28.04.1925
Neðri deild: 66. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1987 í B-deild Alþingistíðinda. (1079)

20. mál, verðtollur

Jakob Möller:

Viðvíkjandi því, sem sagt hefir verið um brtt, mínar, og þá sjerstaklega um aðalbrtt., að lækka verðtollinn niður í 15%, hefi jeg fátt að segja.

Mig furðaði satt að segja, að hv. þm. A.-Sk. (ÞorlJ) skyldi komast að þeirri niðurstöðu, að hann kynni betur tillögum hv. meiri hl. en mínum, því ummæli hans hnigu öll í þá átt, að tollinn bæri að lækka, a. m. k. að svo miklu leyti, sem um nauðsynjavöru væri að ræða.

Nú eru langflestar vörutegundir, sem verðtollur hvílir á, að undanteknum þeim, sem hv. meiri hl. vill tolla með 30%, tvímælalaust nauðsynjavörur.

Að vísu kunna að finnast einstöku vörutegundir, sem telja mætti miður nauðsynlegar, eins og t. d. spil, sem háttv. þm. (ÞorlJ) hefir nú gert till. um, að færð verði í 30%-flokkinn.

En næst liggur þá að bera fram brtt. í þá átt, að slíkar vörur skuli tollaðar með 30%, eins og hv. þm. (ÞorlJ) hefir gert að því er spilin snertir.

Annars hygg jeg, að ekki sje mörgum slíkum vörutegundum til að dreifa í viðbót við þær, sem þegar eru komnar í 30%-flokkinn, enda mun hv. meiri hl. þykjast hafa gengið svo frá þeim flokki, að þar væru saman komnar allar ónauðsynlegustu vörur, sem til landsins flytjast, þó að hv. þm. A.-Sk. (ÞorlJ) hafi tekist að hafa upp á spilunum fyrir utan flokkinn.

Annars fer mín brtt. í þá átt að lækka tollinn alment, og eftir forsendum háttv. þm. A.-Sk. (ÞorlJ) að dæma, þá ætti hann að fallast á hana og lýsa velþóknun sinni á því, að hún skyldi fram komin, eins og háttv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ) hefir gert. Jeg skil ekki, að nokkrum hv. þm. geti verið hugleikið að fá 10%-flokk háttv. meiri hl. inn í lögin, eins og nú er frá honum gengið, en hinsvegar er engin frágangssök að samþykkja hann, þó að till. mín um 15%-flokkinn yrði einnig samþykt. En þegar jeg les yfir þennan 10%-flokk, þá finst mjer undarlega farið þeim mönnum, sem ekki getur á sama staðið, hvort hann er til eða ekki, einkum þegar þess er gætt, hvaða vörutegundir eru undir 20%-flokknum eftir sem áður. Tökum t. d. hagldabrauð og tvíbökur. Það er hægt að framleiða nóg af þeim vörutegundum í landinu sjálfu og engin ástæða til að búa til nýjan tollflokk fyrir þær. Annars má geta þess, að ef till. hv. meiri hl. verða samþyktar, þá verður kaffibrauð ýmiskonar tollað samkvæmt 3 flokkum, og geta allir ímyndað sjer, hversu mikilli fyrirhöfn slíkt muni valda við innheimtuna. Er hætt við því, að margskonar ósamræmi verði í framkvæmdinni, þegar greina á hinar ýmsu brauðtegundir í sundur. Hygg jeg, að alt það umstang svari ekki kostnaði.

Þá er hellulitur í 10%-flokknum; vörutegund, sem hætt er að nota að mestu leyti. Ekki skiftir heldur miklu máli, hvort hunang er yfirleitt tollað eða ekki.

Kaffikvarnir eru að vísu nauðsynjavara, en þær endast mjög lengi og því ekki tilfinnanlegt fyrir almenning að greiða 5% meiri toll af þeim. Sama er að segja um kaffikönnur. En hvers vegna eru katlar ekki í 10%-flokknum líka? Þeir eru engu síður nauðsynlegir en könnurnar.

