05.03.1925
Efri deild: 23. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2325 í B-deild Alþingistíðinda. (1288)

56. mál, fiskveiðasamþyktir og lendingarsjóður

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Það er eiginlega ekki mikið uni þetta frv. að neða. Sjávarútvegsnefnd er sammála um að leggja til, að það verði samþykt, enda er nú þannig ástatt, að nauðsynlegt er að kippa því í lag. Það vantar lagalieimild í Vestmannaeyjum til að geta sett fiskiveiðasaniþyktir fyrir báta stærri en 15 smálestir. Jeg vona, að hv. deild sjái, að ekki er nema sjálfsagt, að Vestmannaeyjar hafi þá heimild eins og sýslufjelögin. Jeg get fallist á þá breytingu, sem sjávarútvegsnefndin gerði á sektarákvæðunum, sem sje að breyta lágmarkinu í 25 krónur. Get jeg ekki annað sjeð en að það sje alveg eins heppilegt. Vona jeg, að hv. deild sjái sjer fært að samþykkja 1. gr. með breytingum þeim, sem nefndin vill gera.