07.04.1925
Neðri deild: 53. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 688 í B-deild Alþingistíðinda. (140)
1. mál, fjárlög 1926
Frsm. minni hl. (Bjarni Jónsson):
Jeg þarf aðeins að ávarpa örlítið þrjá hv. þm. Vil jeg þá fyrst taka þann, sem næst mjer situr, hæstv. fjrh. (JÞ). Hann virtist ekki vilja fallast á þá litlu brtt. mína, að á meðal gildandi ákvarðana skyldu talin fyrirheit þingsins. Er þó þessi viðbætir nákvæmlega eftir skýringum hæstv. ráðherra (JÞ) sjálfs á greininni. Hann vildi nú halda fram, að fyrirheit þingsins væru altaf löglegar ákvarðanir. En svo er alls ekki altaf. Fyrirheit Alþingis koma fram á ýmsan hátt.
Jeg skal nefna eitt dæmi: Þegar Bjarni Sæmundsson hættir kenslustörfum og tekur að sjer annað starf með fullum launum, þá verð jeg að líta svo á, að um leið og þingið gengur inn á þetta, hafi það gefið það fyrirheit, að við svo búið skyldi standa, meðan Bjarni væri fær um að halda þeirri stöðu, er hann tók að sjer. En eftir hinni skoðuninni er álitið, að hæstirjettur geti dæmt af manninum launin, eða stjórnin hætt að setja þessa upphæð hvenær sem er í fjárlögin, sökum þess, að menn segja, að fjárveitingar í fjárlögum sjeu ekki skuldbindandi fyrir þingið nema eitt ár. Margt fleira mætti nefna þessu líkt, t. d. að þegar maður er tekinn úr fastri stöðu og fenginn til þess að gegna öðru starfi fyrir landið, þá er, þótt ekki sje skrifað eða jafnvel orðað, gefið fyrirheit af þingsins hálfu um það, að maðurinn haldi starfinu áfram. Því svo fávís er enginn lifandi maður, að hann sleppi stöðu til þess að taka aðra aðeins eitt ár, svo að hann fengi það eitt fram, að annar væri kominn í stöðu hans, er hann ætli að hverfa í hana aftur. Jeg sje, að hæstv. fjrh. (JÞ) hlær. En honum er ekki til neins að hlæja, því að það er tóm vitleysa, sem hann ætlar að segja við þessu.
Nei. Hjer er um bein loforð að ræða, því að mennirnir hafa fulla ástæðu til að halda, að Alþingi ætli ekki að gabba þá úr launuðum stöðum til þess að hafa annað starf aðeins eitt ár. Þó hefir Alþingi leyft sjer slíkt. Það má benda á Einar Erlendsson, sem eitt ár var í fjárlögum. Hann var áður byggingarfulltrúi hjer í bænum og fjekk sæmileg laun, en misti þau fyrir bragðið. Fleiri dæmi gæti jeg nefnt, en kæri mig ekki um það.
Menn, sem hafa skifti við ríkið, hafa fulla ástæðu til þess að halda, að áframhald verði á. Því enn bera menn, sem betur fer, það traust til þings og stjórnar, að það standi við gerðir sínar án þess að tekin sjeu af því skrifleg og vottfest loforð. En ef sá siður á að halda áfram, sem Alþingi tók upp í fyrra, að brigða orð sín, þá mun hjeðan af ekki finnast sá aulabárður í landinu, að hann treysti nokkuð fyrirheitum Alþingis, nema hann hafi fengið það skriflegt og vottfest, svo að enginn dómstóll geti þar neinu um haggað. Það getur nú vel verið, að hv. þm. haldi, að allir tortryggi svo Alþingi, að engin undur væru, þótt menn vildu, að það gerði við sig skriflega samninga, ef nokkur skifti ættu að takast. En jeg hefði talið heiður þingsins meiri, ef menn ljetu sjer nægja að treysta orðum þess einum. Hefi jeg aldrei farið fram á við neina stjórn eða þing, að þau gæfu mjer neitt vottfast loforð eða annað, sem jeg gæti hengt hatt minn á, er jeg hefi við þau skift, því að mjer hefir aldrei til hugar komið, að Alþingi vildi brigða orð sín. Og þetta vildi jeg taka fram. Þegar loforð er án votta og loforðsþiggjandi á alt undir loforðsveitanda, hvort hann efnir heit sitt eða ekki, þá tel jeg þann meiri drengskaparmann, sem aldrei gengur á slík heit, en hinn, sem lætur sjer nægja að uppfylla vottfest loforð. Því að maður, sem hefir vottfest loforð í höndum, getur farið til dómstólanna og rekið rjettar síns; en hinn, sem aðeins styðst við munnlegt heit, á alt undir drengskap þess, er hjet. Slíkum efndum hafa menn búist við af þingi og stjórn, og er því ilt til þess að vita, að þau hafa hvað eftir annað brotið slíka samninga á mönnum.
