fyrir mjer vakir, er það, að með því að setja 15% í stað 20% er mun einfaldari framkvmdin fyrir þá, sem innheimtuna og eftirlitið eiga að hafa. Þó að tekið sje undan eitthvert hrafl af nauðsynlegum vörutegundum og tollur af því lækkaður niður í 10%, eins og meiri hl. gerir, þá verður hinsvegar altaf svo og svo mikið eftir, sem er eins nauðsynlegt og jafnvel nauðsynlegra, sem sett er undir 20%. Jeg get bent á einn flokk, sem mikið munar um, en það eru vefnaðarvörur, þar á meðal t. d. nauðsynleg slitföt og slitfataefni. Það er engu minni ástæða til þess að taka þessar vörur í c-flokkinn en þær vörur, sem hv. meiri hl. hefir sett þar. Þessi sundurliðun hv. meiri hl. er því bara fálm út í loftið. Það liggur í hlutarins eðli, að það mætti taka þessar vörutegundir og sundurliða í mismunandi tollflokka, og það með meiri sanngirni en hjer er gert, en þá verður stofnað til meiri vinnu fyrir eftirlitsmennina, svo að vafasamt er, að það borgaði sig, enda er hætt við, ef full sanngirni væri viðhöfð, að þá mundi tollurinn rýrna of mikið. Jeg þori að fullyrða, að ef tollurinn er færður niður í 15%, mundu tekjurnar þó hinsvegar ekki rýrna mikið fram yfir það, sem þær gera með 10% tollflokki hv. meiri hl. Jeg vil geta þess, að tekjur af tollinum munu á þessu ári og næsta, ef árferði verður líkt, verða miklu meiri en þær voru 1924. Mjer er sagt með vissu, að tekjur af þessum tolli hafi fyrsta ársfjórðunginn nú verið helmingi meiri en þær voru fyrsta ársfjórðunginn, sem lögin voru í gildi í fyrra.
Hjer við bætist, að í fjárlagafrv. er tollurinn mjög varlega áætlaður. Er gert ráð fyrir 800 þús. kr., eða viðlíka hárri upphæð sem hann nam á 3 ársfjórðungum síðastl. ár. Er því engin hætta, að tollurinn standist ekki þá áætlun, þó að hann verði lækkaður ofan í 15%.
En ef það er annars meining þingsins, að ríkissjóður fái miklu meira en 800 þús. kr. verðstollstekjur, þá finst mjer rjett, að það komi í ljós, m. a. í fjárhagsáætluninni. Að öðrum kosti ber áætlunin keim af því, að telja eigi fólki trú um, að tollurinn sje svo lítill, en svo eigi að koma aftan að mönnum og taka langtum meira en látið er í veðri vaka.
Hv. frsm. (MJ) sagði, að óheilbrigt væri að vita ekki nokkurnveginn með vissu, hversu mikill verðtollurinn verði árið 1926, vegna fjárhagsáætlunarinnar. Jeg verð nú að segja, að í þessu efni erum við litlu nær með breytingum hv. meiri hl., nema síður sje, þar sem sú röskun á flokkuninni, sem hv. meiri hl. vill gera, gerir upphæð tollteknanna mun óvissari en þó að hundraðsgjaldið verði lækkað.
Með því að fara að eins og jeg legg til. þá vita menn betur, hversu mikill tollurinn verður í heild en þegar vörunum er flokkað í ótal flokka. Þess vegna er tvímælalaust meira „rationelt“ fyrir ríkissjóð, að farið verði eftir mínum till. en eftir till. hv. meiri hl.
Þegar jeg lít yfir 10%-flokk hv. meiri hl., þá blandast mjer ekki hugur um, að öllum almenningi kæmi betur að fá lækkaðan tollinn um 5% alment, en í þess stað yrði þessi flokkur hækkaður um 5%. m. ö. o. tollurinn yrði 15%, eins og till. mín fer fram á. Gagnvart almenningi vegur vefnaðarvöruflokkurinn einn fullkomlega á móti ívilnun alls 10%-flokksins.
