01.04.1925
Efri deild: 44. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2361 í B-deild Alþingistíðinda. (1405)

79. mál, selaskot á Breiðafirði og uppidráp

Frsm. (Eggert Pálsson):

Jeg ætla alls ekki heldur að gera þetta mál að kappsmáli. Jeg vildi aðeins vekja athygli á því, að við erum nýbúnir að samþykkja lagafrv. um sektarákvæði fyrir brot gegn tilskipun um veiði frá 1849, alveg samhljóða þeim, sem sett eru í 2. gr. þessa frv. Ef nú brtt. á þskj. 261 verða samþyktar, þá gilda önnur ákvæði fyrir Breiðafjörð en alla aðra hluta landsins um viðurlög við seladrápi. Þessar brtt. hefðu því átt að koma við það frv., því þá hefðu sektarákvæðin orðið samhljóða um land alt.