02.04.1925
Neðri deild: 49. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2393 í B-deild Alþingistíðinda. (1455)
61. mál, vörutollur
Frsm. (Jón Auðunn Jónsson):
Aðeins nokkur orð út af skriflegu brtt. Eins og menn sjá, er aðeins um orðabreytingar að ræða, og vænti jeg, að hv. þm. hafi ekkert á móti þeim.
En út af því, sem hv. þm. Str. sagði, má geta þess, að það mun vera lítt rannsakað mál. En sje svo, að t. d. klaufnasjúkdómur geti flust með heyi, þá er það mjög athugavert og gæti orðið til þess, að banna yrði að flytja inn hey frá þeim löndum, þar sem þessi sjúkdómur er landlægur. En við höfum nú flutt hey inn frá Noregi um tugi ára, og sem betur fer hefir það aldrei komið að sök, enda er það vitanlegt, að til Noregs hefir þessi sjúkdómur ekki borist, og berst þangað vonandi aldrei, því Norðmenn hafa sterkar varnir í því skyni. En þetta stendur ekki í neinu sambandi við það, sem hjer er verið að ræða um, tollverndun fyrir innlent hey. En þá þarf að sjá öðruvísi fyrir búpeningnum í landinu en hingað til hefir verið gert. Því oft hefði orðið alger fellir í sumum sjávarþorpum, ef ekki hefði verið flutt inn útlent hey.
Hæstv. fjrh. (Jp) gat í þessu sambandi um Vestmannaeyinga. Þeir afla að miklu leyti heyja sinna í Rangárvallasýslu, en jafnvel þriðja og fjórða hvert ár er það svo, að þeir ná ekki heyinu til Vestmannaeyja vegna brims, og verða þá' að kaupa útlent hey.