Jeg skal játa, að till. mín hefir líklega í för með sjer nokkra tekjurýrnun, samanborið við till. hv. meiri hl., en ef miðað er við síðastl. ár, þá efast jeg um, að tekjurnar rýrni nokkuð, því án efa verður vöruinnflutningsmagnið meira í ár og á næsta ári. Auk þess hefi jeg ekki treyst mjer til að gera till. um annað en að 30% flokkur hv. meiri hl. fái að standa, en hann gefur einhverjar auknar tekjur. Jeg hafði þó tilhneigingu til að fella þann flokk niður, ekki vegna vörutegundanna, sem í honum eru, heldur vegna tolleftirlitsins yfirleitt.
Þessum verðtolli hafa aldrei verið hugðir langir lífdagar. Hann er bráðabirgðatollur, sem settur var á í þeim tilgangi að ná vissum tekjum í ríkissjóð. Meðal annars var sagt í fyrra, að hann myndi aldrei gefa meira en 1 miljón eins og lögin voru þá úr garði gerð. Það er nú sýnilegt, að sú upphæð fæst og langtum meira.
Ef við nú eigum að losna við þennan toll, þá er sjálfsagt heppilegasta leiðin að lækka hann frá ári til árs. Verði sú leið farin, þá stendur tollurinn að nokkru leyti í 3–4 ár enn, þó að hann fari stiglækkandi, og á því eftir að gefa miklar tekjur, þó að hann verði lækkaður nú þegar.
Í till. minni hefi jeg ekki hreyft við tímatakmarki hv. meiri hl., svo að 15% tollurinn gengur í gildi 1. júlí næstk., ef till. verður samþykt. Nú getur verið, að menn kunni því ver, að tolllækkunin gangi svo fljótt í gildi, og má þá athuga það mál nánar til 3. umr. Um tímatakmarkið er jeg altaf fús til samkomulags.
Háttv. frsm. meiri hl. (MJ) sagði, að ekki væri hundrað í hættunni, þó að ýmsar vörutegundir væru á takmörkum 20- og 10%-flokkanna.
Jeg verð nú að segja, að ekki er hundrað í hættunni, þó að 10%-flokkurinn falli allur undir 15% toll, þegar þess er gætt, að samkv. till. hv. meiri hl. á fjöldi nauðsynjavara eftir sem áður að tollast með 20%.
Ef till. mín um 15% tollinn verður feld, þá sje jeg þó ekki betur en rjettast væri að falla alveg frá 10%-tollflokki hv. meiri hl., en láta 20% tollinn standa áfram óhaggaðan. Mætti það ef til vill verða til þess, að þá yrði hægara að koma fram lækkun á tollinum á næsta þingi. Þá mætti og fella einstöku vörutegundir, sem nú eru í b.-lið till. hv. meiri hl., þær, sem nauðsynlegastar kunna að þykja, alveg undan verðtolli, eða gefa landsstjórninni frekari undanþáguheimild.
Heimild stjórnarinnar í gildandi verðtollslögum til að undanþiggja efnivörur til iðnaðar tollinum má og vafalaust skýra nokkuð víðtækara en hæstv. núverandi stjórn hefir gert, enda væri það rjettara, m. a. vegna þess, að það gerði tollinn ekki alveg eins óvinsælan og hann hefir verið. í b.-flokki hv. meiri hl. hefi jeg orðið var við eina vörutegund, bókbandsefni, sem hæstv. stjórn hefir síðastl. sumar undanþegið verðtolli. Ef þessi till. nær samþykki og bókbandsefni verður tollað með 10%, þá er stigið öfugt spor við það, sem til mundi vera ætlast. Jeg veit ekki, hvort hv. meiri hl. hefir verið þetta ljóst.
Að vísu var undanþága hæstv. stjórnar ekki almenn, heldur náði hún aðeins til meðlima bókbindarafjelags Reykjavíkur og Akureyrar, en það mun nóg til þess, að „praktiskt“ tekið hefir alt innflutt bókbandsefni verið undanþegið verðtolli síðastl. ár.
