09.03.1925
Efri deild: 26. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2363 í B-deild Alþingistíðinda. (1412)

91. mál, einkenning fiskiskipa

Forsætisráðherra (JM):

Jeg er þakklátur hv. nefnd fyrir að flytja þetta frv. fyrir ráðuneytið, því að við það sparast bæði tími og kostnaður til símunar.

Jeg er samdóma hv. frsm. um það, að ekki sje ástæða til að vísa frv. til nefndar. Ákvæði þess eru svo einföld, að þau ættu ekki að þurfa frekari meðferðar en hægt er að hafa við umræður í deildinni.

Það er, eins og bent er á í greinargerð frv. og hv. frsm. hefir minst á, ákveðið í þjóðasamningi, sem ísland hefir tekið þátt í, að skip skuli merkt eins og nú er orðið algengt um flestra þjóða fiskiskip. Það er beinlínis ákveðið í samningnum frá 6. maí 1882, að fiskiskip öll skuli merkt ákveðnum merkjum á stafni og beggja megin að framan, og þannig eru merkt allra þjóða fiskiskip, er þátt tóku í þessum samningi. Samningur þessi gilti um Norðursjóinn og alt norður að 61. breiddarstigi. Tóku þátt í honum auk Íslands: Danmörk, Þýskaland, Holland, Belgía, Bretland og Frakkland. Milli Íslands, Danmerkur og Bretlands voru gerðir samningar 24. júní 1901 um höfin milli íslands og Fœreyja fyrir norðan 61. breiddarstig.

Það sjest, að Norðmenn hafa ekki tekið þátt í þessum samningum, og fiska þeir þó hjer við land. En þeir hafa hjerumbil sömu ákvæði um merkingu á fiskiskipum sínum. Við það á frv., þar sem tekið er fram, að nægja megi samskonar merki og gert er ráð fyrir í samningunum 1882 og 1901. Það gæti rekist dálítið á, ef hingað kæmi fiskiskip frá þjóð, sem ekki hefði lögmælt merki, og yrði í þeim tilfellum að fara gætilega og taka það til greina, ef ske kynni að skipið vissi ekki um lögin.

Í byrjun þarf að framfylgja þessum lögum vægilega gagnvart þeim þjóðum, sem ekki hafa samskonar merkingu, ef ekki er beinlínis hægt að álíta, að um landhelgisbrot sje að ræða. Þetta er aðeins fyrst. Lögin verður auðvitað að tilkynna. En það er ekkert því til fyrirstöðu að samþykkja slík lög sem þessi.

Það getur skiljanlega verið dálítið hart, ef skip, sém bara siglir um farinn veg og ekki er að veiðum, væri tekið og því hegnt fyrir það, að merki þess væru ekki í lagi.

Um nauðsyn þessara laga hefir hv. frsm. (JJÓs) talað og lítillega vísað til greinargerðar frv., svo jeg þarf ekki að sannfæra hv. þdm. um nauðsyn málsins.

Það er stungið upp á þrennskonar hegningu, eftir því hvort um vísvitandi afbökun á merki er að ræða samfara ólöglegum veiðum, eða vísvitandi dulið merki, þó skipið sje ekki staðið að ólöglegum veiðum, og loks ef um hirðuleysi eitt í merkingu er að ræða.

Gagnvart útlendum skipum verður í fyrstu að fara vægilega í sakir, ef ekki er ástæða til að gruna skipið um landhelgisbrot. En hin íslensku skipin verða auðvitað að hlýða lögum þessum þegar í stað eftir að þau eru afgr. úr þinginu. Og út af skipum frá þeim þjóðum, sem taka þátt í samningunum, geta engin vandræði orðið.