25.02.1925
Neðri deild: 16. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2397 í B-deild Alþingistíðinda. (1465)
57. mál, bæjarstjórn á Akureyri
Jón Baldvinsson:
í þessu frv. er tekið fram, að hlutfallskosning til nefnda skuli þá viðhafa, er 4 bæjarfulltrúar æskja þess. Þetta þykir mjer fullliá tala, miðað við fjölda bæjarfulltrúa á Akureyri. Jeg vil miða þetta við þá minstu tölu bæjarfulltrúa, sem með hlutfallskosningu gætu komið manni í þriggja manna nefnd. Sje nú t. d. miðað við tölu bæjarfulltrúa á Akureyri, sem nú eru 11, þá ættu 3 fulltrúar að geta komið að manni í þriggja manna nefnd, ef hlutfallskosning væri viðhöfð. Jeg vil því láta orða þetta svo, að ef 3 bæjarfulltrúar krefjast þess, skuli viðhöfð hlutfallskosning í fastanefndir bæjarstjórnarinnar á Akureyri. Jeg hefi vakið máls á þessu atriði við hv. flm. frv. (BL), og hefir hann fallist á þessa till. fyrir sitt leyti. Þá er sú önnur brtt. mín, um það, að lögin öðlist þegar gildi, og vil jeg jafnframt taka það fram í lögunum, að bæjarstjórn Akureyrar sje heimilt, ef henni sýnist svo, að láta fara fram nýjar kosningar í fastanefndir. Á Akureyri mun vera kosið í nefndir til tveggja ára, og nú eru þær kosningar, að því er jeg hygg, nýafstaðnar, og væri því rjett að heimila bæjarstjórninni þetta, til þess að lögin geti komið til framkvæmda sem fyrst, ef bæjarstjórnin teldi þetta æskilegra. Jeg get ekki sjeð, að ástæða sje til þess fyrir hv. þm. að leggjast á móti þessum till. mínum, enda hygg jeg, að hv. flm. (BL) sje heldur ekki mótfallinn þessari tillögu minni.