Þetta vildi jeg sagt hafa út af ummælum hæstv. fjrh. (JÞ) um till. mína.
Þá reis mikill spámaður upp á meðal vor, hv. 4. þm. Reykv. (MJ). Hefir hann verið að safna í sig veðrinu allan þingtímann, þar til nú að hunangssæt orð flutu af vörum hans. Hann byrjaði á því að raupa af því, að hann væri mesti sparnaðarmaður þingsins. Fann jeg ekki, að hann færði fyrir þessari staðhæfing önnur rök en þau, að hann hefði enga brtt. borið fram við fjárlögin. En jeg ætla nú, að þetta lýsi síður sparsemi hv. þm. (MJ) en hirðuleysi, því jeg tel sjálfsagt, að það hefði verið margt, sem hann hefði viljað styðja og hefði átt að bera fram, ef hann hefði haft dug til. Annars skal jeg geta þess honum til hugnunar, að jeg er mesti sparnaðarmaður þingsins, og að mitt á milli okkar hv. þm. (MJ) hossast hæstv. fjrh. (JÞ), sem þó að líkindum hrekkur af baki áður en lýkur. Jeg er mesti sparnaðarmaður þingsins, af því jeg horfi aldrei í eyrinn, þegar um langtum meira verðmæti er að ræða á móti. Jeg er mesti sparnaðarmaðurinn, af því að jeg kann best að eyða fjenu. Jeg eyði peningum til þess að vernda líf manna og bjarga því. Jeg eyði peningum til að vernda og stuðla að andlegu lífi í landinu. Og jeg eyði fje til þess að halda við lífinu í nokkrum gáfumönnum, sem vinna þjóðinni margfalt gagn. Jeg fylgi yfir höfuð þeirri reglu að nota fjeð vel og að líta á dýrmæti þau, sem á að spara — eyða fremur eyrinum en sóa því, sem er verðmætast. Þess vegna er jeg mesti sparnaðarmaður þingsins.
Hv. þm. (MJ ), sem svo fagurlega talaði um sparnað sinn, sýndi hann nú lítt í verki, er hann fór að vekja hjer umr. um nafnatill. fjvn. Honum fanst það fjarskalega undarlegt, að hann skyldi finna föðurnafn fáeinna manna, þótt danskurinn hafi kent þeim að japla á þeim eftir sínum venjum, en ekki eftir fornum landsvenjum og eðli málsins. Hann kvað það þyrfti að segja sjer það þrisvar áður en hann tryði því, að öll fjvn. vildi kenna menn við föður þeirra. Það er nú búið að segja honum það einu sinni, og jeg segi honum það hjer með aftur. Vonandi fær hann svo að heyra það í þriðja sinn, en enginn Njáll verður hann við þetta samt. Hann talaði mikið um, hvað fjvn. væri virðuleg og sjer hefði altaf þótt, að það væri virðulegt að vera kosinn í þá nefnd. Jeg vil ekki mótmæla þessum virðulegheitum. Það er vant að velja heldur góða menn í fjvn., þótt þeir auðvitað gefist misjafnt eins og aðrir. En honum fanst það virðulegast við nefndarmenn, að þeir ættu að halda í landsfje. Þetta þótti mjer sitja heldur illa á honum, því að jeg ætla, að ef hann talaði eins og honum býr í brjósti og segði satt frá, þá myndi hann líta líkt á fje og jeg. Síðan kom hann með hið mjúka guðspjall sitt hið nýja um uppnefnin. Mjer kemur það einkanlega kynlega fyrir, að maður, sem hefir verið prestur, skuli kalla það uppnefni að kenna menn við föður þeirra. En jeg verð líklega að trúa, að hann hafi ekki gerst svo hótfyndinn í prestskapnum að spyrja konur um feður barna sinna, svo að hann yrði ekki að uppnefna blessuð börnin. Hann bygði ræðu sína á fremur veikum grundvelli. Hann kom með vísur, sem áttu að sanna mál hans. Hafði ort þær sjálfur eða einhver annar. (MJ: Halldór Gunnlaugsson orti þær). Jeg kann líka vísu eftir mann, sem er enn frægari og ágætari. Gröndal kvað:
Íslendingurinn ætla jeg sje
illa fær til að dríva handel,
þótt sumir heiti Hermann Per og Wandel.
