24.04.1925
Neðri deild: 63. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2489 í B-deild Alþingistíðinda. (1581)
59. mál, sundnám
Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):
Jeg skal fyrst lýsa yfir því, að mentmn. tekur aftur brtt. sína á þskj. 306. En svo hefir hún borið fram tvær aðrar brtt. á þskj. 370. Nefndinni þykir tíminn, sem tilskilinn er í frv., of langur, og vill því stytta hann. Þýðir ekki að skylda menn til sundnáms lengur en 4 mánuði, því að það er hægt að læra sund á miklu skemri tíma í heitri laug. En skylda mætti menn til 4 mánaða náms þar, sem lært er í köldum sjó og til er ætlast, að nemendurnir nái ágætri leikni.
Þótt í frv. standi, að heimilt sje að skylda alla til sundnáms, lítur nefndin svo á, að ef eitthvert sveitarfjelag vill skylda pilta sína til námsins, þá sje það heimilt. Ef skylda má alla til námsins, þá má og skylda nokkra. Karlmenn hafa yfirleitt meiri þörf fyrir það en stúlkur að kunna sund, þótt hitt sje að vísu ágætt, að stúlkur sjeu líka syndar.
Þá er annað atriði brtt., að þeir skuli undanþegnir sundnámsskyldu, er lært hafa sund. Hefir nefndin og enn viljað breyta frv. í hið fyrra form, að þeir, sem sanna með læknisvottorði, að þeir megi ekki stunda sundnám sökum heilsubrests, skuli undanþegnir þessari skyldu. Mentmn. telur óþarft, að hver nemandi sýni læknisvottorð, eins og í frv. stendur, því að ekki tíðkast það, að þeir, sem læra leikfimi, þurfi að sýna slíkt vottorð, og ætti þess því ekki heldur að þurfa hjer. Þetta gæti og valdið trafala, auk kostnaðar, og ekki sjáanlegt, að það sje öðrum til gagns en læknum. Foreldrar vita, ef börnin eru veik, og láta þá skoða þau.
Jeg vona, að brtt. verði samþyktar í hv. deild. Er það gleðilegt, að vaknaður er áhugi á því að skylda menn til sundnáms. Frv. sjálft hefir engan kostnað í för með sjer fyrir ríkissjóð, og þarf því ekki að fara um það eins og sumar till., sem feldar eru aðeins þess vegna. En það væri leitt, ef þessum áhuga fyrir sundnámsskyldu fylgdi ekki líka hitt, að veittur sje styrkur til sundlauga, og tel jeg engan efa á, að fjárveitingar í því augnamiði verði að fylgja þessu síðar. Efast jeg ekki um, að frv. þetta verði samþykt, og vona, að þeir, sem samþykkja það nú, verði liðlegir á næstu þingum í því að styrkja sundlaugagerð og annað, sem að þessari íþrótt lýtur.