25.03.1925
Efri deild: 38. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2482 í B-deild Alþingistíðinda. (1568)

59. mál, sundnám

Jóhann Jósefsson:

Hæstv. forsrh. (JM) sagðist búast við því, að nefndin mundi hafa haft nauman tíma til þess að geta int af hendi ítarlega rannsókn um það, hvort samskonar heimildarlög fyrir bæjar- og sveitarstjórnir og hjer er um að ræða þektust annarsstaðar. Jeg get ekki svarað fyrir hönd hv. nefndar, og geri jeg ráð fyrir því, að hún svari fyrir sig. En jeg vil benda á það, að jafnvel þó ekki væru gerðar samskonar ráðstafanir og hjer er lagt til í öðrum löndum, þá er líka víða annarsstaðar hægra að fá menn til þess að iðka sund vegna staðháttanna og náttúruskilyrðanna en hjer á landi. Þess er ekki að vænta, að menn sæki hjer sund eins mikið sjer til ánægju eins og í þeim löndum, sem hlýrri eru og þar sem betri tæki og útbúnaður er fyrir hendi.

Hitt atriðið, að það sje varhugavert, að þingið afsali sjer parti af löggjafarvaldinu í hendur sveitarstjórnum yfirleitt — um það má vera, að segja megi sitthvað til að mótmæla því. En hitt finst mjer liggja opið fyrir, að eftir því sem sveitir og bæir eflast og þroskast, hljóti af því að leiða það, að þau fái meira og meira vald í innanhjeraðsmálum, og að þingið geti gengið inn á það í fleiri atriðum en nú á sjer stað, að sveitirnar skipi slíkum málum eftir því, sem þeim virðist að sjer henti best. Það hefir líka oft orðið vart við tilhneiging í þinginu til þess að láta einkum bæjarfjelögin bera ýmisleg gjöld og kostnað, sem áður hefir hvílt á ríkinu. Sú stefna gerir vart við sig næstum því á hverju þingi, og er þá eðlilegt, að eftir hinu sje gengið nokkuð hart, að bæjarfjelögin geti skipað þeim málum, er þau snerta sjerstaklega, án alt of mikillar íhlutunar frá ríkinu. Jeg skildi hæstv. forsrh. (JM) svo, að hann sæi einhverja hættu framundan, er stafaði af því, að ríkið afsalaði sjer of miklu valdi í hendur sveitarstjórna og bæjarstjórna.

Jeg játa, að slíkt verður að gerast með varúð, og sjerstaklega verður að taka tillit til þess, hvort um sje að ræða mál, sem sökum staðhátta verður að skipa á einn veg hjer og annan veg þar. Og til slíkra mála virðist mjer að heyri slík skylda til sundnáms, sem hjer er um að ræða.

Við 2. umr. þessa máls var það tekið fram, að ekki væri hægt að fylgja sömu reglu uppi til sveita og í kaupstöðum í svona máli. Mjer virðist nauðsynlegt, að einmitt sveitarfjelögin sjálf, sem hlut eiga að máli, ráði því, hvort þau vilja og hvernig þau vilja nota þessa umræddu heimild, að tilskildu samþykki stjórnarinnar, hvort hún vill fallast á þær tillögur, sem fram kunna að koma um þetta úr hinum ýmsu hjeruðum.