18.03.1925
Neðri deild: 36. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2520 í B-deild Alþingistíðinda. (1623)

74. mál, slysatryggingar

Jón Auðunn Jónsson:

Jeg sje á áliti hv. nefndar, að hún hefir ekki treyst sjer til að taka til greina þá bendingu, sem jeg kom með í framsögu minni fyrir öðru frv. hjer í hv. deild, sem sje að aðskilja slysatryggingu sjómanna frá almennri slysatryggingu, þannig að slysatrygging sjómanna sje deild innan hinnar almennu slysatryggingar. Jeg vil endurtaka það, sem jeg sagði þá, og taka undir það, sem hv. þm. Borgf. sagði nú, að það er ekki nema vel við eigandi, að sjómenn gætu notið þessa sjóðs, sem nú þegar er myndaður, að miklu leyti af þeirra iðgjöldum og styrktur ríflega af útgerðarmönnum, en að litlu leyti úr ríkissjóði. Jeg álít líka, að sjómenn eigi að vera hærra trygðir en aðrir verkamenn, og það af ýmsum ástæðum. Nægir að benda á, að á þeirra herðum hvílir öllum stjettum framar fjárhagsleg afkoma þessa þjóðfjelags.

Jeg sje ekki nokkra minstu erfiðleika á að halda þessari sjóðstofnun sjer. Því það verður greint nákvæmlega í milli trygginga hinna ýmsu tryggingarflokka, og að sjálfsögðu verða hærri iðgjöld fyrir sjómanninn en aðra, af því að áhættan er þar mun meiri. Verður flokkunum haldið þannig aðgreindum, svo að sjá megi eftir nokkurn tíma, hversu há iðgjöld þurfi að borga til þess að ná hæfilegum skaðabótum.

Hjer er gert ráð fyrir, að slysatrygging nái til manna við ýmsa vinnu, þótt þeir vinni ekki nema einn dag. Aftur á móti er það tekið fram um sjómenn, að þeir þurfi að vera að minsta kosti einn mánuð lögskráðir eða í skiprúmi. Jeg hefði haldið, að þessu ákvæði hefði átt að sleppa; það er ákvæði frá eldri lögum og hefir ekki ávalt verið „praktiserað“. Menn hafa stundum verið lögskráðir hálfan mánuð, en verið samt tryggingarskyldir. Þess vegna hefði mjer þótt viðeigandi og sjálfsagt, að ekki væru sett takmörk fyrir því, hvað lengi sjómaður þyrfti að stunda sjó til þess að vera tryggingarskyldur. Einnig ætti að sleppa þessu ákvæði um fjórróna báta, því víða er sjór stundaður að vori til á tvírónum bátum, þegar fiskur gengur á grunnmið og inn á firði. Þessir sjómenn ættu að komast undir slysatryggingarskyldu ákvæði sjómanna.

Auðvitað má gera ýmsar athugasemdir og jafnvel aðfinslur við svona frv., sem ekki er óeðlilegt, því það mun vera meiri vandhæfni á því hjer en annarsstaðar að búa til lög um almennar slysatryggingar, sjerstaklega vegna þess, að verkaskiftingin hjer er ekki eins nákvæm og ákveðin og erlendis. Hjer vinna menn að ýmsum störfum, sína vikuna eða mánuðinn við hvert. Þá ekki síður vegna þess, að margir sjómenn vinna ekki fyrir kaupi, heldur hlut af afla, og eru þá hlutdeildarmenn í framleiðslunni.

Hv. frsm. (JBald) benti á, að ekki væri minni ástæða til að tryggja póstana en ýmsa aðra, sem hið opinbera á að tryggja. Jeg ætlaði mjer einmitt að benda á þetta, og vil því undirstrika það. Jeg vildi einnig skjóta því til allshn., hvort ekki sje eins mikil ástæða til að tryggja þá menn, er vinna í sláturhúsum, eins og suma flokka verkamanna, sem hjer eru nefndir.

Í 5. gr. 3. lið er tekið fram, að fósturforeldrar skuli fá dánarbætur, ef þeir voru á framfæri hins látna eða hann hefir verið til heimilis hjá þeim, þegar slysið varð. Þessu vildi jeg breyta í líkt form og í frv., sem jeg flutti hjer á dögunum, þannig, að fósturforeldrar fengju dánarbætur þegar hinn látni hefði veitt þeim fjárhagslegan stuðning. Því jeg hygg, að flestum komi saman um það, að fósturforeldrar, sem hafa alið upp mann, og síðan notið hans hjálpar og lifað eingöngu af hans afla, þau eigi að fá dánarbætur eftir hann. Vel getur og verið, að maðurinn sje annarsstaðar búsettur, og veiti þeim þó fjárhagslegan stuðning.

Fyrirkomulag á greiðslum iðgjalda eftir þessu frv. er eins og annarsstaðar á sjer stað, að það eru atvinnurekendur, sem greiða þau, og að litlu leyti ríkissjóður, að því er snertir sjómenn á smærri bátum. En hjer stendur að einu leyti sjerstaklega á um þá sjómenn, sem róa upp á hlut á smærri útgerð; þeir hafa álhættu og ábata eftir því, hvernig gengur, fá kannske alt að 2/3 aflans og útgerðarmaður 1/3 Og að því leyti má segja, að þeir sjeu líka atvinnurekendur ásamt útgerðarmanni.

Skal jeg ekki ræða þetta frekar nú, er jeg býst við að koma með brtt. við 3. umræðu um það, að hafa slysatryggingu sjómanna sem sjerstaka deild innan þessarar almennu slysatryggingar.