28.04.1925
Neðri deild: 66. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1962 í B-deild Alþingistíðinda. (1072)

20. mál, verðtollur

Þorleifur Jónsson:

í fyrra, þegar verðtollurinn var samþyktur, munu margir hafa vonað þess, að þessi hái tollur þyrfti ekki að standa mjög lengi. Menn mundu hafa hikað við að greiða atkvæði með verðtollslögunum, ef menn hefðu búist við, að jafnþungur tollur og verðtollurinn óneitanlega er stæði árum saman. Verðtollurinn var lagður á með það fyrir augum að rjetta við fjárhag ríkissjóðs, og hafa víst flestir þingmenn búist við, að hægt yrði að ljetta honum af að einhverju leyti eftir stuttan tíma. Þá held jeg og, að þjóðin hafi vænst þess, að þetta þing mundi fremur sjá sjer fært að ljetta af tollum að einhverju leyti en halda þeim við. Þjóðin hefir fundið mjög til þyngsla af þessum tolli, því það má óhætt fullyrða, að 20% verðtollur á mjög mörgum nauðsynjavörum er þungur ábaggi fyrir þjóðina að bera, í viðbót við alla aðra skatta og álögur. En það átti ekki að auðnast að þessu sinni að losna við þennan ábagga, enda þótt gaman hefði verið að geta sagt, er þm. komu heim af þingi, að þarna hefðu þeir þó getað ljett álögum af þjóðinni, þar sem væri verðtollurinn. En hæstv. stjórn hefir ekki sjeð sjer annað fært en að bera fram frv. um framlengingu verðtollsins óbreytts eitt ár ennþá að minsta kosti, og hefir hún sjeð það fyrir, að ríkissjóður megi ekki við því að missa af þessum tekjustofni. En þegar litið er á það, að verðtollurinn liggur á öllum vörutegundum, svo að segja „holt og bolt“, þörfum og óþörfum, þá er það mjög leitt, ef hann þarf að vera í gildi í mörg ár ennþá, en það sjest auðveldlega í hendi, að úr því að verðtollurinn er framlengdur í ár, verður enn beðið um framlengingu hans á næsta þingi, og svoleiðis ár frá ári ef til vill. Það er nú enginn efi á því, að verðtollurinn er, eins og honum er fyrir komið, einhver allra þyngsti bagginn, sem hvílir á mönnum alment, af því að hann hvílir á mörgum nauðsynjavörum. Við hjer á þingi getum gert okkur nokkra grein fyrir því, hve þungur þessi tollur er á nauðsynjavörum, þar sem krafa hefir komið frá sjúkrahúsi á Ísafirði um uppgjöf á 3000– 4000 kr. verðtolli bara á ýmsum munum til spítalans. Þetta sýnir mjög ljóslega, hversu tilfinnanlegur þessi verðtollur er. Það væri því nauðsynlegt, einkum ef slíkir tollar sem þessi þurfa að standa árum saman, að taka til athugunar, hvort ekki sje hægt að koma þeim fyrir á einhvern annan og þægilegri hátt en nú er. Jeg skal játa, að hv. fjhn. hefir gert nokkra tilraun til að láta verðtollinn koma dálítið skár niður en áður, með því að flokka vörunum niður, eftir því hvað þær eru nauðsynlegar, og hafa mismunandi toll á vörum. En mjer finst þó ekki vera nógu langt gengið í þessu. Brtt. mínar vil jeg láta skoða sem bendingar til háttv. nefndar um það, hvort ekki muni þykja fært eða tiltækilegt að taka til nákvæmrar íhugunar flokkaskipunina, þannig að flytja ýmsar nauðsynjavörur í 10%-flokkinn. Aftur á móti sje jeg ekki eftir því, þó greiddur sje hár tollur af djásnum og skrautgripum og ýmsum öðrum óþarfavarningi, og jafnvel þó að hærri væri en 30%. Jeg vil geta þess, að jeg felli mig betur við till. hv. meiri hl. fjhn. um flokkun varanna heldur en að láta tollinn smálækka ár frá ári. Till. háttv. minni hl. bendir frekar í þá átt, að verðtollurinn eigi að standa að minsta kosti 3–4 ár ennþá, jafnt á þörfum sem óþörfum vörum, og það er þetta, sem jeg felli mig ekki vel við.

