29.04.1925
Neðri deild: 67. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2640 í B-deild Alþingistíðinda. (1701)

118. mál, herpinótaveiði

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg vil ekki láta það óleiðrjett, sem haldið hefir verið fram, að hjer væri um landbændur eina að ræða. Þetta er ekki svo. Þeir, sem að þessu máli standa, eru sjómenn eða útgerðarbændur. Landbændur láta sig þetta litlu skifta. Hjer standa því hagsmunir sjávarútvegsmanna gegn hagsmunum annara sjávarútvegsmanna.