07.05.1925
Neðri deild: 74. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2085 í B-deild Alþingistíðinda. (1141)
8. mál, verslunaratvinna
Magnús Torfason:
Það má segja í þessu máli sem oftar, að hverjum þykir sinn fugl fagur, að því er snertir hæstv. atvrh. (MG). Mjer finst, sem hann kunni ekki gott að þiggja. Nefndin hefir gert sjer mikið far um að athuga vel þetta frv. Hún hefir talað við marga menn um þessa lagasetning og unnið ósleitilega að því að athuga alt sem rækilegast, enda þarf þess með, þegar þess er gætt, að slík lagasetning sem þessi hefir ákaflega mörg og víðtæk áhrif á aðstæður mjög margra manna. En eins og hæstv. atvrh. (MG) er kunnugt, fengum við þetta frv. ekki hingað í deildina fyr en um miðjan apríl, og því hefir nefndin ekki getað athugað það eins rækilega og skyldi, eins og ýmsar brtt., sem fram eru komnar frá öðrum hv. þm., bera ljósan vott um. Nefndin veit nú, að hún hefir ekki farið nógu langt í brtt. sínum, og verður því enn að koma með brtt. við 3. umr., ef málið á að komast í sæmilegt horf. Annars virðist mjer sem hæstv. atvrh. (MG) hafi víða farið helst til langt í því að breyta þeim gömlu lögum, sem við höfum nú um þetta, og var það því að mörgu leyti verk nefndarinnar að færa frv. nær þeirri löggjöf, sem nú gildir. Hefir lítið verið kvartað yfir henni, nema hvað auðvitað er, að hún er ófullnægjandi á sumum sviðum, af því að verslunin hefir aukist stórkostlega og breyst margvíslega á síðari árum, og er því þörf á að auka við verslunarlöggjöfina.
Jeg skal taka það strax fram, að það var alls ekki tilgangur nefndarinnar að gera neitt til þess að varna málinu framgangs. Þvert á móti hefir hún lagt kapp á að undirbúa það þannig, að Alþingi gæti fallist á að samþykkja frv. Það hefir talsvert verið fundið að brtt. nefndarinnar. Fyrst það, að við notum orðið „farsölu“ í stað „tilboðasöfnunar“. Jeg skal fúslega játa, að þó nefndin væri að brjóta heilann um þetta, þá gat hún ekki fundið neitt orð, sem henni líkaði vel, en henni leist svo, að þetta væri skársta orðið. Bendir það til þess, að farmenn voru þeir menn kallaðir til forna, sem fóru landa á milli með varning sinn og sátu hjer oft á vetrum og seldu hann. En farsali grípur meira yfir kaupmannshugtakið en farmaður. Hitt er rjett, að þetta hugtak nær ekki alveg yfir það, sem ætlast er til að það nái yfir í stjfrv., en jeg er þó viss um, að það er betra en tilboðasafnari, sem einnig nær aðeins yfir hluta af hugtakinu, er tákna átti(„agent“), og að þegar menn venjast því, þá munu þeir vel skilja meiningu þess.
Farandsali, sem hæstv. atvrh. (MG) vildi mynda af farandkona, er ónothæft. Því eins og allir vita, þýðir farandkona sama og förukona, og jeg býst ekki við, að meining hæstv. atvrh. (MG) nje annara sje sú, að gera þessa menn alla að förumönnum.
Þá hefir verið fundið að því, að nefndin leggur til, að menn þurfi ekki verslunarleyfi til að selja innlendar iðnaðarvörur. Meiri hl. athugaði þetta mjög vandlega og reyndi að festa þessi ákvæði sem best, en sýndist, að altaf væri annaðhvort of skamt eða of langt farið. Hann kaus svo heldur að hafa löggjöfina sem rýmsta í þessu efni, meðal annars af því, að menn hafa nú mikinn hug á að styðja innlendan iðnað, og það er svo að segja hugsjón manna að koma hjer upp almennum húsgagnaiðnaði innlendum. Býst jeg því við, að því yrði ekki illa tekið, ef þessi brtt. meiri hl. yrði samþykt.
Menn sækjast sjerstaklega eftir öllu útlendu, en vilja ekki innlendar vörur, þótt þær sjeu jafngóðar eða betri. Þó vitum við, að í öðrum löndum er uppi sú alda að styðja innlendan iðnað og framleiðslu; og í þessa átt stefnir breytingin.
