23.03.1925
Efri deild: 37. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2480 í B-deild Alþingistíðinda. (1564)

59. mál, sundnám

Einar Árnason:

Það er rjett hjá hv. þm. Vestm. (JJós), að í frv. er gert ráð fyrir, að sett verði reglugerð. En það, sem mjer þótti á skorta, var það, að í frv. er ekkert talað um, hvað í þeirri reglugerð skuli standa.

Hv. frsm. (IHB) gat þess, að vel gæti fyrir komið, að vatnið í sundlaugunum gæti orðið gruggugt, svo jafnvel börnin gætu týnst. Slíkt tel jeg alveg óhæfilegt. Og jeg hefi þekt ýms sundstæði, þar sem vatnið er eintómt skólp. Þetta vildi jeg að komið yrði í veg fyrir, svo heilsu unglinganna gæti ekki stafað hætta af slíkum sundlaugum.

Þá er hitt atriðið, sem jeg er ekki ánægður með, að sundnámsskyldan skuli vera alt að tveimur mánuðum árlega í 4 ár. Jeg hefði heldur kosið, að hún hefði ekki verið nema alt að einum mánuði. Ef þessum atriðum yrði breytt, myndi jeg verða ánægður með frv. og ekki setja fótinn fyrir það, því að það er langt frá mjer að vilja gera lítið úr sundnáminu.

Af því að hv. frsm. (IHB) mintist á mannskaðana miklu í þessu sambandi, vil jeg geta þess, að í hópi þeirra, er druknuðu við Vestmannaeyjar, voru taldir ágætir sundmenn.