27.04.1925
Neðri deild: 65. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2623 í B-deild Alþingistíðinda. (1686)
118. mál, herpinótaveiði
Frsm. (Sigurjón Jónsson):
Jeg skal fyrst víkja að því, sem hv. þm. Borgf. (PO) sagði um orð þau, er tilfærð eru í nál. eftir forseta Fiskifjelagsins. Forsetinn kom til mín eftir að nál. var prentað og kvaðst hafa meint dálítið annað en það, sem þar stæði. En það, sem breyst hafði, kom eiginlega ekki því máli við, sem hjer er um að ræða. Enda vil jeg benda á, að þetta, sem tilfært er, getur varla verið langt frá því, sem hann sagði, þar sem við 5 nefndarmenn hlustuðum á, hvað hann sagði, og fórum síðan yfir það, sem tilfært er í nál., og fundum ekki ósamræmið.
Afstaða forseta Fiskifjelagsins er dálítið önnur en Bjarna Sæmundssonar, og er ekkert við það að athuga. Jeg skal taka eitt atriði hjá andstæðingum málsins. Þeir hafa haldið því fram, að rjett væri að taka málið upp á öðrum grundvelli. Þeir skoða heimildarlög þau, sem fyrir eru, úrelt. En ef málið væri tekið á þessum grundvelli, þá er um algera stefnubreytingu að ræða hjá Alþingi. Það er ekki stefnubreyting þó numin sjeu úr gildi ýtrustu ákvæðin. Okkur þótti því ekki rjett að fara lengra; þótti tvísýnt, að nokkuð ynnist á með öðru en þessu, en nauðsynlegt að nema burt ákvæðin frá 1923.
Jeg skal benda hv. 2. þm. Reykv. (JBald) á það, að með þessu frv. er ekki verið að takmarka rjett Skagfirðinga meira en var áður. Þeir hafa ekki notað sjer þennan nýja rjett sinn fyr en að nú er það ráðgert, og þingið hafði ástæðu til að ætla, að þeir myndu ekki ætla að notfæra sjer lögin frá 1923. Þess vegna hófumst við ekki handa fyr en samþykt sýslunefndar kom.
Jeg átti tal við hæstv. atvrh. (MG) um það, hvort hann mundi neita að staðfesta reglugerðina, ef honum bærist formleg beiðni um það frá hlutaðeigandi hjeraði. Hann taldi það naumast hægt eftir lögunum. Því rjeðumst við á lögin frá 1923. Ef okkur hefði verið sagt, að þessi samþykt kæmi ekki til framkvæmda í sumar, þá hefðum við tekið málið upp á hinum grundvellinum, að afnema fleiri heimildarlög en þessi. Það er annars ekki rjett að gera mjög lítið úr því svæði á Skagafirði, sem er ráðgert að friða; það er um 25 fer. sjómílur að stærð.
Þá verð jeg að mótmæla því, sem hæstv. atvrh. sagði, að þeir mundu fleiri, sem hefðu hag af friðuninni, en hinir, sem óhag hefðu af því að þarna mætti ekki veiða. Það er fjarri sanni. Jeg gat þess í fyrri ræðu minni, að það hefði veiðst tugum þús. tunna minna, ef þetta svæði hefði verið friðað síðustu tvö ár. En þær tekjur, sem ríkissjóður og atvinnufyrirtæki hafa af því, eru svo margþættar, að ekki er samanberandi við það, þótt nokkrir árabátar þurfi að sækja veiði sína eitthvað lengra. Jeg vil enda með því að taka undir það, sem hv. þm. N.-Þ. sagði, að landhelgin væri sameiginleg eign og að ekki beri að gefa einstökum hjeruðum öðrum fremur afnotarjett hennar.