Hæstv. atvrh. (MG) þótti skemtilegt þetta orðatiltæki „til þarfa sinna“, en við rákum augun í, að í .3 lið 1. gr. er talað um að stofna „fjelag til þarfa sinna“. (Atvrh. MG: Það stendur ekki). Jú, en um smekkinn er vitanlega ekki hægt að deila.
Þá viljum við og koma í veg fyrir það, að útlendingar geti vaðið hjer inn og sett hjer upp verslun. Var það af ráðnum hug gert, því að við lítum svo á, að börn landsins eigi að hafa þá atvinnu fyrir sig, og nóg er af verslunarmönnum hjer á landi, er hafa bæði vit og þekkingu á starfi sínu. Jeg hefi talað við marga kaupmenn, og þeir álíta bæði þarft og gott að takmarka aðgang útlendinga til verslunar hjer. Og þótt mönnum þyki ef til vill hart, að Íslendingur, sem hefir verið nokkur ár erlendis, skuli ekki mega setja upp verslun hjer, þá er því að svara, að það er ekki hægt að setja lög fyrir undantekningarnar.
Þá hefir verið talað um það atriði, að kaupmönnum leyfist ekki að hafa fleiri en eina verslun í sama kaupstað. Það er nú svo ákveðið í lögum, og er engin ástæða til að breyta því. Þessu ákvæði hefir máske ekki verið fylgt nú á seinni árum hjer í Reykjavík, en meðan Halldór Daníelsson var hjer bæjarfógeti, var því stranglega fylgt. En nú láta menn það dankast, meðan það skaðar ekki almenning. Með lögum 1841 var ákveðið, að sami maður mætti ekki versla nema á einum stað, og það stendur í forsendum opna brjefsins, að það hafi gefist illa áður, og nú er ekki síður hætta á því en þá, ef útlendir stórburgeisar ættu verslanirnar og gætu í byrjun sett verð niður úr öllu valdi, meðan þeir væru að koma íslenskum kaupmönnum á kúpuna.
Um sveitaverslunarleyfi verð jeg að líta svo á, að menn verði að vera heimilisfastir í þeirri sveit, er verslunin er stofnuð í, til þess að geta fengið leyfið. Það er kunnugt um marga, sem hafa byrjað verslun í sveit, að þeir hafa verið góðir bændur og notað gróða verslunarinnar til þess að bæta jarðir sínar. Þess vegna er jeg fylgjandi brtt. hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ).
Þá er hjer eitt orð, sem hefir verið talið óalandi og óferjandi, en það er „verslunarumdæmi“. Það var sett af ráðnum hug. Það getur staðið svo á, að ekki sje rjett að binda verslunarleyfið við neina sjerstaka jörð, heldur aðeins við hrepp, og er hann þá „verslunarumdæmi“
Að við leggjum til, að 15. gr. verði feld niður, stafar af því, að eins og hún er í frv. getur hún ekki staðist og er óþörf, enda hefir það komið fram hjer í deildinni, að sendiherra Dana teldi hana óþarfa; mundu líka mörg lögin, sem þetta ætti þá að standa í, ef það stæði hjer.
Um brtt. við 16. gr. er það að segja, að eins og greinin var orðuð í frv., mátti ef til vill skilja það svo, að ráðherra sjálfur ætti heimtingu á þessum upplýsingum, en frá okkar sjónarmiði er það nóg að gefa fulltrúa hans upplýsingarnar, eða fulltrúa lögreglustjóra, og því eru gild rök fyrir þessari brtt.
Það er langt frá því, að við sjeum að leggja stein í götu frv. með þessum brtt., því að þær þurfa ekki að tefja neitt fyrir því.
Að síðustu vil jeg geta þess, að með brtt. við 10. gr. er ljettara að greina betur heldur en eftir lögunum, hvað meint er með starfssviði sjerstakra verslunartegunda. Nú kvarta smásalar undan því, að sumir heildsalar selji í smásölu, og einnig hafa heyrst kvartanir um þetta frá þeim heildsölum, er ekki vilja hafa sig til þess.
Það get jeg sagt, að nefndin lítur svo á, að svo miklar bætur sjeu í frv. þessu, að það eigi skilið að ganga fram. Þess vegna hefir hún lagt bæði vinnu og tíma í að lagfæra það.