22.04.1925
Efri deild: 58. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2459 í B-deild Alþingistíðinda. (1549)
100. mál, sala á prestsmötu
Eggert Pálsson:
Jeg býst við, að það sje tilgangslítið fyrir mig að fara að taka til máls, þar sem jeg er á móti þessu frv., en nefndin hefir á að skipa 5 mönnum, sem eru einróma með því. Hinsvegar er stöðu minni þannig háttað, að jeg tel mjer skylt að gefa upplýsingar í málinu, og það því fremur, sem jeg álít að nefndin hafi gengið blindandi að þessu, þar sem hún hefir ekki leitað sjer upplýsinga um, hverju mundi muna fyrir þjóðina, ef þessi ákvæði yrðu samþykt. Þetta hefir nefndin ekki gert. Hún hefir fengið skrá yfir óseldar prestsmötur; það er alt og sumt. En að öðru leyti ekki leitað sjer upplýsinga um, hverju muna mundi, ef prestsmötur væru seldar eftir ákvæðum frv., samanborið við, ef seldar væru eftir gildandi lögum. Þegar um slíkt mál er að ræða, var nefndinni skylt að leita upplýsinga hjá þeim manni, sem stendur málinu næst, sem sje biskupi landsins.
Mál þetta varðar ekki svo mjög prestana sjálfa. Eins og háttv. frsm. (JJ) tók fram, geta prestar tapað í bili, en þess ber að gæta, að í framtíðinni gætu þeir grætt á að vera lausir við mötuna. Matan er nú metin eftir 5 ára meðaltalsreikningi, frá 1914–1919. Þá var verð á smjöri lágt, og því sitja prestar nú uppi með mötuna með frekar góðum kjörum. Næst þegar metið verður, yrði farið eftir verðskrá frá 1924 –1929. Þá er viðbúið, að matan hækki mikið, og þá sitja prestar þar af leiðandi uppi með mötuna með háu verði. Eftir því sem matan er hærra metin, þarf minna að leggja fram úr prestlaunasjóði til að launa prestum. Það segir sig sjálft. Í framtíðinni er því viðbúið, að tapið af því að selja prestsmötuna samkv. ákvæðum þessa frv. komi aðeins niður á ríkissjóði. Jeg hefi reynt að gera mjer ljóst, hverju munaði, ef matan yrði seld eftir gildandi lögum eða eftir því, sem frv. gerir ráð fyrir. Samkv. þeim gögnum, er jeg hafði í eigin fórum, komst jeg að þeirri niðurstöðu, að það mundi muna 1/3. En mjer þótti þau gögn ófullkomin og leitaði því til manns, sem vit hafði á málinu, og vil jeg nú, með leyfi hæstv. forseta, lesa upp skýrslu, sem jeg þori að ábyrgjast, að er rjett. Skýrslan hljóðar svo:
„Alt prestsmötugjaldið nú jafngildir 9165 pd. af smjöri, metið prestum á 8615,30 kr. Væri þetta selt eftir 10 ára meðalverði á undan, mundi á hvert pund vera 28 kr. í höfuðstól, miðað við 5%. Þessi 9165 pd. jafngiltu þá höfuðstól að upphæð 256620 kr. Þetta fengist, ef selt væri nú eftir gildandi lögum. Væri farið eftir frv., væri það svo: Heimatekjumatið er miðað við 5 ára tímabil (1914–1919), og upphæðin eftir því mati 8615,30 kr. jafngildir 5% höfuðstól að upphæð 172306 kr.“
Mismunurinn, sem á að slá af, er þá 84314 kr. Þetta væri máske sök sjer, ef þeir, sem þetta eiga að fá, mættu teljast þurfalingar, eða ættu sanngirniskröfu til þess. En jeg álít, að svo sje ekki.
Hv. frsm. afsakaði þetta með því, að á kirkjubændum hvíldi sú skylda að halda kirkjunum við. Þetta má vel vera að eigi við á stöku stað, en ekki mun þetta vera alment, þar eð það er mjög víða, er söfnuðirnir hafa tekið við kirkjunum, og eru þá kirkjubændur þeirra kirkna lausir við þá kvöð. Á hina hliðina er og á það að líta, að eigendur þessara jarða, sem annaðhvort hafa tekið þær að erfðum eða eignast þær við kaup, hafa ávalt fengið tekið tillit til þessara kvaða, sem á jörðunum hvíldu. Ef jörð með prestsmötukvöð á hefir verið lögð út til arfs, hefir ávalt verið tekið tillit til þessarar kvaðar, er jörðin hefir verið metin til arfskiftanna, og á sama hátt er jörð með þessháttar kvöð hefir seld verið eða keypt, hefir ávalt verið tekið tillit til þessarar kvaðar, og söluverðið því ákveðið lægra en ella. Sjálfur hefi jeg selt jörð með þessari kvöð á, og bæði mjer og kaupandanum var fullljóst, að þetta gjald hvíldi á jörðinni og að verðið varð þess vegna að ákveðast mun lægra.
Þrátt fyrir það, sem jeg nú hefi reynt að upplýsa í þessu máli, geri jeg þó ráð fyrir, að frv. þetta verði samþykt, er svo mikill styrkur stendur á bak við það; en mjer dylst það ekki, að þetta mál mun draga dilk á eftir sjer. Samkvæmt gildandi lögum hefir verið selt ekki svo lítið af prestsmötu á síðustu árum, og þeir, er keypt hafa nú síðast, munu fljótt sjá, að þeir hafa keypt af sjer þessa kvöð við hærra verði en þeir, sem kaupa vilja næstu ár, þurfa að greiða fyrir, ef frv. þetta verður að lögum. Það væri því ekki að undra, þótt þessir menn kæmu t. d. fyrir næsta þing með málaleitanir eða færu bónarveg um ívilnanir á því verði, sem þeir hafa greitt umfram fyrir prestsmötu, borið saman við verð það, sem frv. þetta gerir ráð fyrir. Jeg veit að vísu ekki, hvernig þingið mundi taka undir slíkar málaleitanir, en þetta væri þó sanngirnismál, því að allir eiga að vera jafnir gagnvart lögunum, eins í þessu sem öðru. Og það er alls ekki svo lítið, sem hjer er um að ræða; jeg veit t. d. til, að fyrir norðan, í Reykjahlíð, hefir verið seld prestsmata nýlega, sem var eitthvað á annað hundrað pund. Þeir, sem keyptu, hafa því greitt 600–700 kr. meira en greitt Verður samkv. þessu frv., og því væri ekkert undarlegt, þó óánægja kynni að rísa út af þessu og öðru svipuðu.
Jeg er ekki að mæla á móti þessu frv. vegna hagsmuna presta, því þó þeir kunni að missa einhvers í við þetta þau fáu ár, sem eftir eru þangað til metið verður aftur, þá munar það ekki svo ýkjamiklu hvern einstakan. En það er ríkissjóður, sem blæðir. Og næst, þegar metið verður, mun það sjást betur en nú, ef eitthvað verður þá eftir til að meta, ef þá verður ekki búið að selja alt, sem nú er óselt af prestsmötu. En við því er búið, að það verði lítið. Því gjaldendur þessara 9165 pd., sem nú eru eftir óseld af prestsmötu, munu óefað sjá sjer leik á borði að notfæra sjer þau kostakjör, sem þeim eru boðin með frv. þessu, þegar það er orðið að lögum.