06.04.1925
Neðri deild: 52. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 668 í B-deild Alþingistíðinda. (133)
1. mál, fjárlög 1926
Pjetur Þórðarson:
Það er aðeins ein lítil brtt., sem jeg á hjer að þessu sinni, undir liðnum XLVI, um styrk til að gera laxgenga tvo fossa í Norðurá í Mýrasýslu, Laxfoss og Glanna. Hagar svo til um síðari fossinn, að hann er hár og brattur og nálægt hreppamótum, en fyrir ofan hann rennur áin eftir jafnlendi, sem nær alt fram til heiða. Til beggja handa eru tjarnir og smáuppsprettur, sem eru mjög vel fallnar til laxaklaks. Og það er sjerstaklega með tilliti til laxaklaks, að farið er fram á, að foss þessi verði gerður laxgengur.
Jeg hefi þegar við 2. umr. gert nokkra grein þessa og veit fyrir víst, að það hefir enga þýðingu fyrir málið að endurtaka það nje ítreka frekar. Hinsvegar vænti jeg, að hv. þdm. ljái máli þessu athygli og finnist sanngjarnt að veita því fylgi sitt. Jeg held, að hægt sje að líta svo á, að hjer sje farið fram á hverfandi litla fjárupphæð í samanburði við gagnið, sem af því mætti leiða, enda væri ekki rjett að koma með brtt. við fjárlögin nú, sem ekki svöruðu til árangursins, sem af þeim mætti vænta.
Jeg ætla þá ekki að fara frekar út í þetta, en minnast heldur með fáum orðum á brtt. á þskj. 290 undir lið XXXVII, frá hv. minni hluta fjvn. Er þar farið fram á að hækka styrkinn til búnaðarfjelaganna upp í 20 þús. kr. Mjer skildist, að hv. flm. (BJ) gæfi það í skyn, að tillaga þessi ætti að vera prófsteinn á okkur bændur, sem hjer sitjum, og sem haft gæti sína þýðingu í framtíðinni. En jeg skal þá strax taka það fram, að mjer meir en kom til hugar að bera fram till. um að fella niður þær 10000 kr., sem standa í þessum lið í frv., og má á því sjá, hversu það er fjarri mjer að greiða atkv. með þessari brtt. Því að þótt upphæðin, sem þar er nefnd, sje nokkru nær því að geta komið að gagni, þá er svo langt frá því, að sú fjárveiting geti orðið til verulega góðs árangurs, svo lág sem hún er, að jeg fæ ekki af mjer að leggja till. lið.
Hv. flm. till. (BJ) fór nokkrum orðum um það, hversu algengt það væri, að till. fjellu, sem við góð rök ættu að styðjast og til mestra hagsbóta mættu leiða, og beindi bann því til ýmsra hv. þingbænda, eða máske allra þingmanna í heild, að þeim sæist oft yfir af athugaleysi eða hugsunarleysi, hvernig þeir ættu að haga atkvæðum sínum, og ekki síst er um tillögur frá honum væri að ræða. Þetta um athugaleysi eða hugsunarleysi held jeg, að geti ekki verið rjett, þó að stundum geti það efalaust valdið miklu um úrslit mála hjer á þingi, hver flytur þau. Getur það og stundum haft áhrif, hvernig fyrir till. er mælt. Nú efast enginn um málsnild og rökfimi háttv. þm. Dala., en þó fer það oft svo, frá hans sjónarmiði sjeð, að mörgum tillögum hans er hafnað. Þessi niðurstaða er rjett, en byggist á alt öðru en athugaleysi þeirra, sem á hlýða. En um leið og jeg get þessa, þá vil jeg taka það fram, að jeg hefi líka veitt því eftirtekt, hvernig þessi hv. þm. (BJ) heldur á sinn sjerstaka hátt uppi sóma þingsins og virðingu með sínum snjöllu og alkunnu ræðum og skörpu athugunum og skýringum á orðum og athöfnum annara þingmanna, og loks með framkomu sinni innan þingsins í orðum og æði. Er það maklegt, að einhver votti honum skyldar þakkir fyrir slíka hluti.