16.03.1925
Neðri deild: 34. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2334 í B-deild Alþingistíðinda. (1337)
80. mál, veiði
Tryggvi Þórhallsson:
Jeg vil þakka hv. landbn., hversu vel og greiðlega hún hefir afgreitt frv. þetta. Tel jeg engan vafa á því, að það fái sömu meðferð hjá hv. deild sem frv. það, er rjett áðan var samþykt til 3. umr. Þó er eitt atriði, sem jeg vil taka fram til viðbótar því, sem jeg sagði við 1. umr. í fyrra var svipuðu máli vísað til umsagnar sýslunefnda við Breiðafjörð, og eins hefi jeg nú fengið senda fundargerð sýslunefndarfundar Strandasýslu, þar sem þess er einróma óskað, að frv. þetta verði að lögum.
Þess vegna liggur jafnbeint fyrir að afgreiða þetta frv. sem hitt, um selaskot á Breiðafirði, sem. hv. deild hefir nú afgreitt.