29.04.1925
Neðri deild: 67. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2639 í B-deild Alþingistíðinda. (1700)
118. mál, herpinótaveiði
Björn Líndal:
Það er ekki nóg að segja, að ekki megi stofna til togstreitu milli sjávarútvegs og landbúnaðar; það verður að sýna það í verki. Hjer er til slíks stofnað. Öðrumegin eru hagsmunir örfárra bænda, sem lifa bæði á landbúnaði og útvegi. Hinumegin eru hagsmunir alls þorra útvegsmanna. Það er fjarstæða, að veiðarfærum manna sje spilt með herpinótaveiðinni. Þær fara ekki nema 25 faðma niður í sjó. Svo grunt leggur enginn lóð. Sannleikurinn er sá, að hjer liggja til aðrar hvatir. Síldarútvegurinn þykir draga frá sveitinni fólk. En það er undarlegt og viðsjárvert, að um leið og sjávarútvegurinn leggur á sig nýjar kvaðir til þess að hjálpa landbúnaðinum, þá er seilst til miklu meira og oft með ósanngirni af hans hálfu. Reynt að tefja viðgang útvegsins. Hjer er íslenskur bóndi, sem talar, ekki útvegsmaður. Og jeg verð að segja, að það eru miklar líkur til, ef þetta er ekki numið úr lögum þegar, þá baki það svo mikið tjón þegar á næsta sumri, að ekki verði talið, án þess að teljandi hagnaður sje að á hinn bóginn.