12.05.1925
Neðri deild: 78. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2129 í B-deild Alþingistíðinda. (1173)
8. mál, verslunaratvinna
Jón Auðunn Jónsson:
Þessi ákvæði eru óljós og geta valdið misskilningi, þó kannske megi einnig skilja þau eins og hæstv. atvrh. gerir. Mjer finst sjálfsagt að gangá svo frá að taka af allan vafa í þessu máli, og leyfi mjer því að bera fram tvær brtt. og kem með þær skriflegar, þar sem þetta er 3. umr. Jeg legg til, að við 1. gr. verði bætt nýjum tölulið, sem verði 4. liður, svo hljóðandi: „Sala á innlendri mjólk, rjóma, skyri, eggjum, brauði og kökum.“ En aftan af síðari málsgr. 5. tölul. 3. gr. falli orðin: „nje þeirra, sem ætla að versla einungis með innlenda mjólk, rjóma, skyr eða egg, brauð eða kökur.“
Jeg vona, að þetta þurfi ekki frekari skýringar.