29.04.1925
Neðri deild: 67. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2634 í B-deild Alþingistíðinda. (1695)

118. mál, herpinótaveiði

Jakob Möller:

Það hendir ekki oft, að jeg komi með framrjetta hönd hæstv. stjórn til bjargar, enda var henni neitað þegar í stað.

Jeg skal játa, að jeg tók ekki eftir, að leitað hafði verið samkomulags á svipuðum grundvelli og jeg gerði, en úr því að hæstv. atvrh. (MG) sjer sjer ekki fært að fresta löggilding samþyktarinnar, þá verð jeg að taka til minna ráða.

Jeg er ekki í neinum vafa um það, að í heild gæti það orðið langtum meiri skaði að banna síldveiði á Skagafirði heldur en þó að hjeraðsmenn, sem fiskveiði stunda þar, yrðu fyrir einhverju tjóni vegna síldveiðinnar, sem jeg þó tel mjög vafasamt. Þeir, sem þorskveiðar stunda, geta farið allra sinna ferða, og hafa gert, þó síldveiði sje stunduð þar samhliða, enda hafa hjeraðsbúar aldrei veitt síld nema aðeins til beitu, og hana eiga þeir að fá, og ef til vill með minni kostnaði en áður.

Af þessum ástæðum mun jeg því greiða atkv. með frv. og læt því till. mína til rökstuddrar dagskrár ekki fara lengra. Fyrir mjer vakti ekkert annað en að fresta staðfestingu samþyktarinnar og undirbúa málið fyrir næsta þing. Sje Skagfirðingum nauðsynlegt að fá þessa samþykt, hefði það ekki síður átt að koma í ljós við nánari rannsókn, og þá engin hætta á, að það næði ekki fram að ganga. En það er augljóst, að hæstv. atvrh. stofnar þessu áhugamáli þeirra í meiri hættu, með því að neita þessu samkomulagi, heldur en gert væri með því að fresta staðfesting samþyktarinnar til hausts. En hann um það, og getur þá verið útrætt um þetta mál frá minni hendi.