23.03.1925
Efri deild: 37. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2474 í B-deild Alþingistíðinda. (1559)

59. mál, sundnám

Jóhann Jósefsson:

Jeg er hv. mentmn. og hv. frsm. (IHB) þakklátur fyrir það, hvernig tekið hefir verið í þetta mál. Því það er auðsjeð á nál. og auðheyrt á ræðu hv. frsm., að tilgangur frv. hefir mætt skilningi hjá hv. nefnd. Hvað snertir ýmislegt, sem hv. frsm. (IHB) tók fram, t. d. dýpt sundlaugarinnar og hin nauðsynlegustu tæki við kensluna, þá er gert ráð fyrir, að tekið verði fullt tillit til þess í væntanlegri reglugerð um þetta efni. Jeg get fyllilega fallist á brtt. því jeg veit, að t. d. ákvæðið um aldurstakmörkin og eins um læknisskoðunina eru tekin upp í samráði við lækna. Hefi jeg þess vegna ekkert við breytinguna að athuga og vona, að frv., þannig breytt, fái framgang í hv. deild.