23.03.1925
Neðri deild: 40. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 94 í B-deild Alþingistíðinda. (11)
1. mál, fjárlög 1926
Klemens Jónsson:
Háttv. 2. þm. Reykv. (JBald) beindi nokkrum orðum til mín, sem jeg átti alls ekki von á, en finn ástæðu til að svara. Jeg hjelt, að háttv. þm. mundi láta sjer nægja að áfellast núverandi hæstv. stjórn á þessum eldhúsdegi, þó ekki færi bann að víkja ásökunum til stjórnar, sem setið hefir áður. Hann sagði, að núverandi stjórn hefði fylgt vondu dæmi fyrv. stjórnar að kaupa kol utan Landsverslunar. Hv. þm. talaði um þetta fyrir tveim árum, og hrakti jeg þá ummæli hans svo, að hann gat ekki mótmælt.
Jeg skal geta þess, að á þingi 1922 var mikið talað um Landsverslun, og var þá gengið út frá því, að hún verslaði ekki með fleiri vörur en hún hafði þá, nefnilega steinolíu og tóbak, og það var skýlaus vilji þingsins, að hún verslaði ekki með kol. Jeg tók þá fram á þingi, og lofaði því, að jeg mundi ekki bæta við fleiri vörutegundum, nema ef það sýndi sig, að einhverja vöru ætti að fara að einoka. Hygg jeg, að margir hv. þingmenn muni þetta. Því gat ekki komið til mála, að jeg sneri mjer til Landsverslunar. Nei. Jeg gerði annað. Jeg hafði undirboð og tók lægsta tilboði, og það reyndist mjög vel. Ýmsar stofnanir höfðu beinlínis orð á, að betri kol hefðu þær aldrei fengið, og þau voru líka óvenjulega ódýr. Það var því jafnástæðulaust af háttv. 2. þm. Reykv. nú að ásaka mig fyrir þessi kolakaup eins og það var fyrir tveimur árum.
Mjer fanst rjett að taka þetta fram, til þess að liggja ekki undir jafnástæðulausum áburði og þessum. Annars ætla jeg ekki að skifta mjer neitt af þeim umræðum, sem fram fara hjer í dag.