01.04.1925
Efri deild: 44. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2401 í B-deild Alþingistíðinda. (1483)

109. mál, sóttvarnalög

Forsætisráðherra (JM):

Jeg var ekki viðstaddur 1. umr. þessa máls, en jeg er nefndinni þakklátur fyrir, að hún vildi flytja það fyrir mig, til þess að forðast kostnað við að fá símleiðis samþykki konungs. Þetta mál þurfti að koma fram nú, því að sæmilegt boð var fyrir hendi í sóttvarnarhúsið á Ísafirði, og fæst máske ekki eins gott síðar. Andvirðið þykir mjer rjett að gangi til þess að fá sótthreinsunarofn handa sjúkrahúsinu á Ísafirði. og mætti það máske hjálpa eins vel til varna gegn erlendum sjúkdómum.

Sóttvarnarhúsið á Akureyri er nú notað fyrir sjúkrahús. Það þykir rjettast, að kaupstaðnum yrði afhent húsið eins og það er.

Um húsið á Seyðisfirði hefir ekki sjerstaklega verið rætt. Jeg býst við, að sá kaupstaður geti notað húsið á einhvern hátt til heilbrigðisráðstafana. Það er rjett, sem háttv. frsm. (JóhJóh) sagði, að hús þessi hafa verið byrði fyrir ríkissjóð og verra að hafa þau en ekki, þar sem ekki hefir þótt ástæða til að kosta viðhald á þeim, en á hinn bóginn hefir aldrei þurft að nota þau. Og þó þess nú þyrfti, mundi kosta of mikið að útbúa þau sæmilega. Svona sjúklingar koma ekki oftar en svo, að óhætt er að láta skipið fara til Reykjavíkur. En sje ómögulegt fyrir það að komast til Reykjavíkur, verður að gera sjerstaka ráðstöfun. Jeg vona, að háttv. deild geti fallist á þetta frv.