Svona má halda áfram, og altaf ber að sama brunni. Menn má yfirleitt einu gilda, hvort þessar vörur eru tollaðar með 10 eða 15%. A. m. k. er ekki frekari ástæða til að tolla þær með l0% en ýmsar aðrar vörur, sem háttv. meiri hl. hefir gefist upp við að flokka í sundur, af ástæðum, sem hv. frsm. (MJ) hefir greint frá. Hann hefir játað, að í fyrra, þegar tollur þessi kom fyrst til umr., þá hafi menn talið ókleift að flokka tollvörurnar sundur í mismunandi flokka, og það því fremur, að hjer skyldi aðeins um bráðabirgðatoll að ræða. Sama máli gegnir nú, enda viðurkennir háttv. meiri hl. það, þar sem hann lýsir yfir því, að ókleift hafi reynst að flokka vörurnar eftir nauðsyn þeirra, svo að sanngirni væri í.

Hjer er einmitt gefið í skyn, að flokkun hv. meiri hl. sje að meira eða minna leyti fálm, þar sem hún er ekki bygð á því, hversu nauðsynlegar vörutegundirnar eru, heldur á ýmsu öðru, og þá fyrst og fremst á því, hversu auðvelt er að greina vörurnar sundur. En jeg fullyrði, að fleira hefir komið til greina, er háð hefir háttv. meiri hl. í flokkuninni. Þegar hann rak sig á einhvern vöruflokk, sem sanngjarnt var að lækka tollinn á, þá rak hann sig hinsvegar einnig á, að lækkun tollsins myndi skerða tekjur ríkissjóðs of mjög. Þetta atriði hefir ráðið fult eins miklu um, hvernig háttv. meiri hl. fórst flokkunin úr hendi. Tökum t. d. leirvörur. Ef þær væru fluttar í 10%-flokkinn, þá hlyti ríkissjóður að bíða allverulegt tjón við það. Þess vegna hefir hv. meiri hl. ekki haggað við þessari vörutegund, enda þótt full sanngirni kunni að mæla með því að lækka tollinn á henni. Sama má segja um margar aðrar vörutegundir, sem enn eru undir 20% verðtolli.

M. ö. o., þessi flokkun. hv. meiri hl. er ekkert annað en málamyndatilraun til að sýnast ætla að vera sanngjarn, en ef gerður er samanburður á 10%- og 20%-flokkunum, þá sjest, að tilraunin er þýðingarlaust fálm.

Hv. frsm. (MJ) sagði, að verulegur munur væri á minni till. og till. háttv. meiri hl. að því leyti, að tekjur ríkissjóðs væru rýrðar svo mjög með brtt. minni. Jeg hefi nú játað, að tolltekjurnar muni lækka eitthvað, ef brtt. mín nær samþykki. En þetta eru ekki mótmæli gegn till., nema að nokkru leyti. Það eru meðmæli með henni í augum alls almennings, sem tollana á að greiða, og jeg þykist vita, að ýmsir hv. þm. muni einnig geta litið á þá hlið málsins.

Annars tók hv. frsm. (MJ) munninn nokkuð fullan, þegar hann sagði, að ríkissjóður misti hundruð þúsunda, ef till. mín yrði samþykt.

Það er hægt að gera sjer nokkurn veginn grein fyrir, hversu ríkissjóður missir mikils. Ef allar verðtollstekjurnar eru áætlaðar 1 milj. kr. með 20% tolli, þá er gefið, að tolllækkun niður í 15% rýrir tolltekjurnar um 250 þús. kr. Það er þá rjett svo, að hægt er að nota orðatiltækið hundruð þúsunda. En hinsvegar skilst mjer, að 10%-flokkur hv. meiri hl. rýri einnig tekjurnar nokkuð, og kemur þar strax skarð í hundruð þúsundanna. Nú er þess að gæta, að í fjárlagafrv. fyrir næsta ár er Verðtollurinn áætlaður 800 þús. kr., og jeg staðhæfi, að sú áætlun muni standast, þó að till. mín verði samþykt. Byggi jeg þá staðhæfingu á því fyrst og fremst, að síðastl. ár nam verðtollurinn á 9. hundr. þús. kr., og var þó ekki í gildi nema 3 ársfjórðunga, og í öðru lagi á þeim upplýsingum, sem jeg hefi fengið hjá skrifstofu lögreglustjórans í Reykjavík, að 3 fyrstu mánuði þessa árs nam innheimtur verðtollur þar helmingi meiru en 3 fyrstu mánuðina, sem hann var í gildi síðastl. ár. Hjer við bætist, að nú er stofnað til 30% tolls af þó nokkrum vörutegundum, sem annaðhvort var lítið flutt inn af síðastl. ár eða þá aðeins tollaðar með 20%.

