29.04.1925
Neðri deild: 67. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2638 í B-deild Alþingistíðinda. (1699)
118. mál, herpinótaveiði
Bjarni Jónsson:
Það er örðugt að eiga við þá ódauðlegu. Það er eins og þá er Herakles átti í höggi við orminn í Lernuvatni. Hæstv. atvrh. (MG) kvað friðunarsvæðið á Breiðafirði vera allan Gilsfjörð. En hann er allur fullur af eyjum og skerjum, og ef reiknaðar eru netalagnir hvarvetna frá landi, þá eru aðeins litlir pollar eftir. Ef hæstv. ráðh. (MG) vill hafa jafnrjetti Skagfirðingum til handa við það, sem hafa Breiðfirðingar, þá skal jeg ganga inn á, að jafnstórt svæði verði friðað á Skagafirði, friðað fyrir sel.
Þá er ekki hægt að núa mjer því um nasir, að jeg sje hlutdrægur.
Annars er þessu tvennu með engum sannindum saman að jafna. Fólk lifir ekki á selaskotum um land alt. Þessi hlunnindi eru þess virði á Breiðafirði einum, að nokkru nemi.
Að ekki megi nema lög úr gildi fyr en þau eru komin til framkvæmda, nær engri átt. Þegar slæm lög eiga í hlut, ber að gera það þegar. Hjer er tækifærið. Minnumst nú heimspekingsins. Starf hans hafði borið þann árangur, að fræðsla í landinu hafði aukist, og verra er mönnum ekki gert.