08.04.1925
Neðri deild: 54. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2449 í B-deild Alþingistíðinda. (1533)
100. mál, sala á prestsmötu
Frsm. meiri hl. (Björn Líndal):
Jeg ætla mjer ekki að fara að deila hjer um söguleg atriði þessa máls. Til þess treysti jeg mjer ekki, síst við dósent í guðfræði. En svo mikið er víst, að nú eru flestir sammála um það, að hyggilegast sje að koma öllum þessum gömlu og úreltu kvöðum fyrir kattarnef sem fyrst. Mjer skildist háttv. frsm. minni hl. (MJ) telja efasamt, hvort gróði yrði fyrir þann, sem prestsmötuna kaupir, að þessari lagabreytingu. (M.J: Gróði nú). Já, það kann að vera þangað til næsta 10 ára mat fer fram, árið 1929, og jafnframt tapa þá prestar einhverju tilsvarandi á sama tíma, en þó ekki öðru eða meira en því, sem þeir hingað til hafa hagnast árlega á miklu hærra smjörverði en lagt var til grundvallar þegar verðlagið var síðast sett á mötuna upp í tekjur þeirra. Ef smjörverðið lækkar eftir árið 1929, mega prestar búast við stórtapi við það að fá prestsmötuna upp í laun sín. Þess vegna mega þeir þakka fyrir að losna við hana nú. Jeg tel öllum þeim hagkvæmast, er hlut eiga hjer að máli, að þessar kvaðir verði úr sögunni sem allra fyrst, og mun jeg svo ekki orðlengja þetta frekar.