Jeg þarf ekki að deila við háttv. frsm, (MJ) um, að ósamræmi sje í mínum till., vegna þess, að jeg skuli ekki leggja til, að 20%-flokkurinn sje feldur niður. Jeg hefi áður sagt, að jeg efist um, hversu mikill búhnykkur sá tollflokkur verði, en hinsvegar veit jeg, að ekki er til neins að gera till. um að afnema hann. En það er auðsætt, að ef það er galli að sundurliða verðtollinn í marga flokka, þá er gallinn því meiri, sem flokkarnir eru fleiri, og því full ástæða að sporna við, að þeir verði 3 eða 4. Og fyrir mjer vakir aðallega, þegar jeg vil ekki hafa nema í hæsta lagi 2 tollflokka, að yfirleitt eru allar verðtollsskyldar vörur, sem hv. meiri hl. hefir ekki tekið í 30%-flokkinn, nokkurn veginn jafnnauðsynlegar, og því hæpin sanngirni að taka nokkrar þeirra út úr og tolla þær með 10%, en láta 20%, tollinn haldast á öðrum.

Háttv. frsm. (MJ) hefir játað, að hagkvæmast muni verða að láta verðtollinn hverfa úr sögunni á þann hátt, sem bent er til í till. minni, sem sje, að hann fari lækkandi frá ári til árs, uns hann er kom inn veg allrar veraldar. Það er og auðsætt, að ef hann verður látinn falla úr gildi alt í einu, þá mun það valda töluverðum örðugleikum og vafalaust miklu fjárhagslegu tjóni þeim, sem við verslun fást. Mun því vinsælla, að hann hverfi smámsaman.

En þá er spurningin aðeins sú, hvenær á að byrja að lækka tollinn. Í nefndinni lýsti jeg yfir því, að fyrir mjer væri ekkert aðalatriði, hvort það yrði 1. júlí eða 1. janúar næstkomandi. Þetta er í mínum augum samkomulagsatriði, sem málið ætti ekki að þurfa að stranda á.

En ef till. mín verður feld nú, þá mun jeg við 3. umr. koma með brtt. í þá átt, að þessi breyting komist á frá næstu áramótum. Hinsvegar er vel fært að samþykkja brtt. mína eins og hún liggur nú fyrir, sem sje að tolllækkunin gangi í gildi 1. júlí næstk., vegna þess fyrst og fremst, hversu miklar líkur eru fyrir því, að verðtollurinn fari að öðrum kosti stórkostlega mikið fram úr áætlun. Að öðru leyti voru undirtektir hæstv. fjrh. (JÞ) eins og jeg bjóst við af honum. Jeg gerði ráð fyrir, að einmitt hann myndi telja þetta líklega leið í þessu máli, að láta tollinn lækka jafnt ár frá ári. Eftir því sem hann ljet ummælt við 1. umr., gat honum ekki verið það fjarri skapi, að sú aðferð yrði upp tekin. Hitt er sem sagt álitamál, hvenær eigi að byrja á þessu, og getur sjálfsagt náðst samkomulag um það.

