27.04.1925
Neðri deild: 65. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2620 í B-deild Alþingistíðinda. (1685)

118. mál, herpinótaveiði

Jakob Möller:

Slík heimildarlög sem þessi, að banna síldveiðar á fjörðum inni, hafa verið gefin út handa Húnvetningum, Skagfirðingum og Eyfirðingum. Á Eyjafirði hafa þau aldrei verið notuð, en á Húnaflóa og Skagafirði hafa þau að engu gagni komið. Þess vegna var á þinginu 1923 farið fram á að færa út línuna á Skagafirði, því að eldri mörkin voru sýnilega að engu nýt. Jeg hygg, að allflest þessara heimildarlaga, sem til eru, sjeu þýðingarlaus, því með þessari friðun næst ekki tilgangur sá, sem til var ætlast, því hættan, sem stafa átti frá þessum veiðum, var ekki til nema í ímyndun manna. Þetta er mín skoðun á málinu, og jeg held, að forseti Fiskifjelags Íslands sje svipaðrar skoðunar. Jeg byggi þetta á reynslu manna á þessum heimildarlögum. Yfirleitt er reynslan sú við Eyjafjörð, að þar eru þorskveiðar stundaðar jafnhliða síldveiðunum og rekst ekkert á; en hitt er satt, að síldin fer skemra inn í fjörðinn hin síðari ár, og eru því landnótaveiðar lagðar niður. Hvort þetta stafar frá herpinótaveiðunum, veit jeg ekki, en ef svo er, verða þessar friðanir gagnslausar eigi að síður, og verður þá að fara lengra út, ef þetta ætti að duga. Síldveiðarnar eru nú sem stendur mestmegnis utanfjarða, og er það þá sú veiði, sem ætti að hafa haft þau áhrif, að síldin gangi ekki innar eftir fjörðum. Stundum kemur það þó fyrir, að síldin fer langt inn eftir fjörðum, jafnvel inn í fjarðarbotna, t. d. var árið 1923 talsvert veitt inni undir Hörgárgrunni í Eyjafirði; en þetta er mjög mismunandi ár frá ári, án þess menn viti, af hverju það stafar.

Ef slíkar samþyktaheimildir eru lífsspursmál fyrir einhver hjeruð, þá er vandi að taka afstöðu til þess máls. Jeg er ekki þeirrar skoðunar, að það eigi að fella úr gildi allar slíkar heimildir, t. d. um dragnótaveiðar á sunnanverðum Faxaflóa, því jafnhliða þeim er ekki hægt að stunda aðrar veiðar, því dragnætur spilla fyrir öllum öðrum veiðiskap. Þetta gerir herpinótaveiðin ekki; herpinæturnar eru lagðar á yfirborð sjávar, en línur til þorskveiða liggja allar á botni. Það þarf því ekki að banna herpinótaveiði af ótta fyrir veiðarfæratapi við þorskveiðar af þeirra völdum. Hinsvegar ef það reyndist svo, að herpinótaveiðin tept í göngur þorsksins inn á Skagafjörð, þá væri auðvitað öðru máli að gegna og menn hafa trúað því, að herpinótaveiðar eyðilegðu á einhvern hátt aðrar veiðar á fjörðunum. Jeg álít því, ef það reynist satt, að þá eigi að líta á þá hlið málsins, því ef veiðiskapur heilla hjeraða gæti eyðilagst af völdum herpinótaveiðanna, gæti rekið að því, að einhver tiltekin hjeruð eða heilar sveitir legðust í auðn af því að þeim hefði verið gert ókleift að stunda þá atvinnu. sem þau hefðu áður haft, eða hún eyðilögð fyrir þeim. Þetta gæti því verið þýðingarmikið atriði og verður því að athuga það vel, þar sem miklir hagsmunir almennings eru ef til vill í veði. Ef jeg tryði að afnámið kæmi þorpsbúum við Skagafjörð á vonarvöl, þá mundi jeg skoða hug minn vel áður en jeg samþykti það, en nú er það álit þeirra, sem vit hafa á, að um þetta sje ekki að ræða, og horfir þá málið alt öðruvísi við.

Jeg sje ekki betur en að það sje dálítið vafasamt, hvort hægt er að rjettlæta að grípa fram í eins og gert er með þessu frv. Ef það er viðurkent, að Skagfirðingar eigi rjett til þess að friða fyrir innan línuna frá 1913, þá er erfitt að sanna, að þeir eigi það ekki fyrir utan hana, að línunni frá 1923, því báðar eru settar til þess að vernda hag manna á þessum slóðum. Að öðrum kosti er hjer aðeins um hjátrú að ræða, sem ekki á sjer rjettmæt rök. Og þá er rjett að afnema báðar. En þetta verða menn að gera upp. Jeg álít það vera hjátrú, en jeg tel mig ekki allsherjardómara í því.

Jeg ljet þetta mál afskiftalaust á þingi 1923. Jeg samþykti að vísu niðurstöðu nefndarinnar í því, en það bygðist ekki á þeirri sannfæringu, að þetta væri nauðsynlegt. En það var viðurkent í löggjöfinni áður, að þeir ættu rjett á þessari vernd, og því lagðist jeg ekki á móti málinu. En jeg skoða mig ekki rígbundinn við þá afstöðu. En jeg hefði talið rjett, að málið væri tekið frá rótum og í samræmi við það, sem forseti Fiskifjelagsins áleit um málið.

Það er ekki rjett, sem einhver sagði, að skoðun fiskifræðings styddi það, að hjer væri um hagsmunamál að ræða fyrir fiskiveiðarnar. Jeg man, að um dragnótaveiðar var hann því hlyntur, að samþykt væri um þær gerð. En um þetta hefir hann ekki látið neitt í ljós; þekkir hann þó líka til í Skagafirði. Að þessu sinni mun jeg greiða frv. atkv. til 3. umr.