Nefndin hefir, eins og jeg sagði, ekki gert annað en tilnefna föðurnöfn fólks. Hv. þm. (MJ) kvað það lögbrot, en í þeim lögum, sem hann vitnaði í, stendur ekki stafur um, að menn megi ekki kenna menn við föður þeirra. Og enginn lifandi maður getur meinað mjer að rita föðurnafn einhvers, fremur en eitthvert orðskrípi, sem hann hefir skreytt sig með Alþingi vill, að fólk sje ættfært rjett; því setur það Eggert Eiríksson Briem í fjárlögin, svo að enginn skuli ætla, að átt sje t. d. við Eggert Gunnlaugsson Briem. Ef hjer er um lagabrot að ræða, þá er það fólgið í svigunum, sem settir eru um ættarnöfnin. En jeg man ekki til, að það sje bannað í neinum lögum að nota slíka sviga.
Hv. þm. (MJ) hjelt endilega, að það myndi baka mönnum ógurlega skapraun, þegar þeir ættu að fara að kvitta fyrir fjárhæðirnar, að þurfa að skrifa nafnið sitt öðruvísi en vanalega. En þetta er tóm vitleysa og kemur sjálfsagt af því, að hv. þm. (MJ) veit ekki, hvernig afhending þessa fjár er varið. Hver og einn verður aðeins að sanna, að hann sje sá, er upphæðin er ætluð, og síðan má hann skrifa nafnið sitt á kvittunina alveg eins og hann er vanur að rita það. Jeg man það, að jeg fylgdi fast fram styrk til Jóns sagnfræðings Jónssonar frá Ráðagerði, og styrkur sá hljóðaði upp á nafn Jóns sagnfræðings Jónssonar. Víst er það, að hann fjekk hann, hvernig sem hann ritaði nafn sitt á kvittunina, en jeg geri ráð fyrir, að hann hafi aðilsað sig þar.
Hv. þm. (MJ) talaði um, að lengra þyrfti að fara og koma öllum útlendum nöfnum á íslensku. Við í fjvn. höfum ekki viljað gera það, en ef málhreinsunarandi knýr hann til þess, þá er sjálfsagt, að hann taki það að sjer. Annars er nú Íslendingum ekki tamt að nefna útlenda staði með íslenskum nöfnum. Því ef manni varð t. d. á að nefna Osló, þá var undir eins hrópað: Veistu ekki, að hún heitir Kristianía. Og ef nefnd er Björgvin, leiðrjetta menn og segja Bergen. Og ekki má kalla Niðarós annað en Trondhjem. En þar sem menn fást ekki til að nefna forna staði útlenda fornum íslenskum nöfnum, ætla jeg að erfiðlega gangi fyrir hv. þm. (MJ) að skíra upp alla útlendinga og útlenda staði. Fjvn. hefir aldrei farið fram á slíkt og mun aldrei gera, því að hún veit, að þetta er ekki sambærilegt. Útlendingar mega heita sínum nöfnum; við eigum að bera okkar kinnroðalaust.
Hv. þm. (MJ) hjelt, að ef ættarnafnamenn kæmust í fjvn., þá myndu þeir setja ættarnafn á hvern mann. Hann hefir sjálfsagt lesið það í náttúrufræði þeirri, er hann lærði, að ættarnöfn væru mönnum eins eðlileg og það að eiga einhvern föður.
