06.03.1925
Neðri deild: 27. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2501 í B-deild Alþingistíðinda. (1614)
74. mál, slysatryggingar
Atvinnumálaráðherra (MG):
Jeg ætti kannske að þakka hv. flm. (JBald) fyrir hlý ummæli í minn garð, en þar sem mjer skildist, að þau ættu aðallega að vera sönnunargagn fyrir því, að hann væri ekki „partiskur“, þó hann þá síðar kæmi með ávítanir, þá verð jeg víst að geyma mjer þakklætið. En jeg hjó eftir því hjá hv. flm. (JBald), að nefndin hefði lokið störfum sínum skömmu fyrir þing. Það má vera, að hún hafi gert það; jeg veit það ekki. En hitt er víst, að jeg fjekk ekki málið í hendur fyr en komið var fram á þing, og ljet jeg það þá strax fara til þeirrar nefndar, sem jeg vissi, að hv. flm. þál. frá í fyrra (JBald) átti sæti í. Jeg hefði nú kannske átt að senda honum það „prívat“, en jeg taldi hitt rjettara að láta það fara til nefndarinnar. Og jeg verð að taka það fram, að jeg fjekk engan tíma til að athuga málið. Það hefir verið talað um, að hv. allshn. hafi aðeins fengið eitt eintak af frv. Þetta er ósköp eðlilegt; jeg fjekk aðeins eitt eintak af frv. og það sendi jeg til nefndarinnar, og virðist mjer, að jeg gæti tæplega betur gert. En nú geta menn líka skilið, að jeg hefi enn ekki fengið tíma til að athuga málið eins og skyldi, enda er nú svo margt, sem að kallar í þingönnunum, að lítill tími vinst til að setja sig vel inn í slík stórmál. Eins og stendur er jeg því ekki við því búinn að láta í ljós álit mitt um frv. Eins er það, að jeg hefi ekki haft tækifæri til að athuga nákvæmlega, hvaða fjárhagslega þýðingu þetta kann að hafa í för með sjer fyrir ríkissjóð, og verður það jafnvel varla hægt til hlítar, ef málið á að ganga fram á þessu þingi. Jeg benti hv. flm. (JBald) á þetta þegar í fyrra, að þál. hans væri þannig orðuð, að málið gæti aldrei komið svo snemma til stjórnarinnar, að hún fengi athugað það fyrir þing. Jeg segi þetta ekki til þess að mæla gegn frv. Jeg býst við, að jeg kunni að fá tök á að athuga það á milli umr. og geti þá síðar látið uppi álit mitt um það. Jeg segi ekkert við því, að hv. allshn. virðist hafa athugað þetta mál áður en hv. þd. hefir vísað því til hennar, en mjer kemur það aðeins undarlega fyrir, þar sem enn liggja fyrir hv. nefnd önnur mál, sem löngu fyr var vísað til hennar. Má vera, að svo standi á því, að þau mál þurfi sjerstakrar og nákvæmari rannsóknar við. Jeg vil ekkert um það segja; hv. nefnd veit það best sjálf. En annars er jeg fyllilega samþykkur hv. flm. (JBald) um, að þessu máli verði nú vísað til allshn.