25.03.1925
Efri deild: 38. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2484 í B-deild Alþingistíðinda. (1569)
59. mál, sundnám
Sigurður Eggerz:
Jeg heyrði að vísu ekki alla ræðu hæstv. forsrh. (JM), en mjer skildist þó, að hans aðalástæða móti frv. væri sú, að þar með væri löggjafarvaldið að láta nokkurn hluta af valdi sínu í hendur annara aðilja. Það væri fróðlegt að rannsaka löggjöfina í þessu efni. Jeg er sannfærður um, að þá mundu finnast fleiri atriði en eitt og fleiri en tvö, þar sem sveitar- eða bæjarfjelögum er fengið svipað vald og hjer er um að ræða. Skal jeg þar minna á fjallskilareglugerðir, sem sveitarstjórnir gera og stjórnarráðið staðfestir síðan, og fleira af líku tægi. Jeg held því, að þessi ástæða hæstv. forsrh. sje ekki veigamikil. En þar sem þetta mál verður smátt og smátt að komast í framkvæmd, eftir því, sem atvik liggja til í hverju sveitarfjelagi, þá þótti nauðsynlegt að gefa þessa almennu heimild.
Hitt er auðvitað aðalatriðið, hvað mikið eigi að leggja upp úr því, að lögð sje veruleg rækt við sundið. Jeg tók það fram við 1. umr. málsins, og hefi oft gert það áður, að jeg tel sund, leikfimi og aðrar slíkar íþróttir, sem iðkaðar eru úti, nauðsynlegar fyrir uppeldi þjóðarinnar. Það skiftir þjóðina mestu máli, að æska hennar bíði ekki tjón á sál sinni meðan hún er að ganga gegnum hina ýmsu skóla. En öruggasta ráðið til þess að varna því er bæði leikfimi, sund og aðrar útiíþróttir. Þess vegna hefi jeg fylgt þessu frv. hv. þm. Vestm. (JJós) með ánægju. Jeg er sannfærður um. að rjett er að leggja sem mesta áherslu á það, að sund og leikfimi sje iðkað meir en verið hefir.
Vil jeg svo að lokum leyfa mjer að mæla fastlega með því, að frv. verði samþykt í hv. deild.