29.04.1925
Neðri deild: 67. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2633 í B-deild Alþingistíðinda. (1694)
118. mál, herpinótaveiði
Þórarinn Jónsson:
Jeg ætlaði ekki með till. minni að vekja neinar deilur og bjóst við, að málið væri svo útrætt, að hv. þm. gætu tekið afstöðu til hennar án þess það kostaði langar umræður. Mjer þótti undarlegt, hvernig hv. þm. Dala. (BJ) snerist gegn mjer og misskildi þessi fáu orð, sem jeg mælti fyrir till. minni. Jeg sagði ekki, að jeg væri mótfallinn frv. í sjálfu sjer, en hitt tók jeg fram, að illa sæti á hv. þm. að gera lítið úr þeim lögum, er þingið sjálft hefir samþykt, og að taka bæri nokkurt tillit til þess, að heilt hjerað og mannmargt hefði lífsuppeldi sitt af þessu svæði, sem um er deilt. Þarna stundar fjöldi hjeraðsmanna fiskiveiðar, en þegar 50—60 gufuskip og fjöldi mótorbáta hvolfa sjer yfir þá, gefur að skilja, að veiðin hlýtur að ganga til þurðar og margur verði að leita heim á leið öngulsár.
Það er talað um hagsmuni almennings í þessu sambandi, en þó eru til lög, sem banna fiskiveiðar í landhelgi; en þarna er ráðist inn á svæði, sem Skagfirðingar hafa haft heimild til frá ómunatíð að stunda fiskiveiðar á, og björginni rænt frá munni þeirra eða veiðarfæri þeirra ónýtt.
Hann taldi líka, að það væri óviðeigandi af mjer sem stuðningsmanni stjórnarinnar að vilja vísa málinu til hennar; sagði, að jeg væri hliðhollur hæstv. atvrh. (MG), sem aftur á móti væri þm. Skagf. og bæri því hag kjósenda sinna fyrir brjósti. Nú hefir hæstv. fjrh. (JÞ), sem er þm. Reykv., lýst því yfir, að hann vilji ekki, að samþykt Skagfirðinga nái fram að ganga, svo jeg sje ekki, að neitt sje því til fyrirstöðu, að þessir tveir hæstv. ráðherrar sjeu leiddir saman og athugi málið. Og einmitt vegna þess, að þeir standa svo á öndverðum meið, er ekki ósennilegt, að málið upplýstist betur við rannsókn þeirra.
Af þessum ástæðum virðist mjer heillaráð að vísa málinu til stjórnarinnar, og vona jeg, að hv. þm. Dala. (BJ) fallist á það líka, þegar hann hugsar sig betur um og greiði því atkvæði með till. minni.
Háttv. frsm. (SigurjJ) efaðist um, að málið yrði tekið upp frá rótum og undirbúið fyrir næsta þing, ef því yrði vísað til stjórnarinnar. Þetta get jeg ekki skilið, þar sem það hefir einmitt verið margtekið fram, að nauðsyn bæri til, að öll löggjöf þessa máls yrði endurskoðuð fyrir næsta þing. Nú gæti líka farið svo, að engin síld kæmi á þessar stöðvar í sumar, og stæði þá á sama, hvort samþykt Skagfirðinga væri staðfest eða ekki.
Annars þykir mjer undarlegt, hvernig hv. þm. taka í þessa till. mína, þar sem jeg hefi einmitt lýst því yfir, að jeg vildi gjarnan, að samþyktin næði ekki fram að ganga að þessu sinni. Ef sýnt væri með rökum, að nauðsyn bæri til Skagfirðinga vegna að takmarka síldveiði á þessu umþráttaða svæði, þá væri algerlega rangt að nema samþyktina úr gildi. En jeg ætla ekki að orðlengja frekar um þetta og vona, að mjer gefist ekki tilefni til að standa upp aftur. Jeg endurtek það, sem jeg sagði áðan, að jeg ætlaði ekki að vekja neinar deilur, og vænti, að hægt verði að fara að ganga til atkv.