Viðvíkjandi brtt. mínum skal jeg geta þess og játa, að jeg hefi hvorki haft tíma nje tækifæri að taka flokkunina betur til athugunar, þó jeg telji þess fulla þörf; enda má búast við, að háttv. fjhn. athugi þessa hlið málsins vel og ítarlega, því að það verður að viðurkenna, að aðrir þm. eiga mjög erfitt með að átta sig á eða athuga hverja till. um hvað eina, hvað eigi að falla undir þennan eða hinn flokkinn.

Þá ætla jeg að fara örfáum orðum um þær brtt., sem jeg hefi borið fram á þskj. 382. 1. brtt. er um, að spilum sje bætt í hæsta tollflokkinn, því að sá flokkur er það, sem aðallega á að afla ríkissjóði tekna; en jeg vildi bæta upp að einhverju leyti þann tekjuhalla, sem stafar af því, sem jeg hefi lagt til að niður verði felt eða sett í lægri flokka, og skal jeg fúslega viðurkenna að ástæða hefði verið til að taka fleiri vörur en spilin í hæsta tollflokkinn. Þess skal getið, að samkvæmt verslunarskýrslum 1922 hafa verið flutt inn spil fyrir 18 þús. kr. Þetta er ekki stór upphæð að vísu, en það ætti þó að vera bending til hv. fjhn. um það, hvort ekki væru til einhverjar fleiri vörur, er betur væru komnar í hæsta tollflokki, eða hvort ekki væri ýmislegt enn, sem rjett væri að færa niður í 10%-flokkinn eða fella alveg undan tolli. Að öðru leyti legg jeg ekki mikla áherslu á þessa brtt. mína.

2. brtt. mín er í sambandi við það, að háttv. fjhn. leggur til að lækka tollinn á ritvjelum, og er það auðvitað rjett, en þá ættu líka fjölritunaráhöld að njóta sömu hlunninda; þau eru mjög dýr, og ef hár verðtollur legst á þau, verða þau ókaupandi. Þau kosta um 1000 kr. eða meira. Eins og háttv. þm. er kunnugt, er ein slík vjel notuð hjer á Alþingi og hefir orðið til verulegs sparnaðar við þinghaldið, í stað þess að ella hefði orðið að prenta ýmislegt, sem nú er fjölritað. Þessi fjölritunartæki eru mjög þægileg á þeim stöðum, sem ekki næst til eða er erfitt að ná til prentsmiðju, t. d. í sveitum. Þar er sumstaðar verið að halda úti sveitablöðum, og yrði það til nokkurra þæginda, ef menn gætu fjölritað þau. Auk þess eru fjölritunartæki alveg nauðsynleg í mörgum meiri háttar skrifstofum o. s. frv. Fyrir þinginu liggur nú nál. eitt, sem er stór bók fjölrituð. Það er nál. um ræktunarsjóðinn. Jeg geri ekki ráð fyrir, að hv. fjhn. hafi neitt á móti þessari brtt., enda er ekki um stórar upphæðir að ræða. Árið 1922 var flutt inn af þessum vörum fyrir ca. 15 þús. kr., og hefir það því ekki nein sjerleg áhrif á hag ríkissjóðs, þó tollurinn lækki þetta. — 3. brtt. hygg jeg, að allir muni fallast á, því að hjer ræðir um vöru, sem öll heimili svo að segja á landinu þarfnast og komast vart af án. Af verslunarskýrslunum 1922 sjest, að þá var flutt inn fyrir 223 þús. kr. af þessum vörum. Jeg veit ekki, hversu mikið af þessu hefir verið eiginlegur borðbúnaður, en geri ráð fyrir, að helmingurinn hafi verið leirílát, en það eru vörur, sem ætti að hlífa við háum tolli. Þessar vörur eru brothættar í flutningi og eru því í fullháu verði þess vegna, og er því rjett að lækka verðtollinn á þeim. Jeg vænti, að þessar brtt. mínar verði teknar til greina, enda þótt þær sjeu meir að skoða sem bendingar til hv. fjhn. um það, hvort ekki sje hægt að undanskilja fleiri þarfavörur verðtollinum, eða færa þær niður í 10%-flokkinn. Jeg er samþykkur hv. 3. þm. Reykv. (JakM) í því, að slitföt ættu að vera lágtolluð, en skal þá játa, að erfitt getur ef til vill verið að greina í sundur hinar ýmsu tegundir af vefnaðarvörum, þó þess væri full þörf.