09.05.1925
Neðri deild: 76. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2115 í B-deild Alþingistíðinda. (1157)

8. mál, verslunaratvinna

Atvinnumálaráðherra (MG):

Út af orðum hv. þm. N.-Ísf. (JAJ) vil jeg geta þess, að takmarkið 1. mars 1925 var sett í stjfrv. til þess að fjöldi manna skyldi ekki hlaupa til og kaupa verslunarleyfi fyrir lægra verðið, sem nú gildir. Hversu fer um þá, sem kaupa leyfisbrjef frá 1. mars til þess er lögin koma í gildi, er ekki ákveðið, en jeg býst varla við því, að farið verði að ganga eftir viðbótargjaldi hjá mönnum.

Jeg skil ekki, hvað hv. frsm. meiri hl. (JBald) meinar með því að biðja hæstv. forseta að bera 16. gr. upp til atkv. á undan 13. gr. Jeg hefi ætíð vanist því, að slíkt færi eftir rjettri röð, en ekki eftir óskum einhverra hv. þm. Jeg vona, að hæstv. forseti fari hjer eftir þeirri reglu, sem vant er að fylgja við atkvgr.