21.03.1925
Neðri deild: 39. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2374 í B-deild Alþingistíðinda. (1444)
61. mál, vörutollur
Frsm. (Jón Auðunn Jónsson):
Það er sjálfsagt að laga þetta til 3. umr. og mun fjhn. koma fram með brtt. í þessa átt. En hitt tel jeg rjett, að afgreiða frv. nú þegar frá 2. umr. Þó að tolla beri girðinganet samkvæmt stjórnarráðsúrskurði eftir 2. lið, þá er það víst, að sumir lögreglustjórar hafa, sennilega af misgáningi, tollað þessa vörutegund eftir 7. lið. Jeg fyrir mitt leyti álít, að allar þær breytingar, sem hæstv. stjórn hefir á þennan hátt gert á vörutollslögunum, ætti að taka upp í þetta frv. Annars mun nefndin bera sig saman við hæstv. fjrh. áður en frv. kemur til 3. umr.