Hæstv. fjrh. (JÞ) sagði, að sakir þess, hvernig fjárreiðurnar væru nú, bæri nauðsyn til, að sjeð væri um, að tekjurnar af verðtollinum yrðu ekki minni árið 1926 en þær eru nú. Geri jeg ráð fyrir, að hann hafi haft í huga, hvað þær urðu seinasta ár, því að auðvitað er óvíst, hverjar þær verða í ár, því að það er alt í óvissu. En jeg er ekkert hræddur um, að þótt aðalbrtt. mín verði samþykt, þá verði tekjurnar samt neitt minni. Þess ber og að gæta, að við það að framkvæmdin verður einfaldari og tollurinn lækkar, þá kemur hann betur út. Hann verður ekki eins óvinsæll og áður og enginn vafi á, að framkvæmdin verður öll ljettari. En hinsvegar, ef lögin verða óbreytt og tollurinn aðeins sumpart hækkaður og sumpart lækkaður, eins og farið er fram á í tillögum háttv. meiri hluta, þá verður tollurinn aðeins enn, óvinsælli og alt eftirlit enn erfiðara. Kemur tollurinn því með því móti miklu ver út en yrði eftir mínum brtt.

Þá vil jeg aðeins víkja nokkrum orðum að hv. þm. Borgf. (PO). Hann talaði um verndartollinn frá 1923 og las upp ummæli frsm. fjhn. um frv. það, er þá lá fyrir, og sagði, að í þeim orðum fælist afstaða allrar nefndarinnar. En jeg vil geta þess, að eins og hv. þm. getur sannfærst um við nánari athugun, þá hafði jeg sjerstöðu í málinu, þótt frsm. tæki svo til orða. Ef hv. þm. (PO) les þessar umræður áfram, þá sjer hann skýrlega, að jeg hafði sjerstaka afstöðu og talaði á móti málinu, en jeg var einn um þetta, svo ekki var talað um nema einn frsm. nefndarinnar. Jeg hafði algera sjerstöðu. Eins og því hv. þm. (PO) er samkvæmur í afstöðu sinni til þessa máls fyr og nú, svo er jeg og það og mun verða. Hann telur það hyggilegt ráð að leggja á verndartolla, þótt örðugt sje í framkvæmd. Jeg tel það óviturlegt, en það mun vera með þetta sem annað, að menn á gagnstæðri skoðun eiga erfitt með að sannfæra hverjir aðra.

Eitt af því, sem háttv. þm. (PO) talaði um, var það, að verndartollar trygðu vörugæðin. Þetta tel jeg mjög hæpna staðhæfing. Það er einmitt ein af aðalástæðum þeirra, sem eru mótfallnir verndartollum, að þeir telja, að slíkir tollar dragi úr áhuga manna á því að vanda vörur sínar. Þetta liggur nokkurn veginn í augum uppi fyrir þeim, sem vilja sjá það. Ef verndartollar eru háir á einhverri vöru, geta menn selt sömu vöruna, ef innlend er, þótt lakari sje, nokkuð lægra verði en hægt er að fá betri vöru frá útlöndum fyrir, og almenningur leiðist oft þannig til slæmra kaupa. Annars hefir verið svo ítarlega rætt um þetta, að jeg tel óþarft að bæta við það mörgum orðum. Aðalástæðan á móti verndartollum er sú, að með þeim eru tekjur ríkisins aðallega teknar af þeim, sem minst mega við tollum, þeim, sem horfa verða í hvern skildinginn. Og ef styrkja á innlend þarfafyrirtæki, þá er sjálfsagt að gera það með beinum fjárframlögum af almennu fje, sem tekið er af mönnum eftir efnum og ástæðum með almennum sköttum. Hitt er sýnilega ranglátara, að gera það með því að tolla neysluvörur og láta byrðarnar lenda að mestu á fátæklingunum.

Útkoman fyrir fyrirtækin er sú sama. Spurningin er aðeins sú, hvernig á að taka styrktarfjeð af landsmönnum. Jeg held óhikað fram, að slíkt eigi að gera eins og gerst hefir um nauðsynlegar framkvæmdir ríkisins, að fjeð sje fengið með almennum sköttum.