18.03.1925
Neðri deild: 36. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2536 í B-deild Alþingistíðinda. (1630)

74. mál, slysatryggingar

Jón Kjartansson:

Af því að allmargir hv. þm. hafa talað, sem þóst hafa þurft að brýna nefndina, vildi jeg mega minna hina sömu menn á að lesa frv. áður en þeir fara að finna að gerðum nefndarinnar.

Mig furðar stórlega á, að umr. skuli í þessu máli aðallega snúast um aukaatriði. Hjer er mikið talað um, að tryggingin nái til manna, þó að þeir hlaupi t. d. með símalínu o. s. frv. Þó vita þessir menn mjög vel, að aðalhættan við þetta verk — símaviðgerðir — verður þá fyrst, þegar menn fara að klifra upp í símastaurana, og hefir oft hlotist slys af.

Hvort fella eigi niður einstaka liði og taka aðra upp aftur, finst mjer skifta svo litlu máli, að ekki taki að teygja lopann út af því við þessa umræðu.

Það er aldrei nema rjett, að sum vinna, sem talin er í frv., er áhættulítil, eins og t. d. almenn vegavinna. En þar verða iðgjöldin líka afarlítil.

Að þetta auki mjög skriffinsku, get jeg ekki sjeð; því að þeir menn, sem fyrir vinnunni standa, halda skrá yfir menn ina hvort sem er. En hjer verður að hag; því þannig, að taka eftir á allan tímafjöldann, sem unnið er hjá hverjum atvinnurekanda, og leggja hann saman og reikna tryggingargjaldið eftir þeirri útkomu. Það skiftir því engu máli, hvað mennirnir heita, sem vinna. Hvort þeir heita Jón, Bjarni eða Sveinn, er öldungis hið sama. Það á einungis að leggja tímann saman, sem þeir vinna allir, og iðgjöldin fyrir þá verða borguð í einni heild. Þessa aðferð verður að nota.

Því áhættuminni sem atvinnugreinin er, því lægri verða iðgjöldin, sem greiða þarf fyrir verkamennina. Það er því hinn mesti óþarfi að vera að deila um, hvort áhættumeira sje að verka fisk eða vinna að heyskap, því að þegar tímar líða, verða báðar þessar atvinnugreinir taldar tryggingarskyldar, þótt ætlunin sje nú að tak? aðeins aðra. Aðalatriðið er, eins og hv. frsm. (JBald) tók fram, að reyna að laga þetta eftir reynslunni. Sjeu menn fylgjandi aðalstefnu frv., þá er ekki vert að vera að deila um smáatriði ein.

Út af ummælum hæstv. atvrh. (MG) skal jeg taka það fram, að vitanlega er tilætlunin, að settar verði takmarkanir í reglugerð, því að annars yrðu lög þessi illframkvæmanleg í byrjun.

Jeg sje vitanlega ekkert á móti því, að menn í sveit, sem vinna að fjárhúsbyggingu eða fjárgæslu, sjeu trygðir, því að ekki er þess langt að minnast, að hræðilegt slys varð við að rífa fjós suður á Seltjarnarnesi. Nei, slysin geta komið jafnt fyrir fram í instu afdölum sem í þjettbýlustu kaupstöðum. Hættan er því alstaðar hin sama, eða því sem næst, þegar vinnan, sem unnin er, er sú sama.