27.04.1925
Neðri deild: 65. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2613 í B-deild Alþingistíðinda. (1681)
118. mál, herpinótaveiði
Jón Baldvinsson:
Eins og segir í nál. á þskj. 384. þá hefi jeg óbundið atkvæði um málið.
Jeg vil fyrst taka það fram, að lögin voru sett fyrir 2 árum, en nú á að fara að fella þau. Finst mjer þetta vera öfug leið, því að annaðhvort hefði átt að synja um beiðnina, er hún kom, eða þá að nema úr gildi öll lagaákvæði um fiskiveiðasamþyktir. Þykist jeg þó vita, að þótt mörgum komi saman um að sumar samþyktirnar sjeu ekki þýðingarmiklar, og aðrar til skaða, þá þurfi þó að athuga málið vel og ekki hrapa að því. Samþyktir hafa víða verið gerðar, ekki aðeins um veiði í sjó, heldur einnig um veiði í ám og vötnum. Getur það tæplega verið forsvaranlegt að ráðast að einu atriði, en hrófla ekki við hinu. Rjett væri að athuga, hvort ekki ætti að fela Fiskifjelaginu að gera tillögur um, að hve miklu leyti væri rjett að halda í slík heimildarlög fyrir sýslufjelögin. Því að þótt segja megi, að samþyktir hafi stundum orðið til tjóns, þá efast jeg ekki um, að sumar hafa orðið til gagns.
Hv. frsm. (SigurjJ) mintist á það, að vera kynni að það yrði til tjóns og truflaði fiskgöngu inn Skagafjörð; ef dauð síld fjelli í botn. Það er enginn efi á þessu, og fyrir vestan var í samþyktum mönnum bannað að slægja niður til þess að' fiskgöngurnar stöðvuðust ekki við niðurburðinn.
Af þessum ástæðum vil jeg ekki fallast á það að styðja frv. Mjer finst vera gripið öfugt í þetta mál og af handahófi. Mjer er sagt, að á Húnaflóa sjeu líka dregnar línur um það, hvar megi veiða, og ættu þær þá að sjálfsögðu líka að takast af, en ekki að taka þetta eina atriði út úr.