Jeg hygg, að hann muni nú sjálfur sjá, hvílík fjarstæða ræða hans var.
Jeg vil því snúa mjer að miklum mælskumanni, sem mintist mín í gær, og er jeg honum þakklátur fyrir. Það var hinn mikli mælskumaður hv. þm. Mýra. (PÞ), sem eins og allir vita sigraði með mælskunni við síðustu kosningar. Hann kvartaði um, að jeg hefði ekki mælt nógu vel með till. um styrkinn til búnaðarfjelaganna. Það er rjett, að mjer er ekki mælskan eins lagin og honum, en jeg reyndi að gera fulla grein fyrir þessari till. við 2. umr. og var því stuttorður um hana í gær. Við 2. umr. benti jeg á, að jeg tryði búnaðarfjelögunum best til þess að fara með þá peninga, sem ætlaðir væru til framkvæmda í búnaði. Og jeg taldi rjett að byrja við uppsprettuna og láta þá menn hafa fjeð, sem næst standa verkinu, vita hvað þarf að gera og geta keypt sjer í sameiningu, með nokkrum styrk, nauðsynleg verkfæri til framkvæmdanna. Mjer er það fullljóst, að partur af 10 þús. til hvers fjelags er alt of lítið. Jafnvel þó að um part úr 20 þús. væri að ræða, væri það of lítið. Það hefði þurft 30 þús. kr. til þessa, eins og jeg og fleiri lögðum áherslu á, að veittar væru þessum fjelögum fyrir nokkrum árum og fengum þá framgengt.
Hæstv. atvrh. (MG) talaði um, að miklar styrkveitingar væru veittar eftir jarðræktarlögunum og að þær fengju sumir þeirra manna, sem eru í búnaðarfjelögunum. En þetta kemur ekki málinu við, því að jeg býst við, að þessir menn vilji eiga sína peninga sjálfir og leggi þá ekki í sameiginlegar framkvæmdir.
Jeg veit nú, að háttv. þm. Mýra. (PÞ) hefði getað mælt miklu betur fyrir till. en jeg hefi gert, og jeg furða mig á, að hann skyldi ekki gera það, úr því hann stóð upp og bar á mig ljelegan málaflutning í þessu máli. Úr því að honum er svo ant um þessar framkvæmdir, hefði hann ekki átt að setja ljós sitt undir mæliker, heldur láta það skína, svo að allir greiddu þessari till. atkv.
Hv. þm. (PÞ) var að tala um virðingu og sóma þingsins. Lagðist hann þá svo djúpt, að vart mátti skilja meininguna. Hafi hann ætlað að lofa þingið, kann jeg honum þakkir, en hafi hann ætlað að hnjóða í hv. þm., þá vil jeg og fyrir mitt leyti þakka honum tilsögnina. Það er ekki nýtt, að hann ræðst í að endurbæta menn og flokka. Er mönnum vel kunnugt, að seinast skifti hann um skoðun til þess að endurbæta Tímaflokkinn. Jeg vona, að sú tilraun hans gangi vel, og eins mun jeg fúslega taka allri tilsögn, er hann vill láta mjer í tje. Hann sagði, að mjer væri gjarnt að tala um, hvað öðrum hv. þm. gengi til, er þeir greiddu atkvæði. Vitanlega dreg jeg mínar ályktanir. En jeg verð að játa, að jeg ályktaði skakt síðast, er jeg ætlaði, að hann greiddi atkvæði á móti styrknum til búnaðarfjelaganna af því, að hann ynni þeim ekki fjárins. Nú sje jeg að hann gerði það af því jeg mælti svo illa fyrir tillögunni. Er jeg hróðugur yfir, að orð mín mega sín svo mikils hjá hv. þm. (PÞ), og þar sem jeg nú hefi endurbætt og aukið ummæli mín um þennan lið, þá ætla jeg, að hv. þm. (PÞ) geti nú verið ánægður og láti búnaðarfjelögin njóta þess með því að greiða atkv. með till.
Jeg ætla nú að ljúka máli mínu, en vil biðja hv. þdm. að láta mig njóta tilsagnar sinnar framvegis, engu síður Framsóknarmenn en aðra.