23.02.1925
Efri deild: 12. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2469 í B-deild Alþingistíðinda. (1556)
59. mál, sundnám
Flm. (Jóhann Jósefsson):
Eins og sjá má af greinargerðinni, er fylgir frv. þessu á þskj. 65, er það flutt samkv. tilmælum bæjarstjórnarinnar í Vestmannaeyjum. Í Vestmannaeyjum hefir um nokkurra ára skeið verið haldið uppi sundkenslu og hún kostuð sumpart af bæjarfjelaginu og að nokkru leyti af ríkinu. U. M. F. þar í Eyjunum kom sjer upp sundskála, er það hefir gefið bænum, og er hann síðan notaður til þessarar kenslu. Nú hefir bæjarstjórn lagt kapp á að fá unglingana til þess að stunda námið, en þó lítið orðið framgengt, enda er talsverð óánægja yfir því, hvað unglingarnir, einkum þó þeir, sem farnir eru að stálpast, eru latir í þessu efni og leggja litla rækt við námið. Það er því af þessum ástæðum, að bæjarstjórnin hefir óskað eftir lagaheimild, þar sem hún geti skyldað unglingana til námsins. Þótti mjer þó rjettara, ef sett væru lög um þetta efni, að þau væru ekki eingöngu bundin við Vestmannaeyjar, heldur gætu þau náð til allra sveitar- og bæjarstjórna, hvar sem eru á landinu, er áhuga hafa fyrir þessu máli. Aldurstakmarki því, er bæjarstjórnin hafði sett, hefi jeg breytt. Hún ætlaðist til í upphafi, að lagaheimildin næði til allra unglinga á aldrinum 10–18 ára. En það þykir mjer fulllangt gengið og hefi því sett í frv. 10–15 ára. Síðan hafa skilagóðir menn bent mjer á, að varasamt væri að skylda 10–11 ára börn til sundnáms, þegar aðeins væri um sjó að ræða, en hvergi volgar laugar til þess að synda í. Á þetta get jeg vel fallist, og myndi þá heppilegra að miða við 12 ára aldur fremur en 10. En þetta vona jeg, að nefndin athugi, og get jeg vel fallist á þessa breytingu, eins og vitanlega fleiri, ef þær miða til bóta.
Það þarf síst neinn að furða, þó að þessi ósk komi fram í Vestmannaeyjum. Fáir hjer á landi munu hafa jafnoft þreifað á því eins og Vestmannaeyingar, hvað sundíþróttin er nytsöm þeim mönnum, sem jafnmikið verða að gefa sig sjónum á vald og þeir. Jeg skal nefna sem lítið dæmi, að einn ágætlega sundfær maður þar í Eyjunum hefir núna á fáum árum bjargað 4 börnum, er fallið hafa út af bryggjum og öll hefðu druknað, hefði ekki sundleikni hans og snarræði notið við. Mönnum, sem jafnmikið hafa saman við sjóinn að sælda eins og Vestmannaeyingar, er það lífsspursmál að temja sjer þegar í æsku þessa nytsömu íþrótt. Það skal að vísu játað, að sumir unglingar tapa ef til vill einhverju í vinnu við að stunda þetta nám, því einmitt á sama tíma og kensla fer fram eru sumir þeirra bundnir við ýms störf. Þó þarf ekki mikið að gera úr því. Hinir eru fleiri, sem lítið taka sjer fyrir hendur, og er þá gott að geta haldið þeim með lögum að sundnáminu.
Jeg vona nú, að hv. deild sjái sjer fært að lofa frv. þessu að ná fram að ganga, og þá vitanlega með þeim breytingum er hún sjer, að til bóta megi vera.
Jeg ætla ekki að halda langa ræðu um sundkunnáttu nje nauðsyn hennar. Um það mál hefir verið rætt og ritað ítarlega. En áður en jeg sest niður vil jeg þó leyfa mjer að vekja eftirtekt á því, að stjórn Íþróttasambands Íslands fór fram á það 1920, eins og nánar er vikið að í greinar gerð frv., að sund yrði gert að skyldunámsgrein í öllum skólum. Er því auðsætt, að hjer er ekki um neitt hjegómamál að ræða.
Jeg get þá látið máli mínu lokið að þessu sinni; legg aðeins til, að frv. verði að þessari umr. lokinni vísað til mentamálanefndar.