28.02.1925
Neðri deild: 22. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2329 í B-deild Alþingistíðinda. (1316)

64. mál, brúargerðir

Frsm. (Klemens Jónsson):

Fyrir síðasta þing kom fram af hendi stjórnarinnar frv. til gagngerðra breytinga á vega lögunum, og um leið frv. til laga um brúargerðir, sem stóðu í nánu sambandi við fyrra frv. og bein afleiðing af því, ef það næði fram að ganga. Var þar bætt inn einni brú á Hvítá í Borgarfirði, og fjórum brúm öðrum, 2 í Þistilfirði og 2 í Vopnafirði, en hinsvegar slept úr nokkrum brúm á þær ár, sem ekki urðu lengur á þjóðvegum vegna vegalagabreytinganna. Frv. var borið upp í Ed. og afgreitt þaðan með öllum atkvæðum. Nd. vísaði því til samgmn., en þar dagaði það uppi. Ástæðan til þessa er mjer ekki vel kunn, en jeg ímynda mjer, að ástæðan hafi verið sú, að vegalagafrv. átti talsvert erfitt uppdráttar í þeirri deild, og því hafi nefndinni þótt rjettast að bíða og sjá, hvernig vegalagafrv. reiddi af, og þess vegna hafi málið orðið þann veg endaslept.

Þannig horfir þá málið við. Stjórnin mun hafa hugsað sjer að leggja frv. óbreytt fyrir þingið aftur, en það farist fyrir, því það er víst, að samgöngumálaráðuneytið kom með það til samgmn. og beiddi hana að koma fram með frv. Vegna þess að nefndinni þótti þetta sjálfsagt, hefir hún borið það fram nú, enda er það bein afleiðing af vegalögunum, eins og áður er sagt. Býst jeg við því, að samgöngumálaráðherra bæti við framsöguna því, sem honum þykir best henta.