20.04.1925
Neðri deild: 60. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2602 í B-deild Alþingistíðinda. (1675)

118. mál, herpinótaveiði

Jón Sigurðsson:

Það er að vísu ekki orðið einstakt, að breytt sje lögum eða að numin sjeu úr gildi lög frá næsta þingi á undan, en sjaldgæft er það, enda ber það vott um einstakan hringlandahátt. Þessi lög, er samþykt voru 1923, fengu allan þorra atkvæða, máske var einn eða tveir á móti. (SigurjJ: Nei, enginn). Það er því ástæða til þess fyrir þingið að íhuga þetta mál vel, áður en það hleypur frá sinni fyrri stefnu.

Ástæður þær, er færðar hafa verið fram fyrir þessu frv., eru þær, að síldveiðunum sje gerð tálmun, er valdi útgerðarmönnum verulegu tjóni og ríkissjóður bíði hnekki af. Jeg vil ekki neita því, að svo geti viljað til, að síldveiðamönnum sje gerður ógreiði stöku ár með þessari samþyktu línu, sem hjer um ræðir, og þótt sagt sje, að Skagfirðingum gangi til meinbægni ein, þá verð jeg þó að slá því föstu, að þeir menn, sem eiga hjer hlut að máli, vita þó betur en aðrir, bæði Siglfirðingar og ýmsir landshornamenn, hvar skórinn kreppir þá mest.

Háttv. flm. talaði um, að ekki gæti komið til mála, að herpinótaveiði skemdi önnur veiðarfæri. Þessu mótmæli jeg. Það ætti að vera öllum skiljanlegt, að þegar krökt er af herpinótaskipum, fer að verða þröngt fyrir dyrum hjá hinum, sem leggja lóðir, og að spell geti af hlotist, enda hefir reynst svo.

Hv. aðalflm. málsins (SigurjJ) taldi ekki óhugsandi, að síldveiðarnar mundu hefta síldargönguna. Það skiftir að vísu ekki svo miklu máli fyrir síldveiðar Skagfirðinga. En þorskurinn eltir síldina, og bregðist þorskveiðin á firðinum fyrir þá sök, er öllum þeim, er þar stunda bátfiski, gert stórtjón, en það eru einkum fátækir þurrabúðarmenn. Allir hljóta því að sjá, að ef svo mikið er um að ræða fyrir síldveiðamenn, eins og hann sagði, þá muni þetta hafa ekki síður þýðingu fyrir útvegsbændur og sjómenn norður þar. Þessi breyting, sem hjer er farið fram á, er ekki til annars en tjóns fyrir alla smærri útgerðarmenn, er stunda veiðar þarna.

Eins og tekið hefir verið fram, er breyting laganna 1923 sú, að færa línuna dálítið út og tilgangurinn var sá, að fría 2 aðalmiðin þarna fyrir yfirgangi síldveiðamanna. Þingmenn verða því að meta, hvort er meira virði, hagsmunir almennings eða hagsmunir nokkurra einstakra manna einstöku sinnum á margra ára fresti; nægir í því efni að benda á það, sem öllum er kunnugt, að síldarganga er breytileg frá ári til árs; stundum er hún á Skagafirði, stundum á Húnaflóa og stundum á Eyjafirði. Og þótt síldin hafi sótt á þessar slóðir á síðustu árum, þá er það engin sönnun fyrir því, að svo verði áfram.

Jeg tel því, að þetta frv. sje eitt af þeim gönuhlaupum, sem gerð hafa verið hjer í þinginu, en jeg skal ekki tala meira um málið að svo stöddu; en fróðlegt þykir mjer að sjá hvernig atkvæði verða um það greidd og hvað hv. þdm. eru snúningaliðugir.