Þess vegna finst mjer sjálfsagt að undanþiggja þessa vöru algerlega verðtolli, eins og jeg hefi komið með brtt. um. Þetta hefir auðvitað enga fjárhagsþýðingu fyrir ríkissjóð, en miðar að því, að allir verði í lögunum aðnjótandi sömu hlunninda. Jeg geri reyndar ekki ráð fyrir, að ágreiningur verði um þessa tillögu mína, því jeg get ekki skilið, að hv. meiri hl. vilji fá undir 10% flokk sinn vörur, sem nú er ekki greiddur af verðtollur.
Jeg þykist vita, að mönnum sje ljóst, hvað af aðalbrtt. minni myndi leiða, ef hún verður samþykt.
Ef til vill rýrna tolltekjurnar eitthvað, en fráleitt svo nokkru nemi frá því, sem þær voru síðastl. ár, en á hinn bóginn er með till. minni stofnað til meiri sanngirni en með till. hv. meiri hl., því að jeg vil lækka tollinn jafnt á öllum nauðsynjavörum, jafnvel þó örfáar miður nauðsynlegar vörur fljóti með, sem þó verða aldrei margar, eftir að a-flokkur hv. meiri hl. hefir verið sjerskildur.
Hinsvegar er alt eftirlit með tollgreiðslunni gert mun auðveldara, ef ekki er hafður neinn sjerstakur 10%-flokkur, því að það er vitanlegt, að með frekari sundurliðun eru auknir allir erfiðleikar við innheimtu tollsins, og eru þeir þó ærnir fyrir.
Af öðrum till. mínum vil jeg einkum minnast á till. um að undanþiggja hljóðfæri verðtolli. Háttv. þdm. mun sjálfsagt kunnugt, að þinginu hefir borist áskorun frá ýmsum hljómlistarmönnum um að undanskilja hljóðfæri verðtolli. Þeir fullyrða, að tollurinn verki nú sem algert innflutningsbann, sem hindri til muna allar hljómlistariðkanir í landinu. Hinsvegar getur hjer varla verið um svo nú inn innflutning að ræða, að ríkissjóður verði fyrir nokkrum verulegum tekjumissi við þessa breytingu. En það er augljóst, hversu tilfinnanlegt er einstaklingum, sem hafa hug á að eignast hljóðfæri, að þurfa að greiða af þeim stundum alt að 500 kr. toll, auk hins háa verðs, sem slíkir hlutir kosta.
Í rauninni er þessi tollur menningarfjandsamlegur, og því tæplega verjandi að halda honum áfram, enda skildist mjer í nefndinni, að samkomulag væri um að undanskilja þessi hljóðfæri verðtollinum, þó að hv. meiri hl. hafi síðar tekið þau upp í b.-liðinn og þau verði því tolluð með 10%, þegar sá flokkur kemst á laggirnar. Vissulega verður því ekki neitað, að talsverð linun er í því fólgin að setja 10% toll á hljóðfærin, í stað 20%, sem nú verður að greiða af þeim. En samt sem áður verður tollurinn svo hár, að hann hindrar að mestu efnaminni menn frá því að geta keypt sjer hljóðfæri. Jeg þarf ekki að lýsa því fyrir hv. þdm., hvílík híbýlabót er að slíkum tækjum, er menn geta notað til að stytta stundir daglega lífsins, sem því miður eru oft rökkur- og raunastundir, auk þess sem almenn hljómlistariðkun hefir tvímælalaust ómetanlegt menningargildi fyrir þjóðina. Með því að tolla hljóðfæri svo hátt, jafnvel þó ekki sje nema með 10%, er stefnt í þá átt, að það verði nokkurskonar sjerrjettindi hinna efnaðri landsmanna að hafa þau á heimilum sínum, og er það illa farið. Fyrir efnamenn hefir það ekki svo mjög mikla þýðingu, hvort þeir verða að greiða 100–200 eða jafnvel 500 kr. meira fyrir gott hljóðfæri, en sú upphæð getur gert efnalitla manninum ókleift að eignast það, hversu feginn sem hann vildi.
Jeg geri að vísu ráð fyrir, að jeg muni koma með einhverjar frekari brtt. við flokkunina við 3. umr., en þá er nógur tíminn að ræða þær.